Fréttablaðið - 08.10.2003, Qupperneq 25
KÖRFUBOLTI Keflvíking-
um er spáð sigri í Inter-
sport-deild karla af
þjálfurum og leikmönn-
um deildarinnar. Kefl-
víkingar fengu 410 stig í
fyrsta sætið, Grindavík-
ingar fengu 378 stig í
annað og KR 346 í það
þriðja.
Guðjón Skúlason,
þjálfari Keflavíkur, seg-
ir spána ekki koma sér á
óvart. „Keflvíkingum
hefur yfirleitt verið
spáð ofarlega í deildinni
þannig að þetta kemur
ekki á óvart,“ segir
Guðjón, sem lagði skóna
á hilluna fyrir þetta
tímabil. „Þetta er pressa
sem við verðum að lifa
við og taka á.“
Talsverðar breyting-
ar hafa orðið í liði
Grindavíkur. Liðið mis-
sti sex leikmenn en fékk
jafn marga í staðinn.
„Við höfum verið að
spila svona upp og ofan
í haustleikjunum og
erum enn að reyna stilla
saman strengi okkar,“
sagði Friðrik Ingi Rúnarsson,
þjálfari Grindavíkur. Friðrik Ingi
er með tvo Bandaríkjamenn í
sínu liði en í fyrra var hann með
einn frá Bandaríkjunum og tvo
Júgóslava. „Ég er með fjórtán
leikmenn á æfingu og mér líst
ágætlega á það. Ég þarf bara að
slípa það til.“
Intersport-deild karla hefst
næstkomandi fimmtudag með
fjórum leikjum.
Keflvíkingum er einnig spáð
sigri í 1. deild kvenna en sex lið
taka þátt í deildinni. Keflvíking-
ar fengu 105 stig í fyrsta sætið,
bikarmeistarar ÍS fengu 84 í ann-
að sætið og Grindavík 60 stig í
það þriðja.
Opnunarleikur 1. deildar
kvenna verður í Njarðvík í kvöld
þegar Njarðvík tekur á móti ÍS
og hefst leikurinn klukkan 19.15.
ÍR fær svo KR í heimsókn klukk-
an 20 í Seljaskóla. ■
25MIÐVIKUDAGUR 8. október 2003
KÖRFUBOLTI Breytingar hafa verið
gerðar á Intersport-deildinni í
körfuknattleik. Svokölluðu launa-
þaki hefur meðal annars verið
komið upp og er félögum þá ekki
heimilt að greiða meira en 500
þúsund krónur á mánuði í laun og
hlunnindi fyrir leikmenn. Félögin
hafa öll skilað inn fjárhagsáætlun
og mun nefnd innan KKÍ fylgja
þeim eftir.
Takmarkanir á þjóðerni leik-
manna hefur verið fellt niður en
áður var heimilt að hafa eins
marga evrópska leikmenn og liðin
töldu þörf á en aðeins einn leik-
mann utan Evrópu.
„Vonandi fáum við betri og hæf-
ari leikmenn og þar af leiðandi
betri leiki,“ sagði Pétur Hrafn Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri KKÍ,
á blaðamannafundi í gær.
„Nýju reglurnar gera félögum
kleift að ýta niður verði á leik-
mönnum og þá verður vonandi
rekstur deildanna þægilegri,“
sagði Guðjón Skúlason þjálfari
Keflavíkur. „Ég veit samt ekki
hvort körfuboltinn verði eitthvað
miklu betri fyrir vikið. Það verður
kannski erfiðara fyrir unga strá-
ka að komast í lið því samkeppnin
verður meiri. En ég vona að þetta
skili sér í áhorfendum en það hef-
ur ekki verið nóg af þeim síðustu
tvö ár.“‘ ■
Breytingar í körfubolta:
Launaþak tekið upp
GUÐJÓN SKÚLASON
Félögum er þó frjálst að skipta greiðslum á
milli leikmanna innan launaþaksins.
FÓTBOLTI Stan Collymore, fyrrum
landsliðsmaður Englands í knatt-
spyrnu, íhugar nú að ganga aftur
til liðs við Southend og hefja þar
með knattspyrnuferilinn að nýju.
Hann lék með Southend tímabilið
1992-1993 áður en hann gekk til
liðs við Nottingham Forest.
Collymore lagði skóna á hill-
una fyrir tveimur árum, aðeins
fimm vikum eftir að hann gekk
til liðs við spænska félagið
Oveido.
Síðustu vikur hefur hinn 32
ára gamli framherji verið sagður
á leið aftur í boltann.
„Ég útiloka ekki að fara í South-
end,“ sagði Collymore. „Það væri
gott að koma þangað aftur.“ ■
STAN COLLYMORE
Hefur leikið með ellefu liðum á ferli sín-
um. Þar á meðal Liverpool.
Stan Collymore:
Útilokar
ekki Sout-
hend
KÖRFUBOLTI Körfuknattleikssam-
band Íslands mun gera auknar
kröfur til félaga varðandi umgjörð
leikja í Intersport-deildinni í vetur.
Félög munu meðal annars halda úti
heimasíðu, leikskrá verður gefin út
fyrir hvern leik og kynnir verður á
öllum leikjum.
Jafnframt verður félögum frá
og með áramótum skylt að hafa
lukkudýr á sínum snærum. Sem
stendur eru sex félög af tólf komin
með lukkudýr og má búast við að
þau setji mikinn svip á leikina í vet-
ur. ■
API ÚR HVERAGERÐI
Hamar úr Hveragerði er tilbúið
með lukkudýrið sitt. Það er api
sem kenndur er við Eden.
Breytt umgjörð á leikjum:
Liðum skylt
að hafa
lukkudýr
BOLTINN AÐ BYRJA
Keflavík er spáð sigri í karla- og kvennaflokki í körfuboltanum í ár. Talsverðar breytingar
hafa verið gerðar á deildinni.
Keflvíking-
um spáð sigri
Keflvíkingum er spáð sigri í Intersport-deild
karla og 1. deild kvenna í körfuknattleik.
SPÁ
INTERSPORT-DEILD KARLA
Lið Stig
Keflavík 410
Grindavík 378
KR 346
Njarðvík 314
Haukar 299
Snæfell 235
Tindastóll 228
Breiðablik 138
ÍR 131
Hamar 129
KFÍ 127
Þór Þorlákshöfn 69
1. DEILD KVENNA
Lið Stig
Keflavík 105
ÍS 84
Grindavík 60
KR 54
Njarðvík 48
ÍR 27
LEIKMENN KYNNTIR
Leikmenn liðanna voru kynntir í gær.
Kringlunni 8-12
Sími: 553 2888
Litir: Svart
Vínrautt
Grátt
Stærðir: 21-39
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M