Fréttablaðið - 08.10.2003, Page 30
Hrósið 30 8. október 2003 MIÐVIKUDAGUR
■ Fyrsti kossinn
Það eru þingmenn hér sem eruekki komnir upp úr gömlu
hjólförunum og eru vanir að hefja
ræður sínar með orðunum herra
forseti. Ég vil ekki vera herra af
því að ég fæddist ekki þannig,“
segir Þuríður Backman, fimmti
varaforseti Alþingis, sem hefur
þegar stýrt einum þingfundi og
staðið í ströngu við að leiðrétta
þingmenn sem ávarpa hana sem
herra. „Menn eru ekki að móðga
mig, þetta er bara vani en ég vil
að þingmenn ávarpi konur í for-
setastóli sem hæstvirtur, virðu-
legi eða bara frú forseti,“ segir
Þuríður Backman sem hefur ekki
tölu á því hversu marga þingmenn
hún þurfti að leiðrétta á þeim eina
fundi Alþingis sem hún hefur
stýrt til þessa.
„Það er ekki komin reynsla á
hver er verstur í þessum efnum.
En þeir sem eru búnir að sitja hér
lengst eru yfirleitt vanafastari en
aðrir,“ segir Þuríður Backman. ■
Alþingi
ÞURÍÐUR BACKMAN
■ Fimmti varaforseti Alþingis
sættir sig ekki við að þingmenn
ávarpi hana sem herra þegar hún
stýrir þingfundum.
Imbakassinn
...fær Alexander Briem fyrir að
ljá Malcolm in the Middle rödd
sína með frábærum árangri á
Skjá einum.
Vill ekki vera herra
Lárétt: 1 vatnsuppspretta, 5 málmur, 6
átt, 7 skammstöfun, 8 eldur, 9 dá, 10 á
nótu, 12 beljaka, 14 auð, 16 kyrrð, 17
sleit, 19 næ í.
Lóðrétt: 1 í klæðaskápum, 2 óska, 3
sem, 4 frostskemmd, 6 orð tengt prenti
og heyskap, 8 verkfæri, 11 ask, 13 draug-
ur, 15 grip, 18 hlotnast.
■ Leiðrétting
Að gefnu tilefni skal tekið fram að Ríkisútgáfa
námsbóka mun ekki gefa út ævisögu Laxness
eftir Hannes Hólmstein.
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Colin Powell
Margrét María Sigurðardóttir
Lið Svía og Þjóðverja
1
5 6
7 8
14 15
17 18
16
19
2 3
1311
9
1210
4
Bæjarlind 2
201 Kópavogur
Sími: 544 2210
Fax: 544 2215
www.tsk.is
MCP A+
Þessi námsbraut skiptist í tvo hluta og er hægt
að kaupa þá í sitt hvoru lagi, nánari upplýsingar
á www.tsk.is.
MCP hlutinn inniheldur ítarlega kennslu á
Windows XP Professional og kynningu á
Windows 2000 Server. MCP er góður grunnur
fyrir þá sem vilja öðlast færni í kerfis- og
netstjórnun og styrkja stöðu sína með
alþjóðlegri prófagráðu, Microsoft Certified
Professional.
A+ hlutinn hentar þeim sem vilja fá betri skilning
á virkni tölvunnar, bæði hvað varðar
vélbúnaðinn og stýrikerfi. Námið skiptist í tvo
hluta, annars vegar er vélbúnaðarþátturinn, þar
sem farið er ítarlega í vélbúnað, jaðartæki,
virkni þerra og hvað á að gera þegar eitthvað fer
úrskeiðis. Hins vegar er það stýrikerfi, virkni
þeirra og vinnsla.
Forkröfur
Tímar
Hefst:
Lengd
Verð MCP A+
Verð MCP braut:
Verð A+ braut:
:
Almenn tölvuþekking, enskukunnátta.
: Þri & fim, 17:30 - 21:30
23. október
: 120 stundir
: 158.000,-
98.000,-
98.000,-
Bíddu nú aðeins! Ég er fullorðinn
maður, og ég hoppa um í frumskóg-
inum í aðskornum náttfötum! Hvað
er ég eiginlega að PÆLA??
Milljón í
Leifsstöð
FLUG Meira en milljón farþegar
hafa farið um Leifsstöð það sem
af er árinu. Lætur nærri að það
sé fjórfaldur fjöldi landsmanna.
Aukningin frá fyrra ári er tíu
prósent en þá fóru 987 þúsund
farþega um Leifsstöð á sama
tímabili. Nú eru þeir orðnir ein
milljón og 84 þúsund.
Í september voru farþegar
sem fóru um Leifsstöð 15 pró-
sentum fleiri en í sama mánuði i
fyrra og vegur þar þyngst fjöldi
farþegar til og frá Íslandi. Far-
þegum sem millilenda hefur
hins vegar fækkað um fimm
prósent. ■
Fyrsti alvöru kossinn var áskólaballi í Langholtsskóla þar
sem var úrval af sætum stelpum,“
segir Ármann Reynisson, fram-
kvæmdamaður og rithöfundur.
„Böllin í skólanum voru haldin í
skemmtilegu risi sem var yfir
skólanum og þarna náði ég mínum
fyrsta kossi í vangadansi rétt áður
en siðgæðisverðirnir komu og
stíuðu okkur í sundur eins og þá
tíðkaðist. Þetta eru jákvæðar end-
urminningar sem verma hjartað
en konan sem ég kyssti býr nú í
annarri heimsálfu þannig að það
eru höf sem aðskilja okkur.“ ■
Lausn. Lárétt: 1hver, 5eir, 6sa,7rl,8
bál,9rot,10an,12rum,14tóm,16ró,
17rauf, 19næli.
Lóðrétt: 1herðatré,2vil,3er, 4kal,6
sátur, 8bor, 11nóa,13móri,15mun,18
fæ.
Þetta er frumsýning og ég ætl-aði aldrei að þora þessu, „segir
Kristján H. Magnússon sem opn-
að hefur málverkasýningu í Vest-
urbæjarlauginni en þar starfar
Kristján sem sundlaugarvörður.
„Ég óskaði eftir leyfi til að fá að
hengja myndirnar hér upp í viku-
tíma en framkvæmdastjórinn
sagði að þær mættu vera fram til
áramóta. Ég er mjög ánægður
með þetta og hef fengið góða
dóma sundlaugargesta. Bæði
Guðni Ágústsson landbúnaðarráð-
herra og Jón Kristjánsson heil-
brigðisráðherra hafa séð mynd-
irnar og voru ánægðir,“ segir
Kristján sem nam málaralist í
Myndlistarskóla Kópavogs vetur-
inn 1996. Þar segist hann hafa
lært litsamsetningu og fjarvídd.
Hann málar aðallega landslag og
hús og segist þurfa að komast
reglulega í penslana til að fá út-
rás:
„Ég hef aldrei selt mynd - bara
gefið þær en nú verður kannski
breyting á. Hingað koma margir
og þeir hafa oftar en ekki vit á
þessum hlutum,“ segir Kristján
sem er frumlegur í hugsun og
þekktur uppfinningamaður. Fann
hann meðal annars upp neyðar-
nótina Hjálp sem ætluð er til að
bjarga drukknandi sjómönnum úr
hafi. Er verið að vinna að mark-
aðssetningu neyðarnótarinnar og
útlitið ágætt:
„Starf mitt hér er skylt því hér
á ég að passa upp á að fólk
drukkni ekki og bjarga því ef þan-
nig stendur á. Svo þarf að halda
öllu hreinu. Þetta er ágætt,“ segir
Kristján sundlaugarvörður í Vest-
urbæjarlauginni. ■
ÞURÍÐUR BACKMAN
Hæstvirtur, virðulegi eða
bara frú forseti.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
A
LÓ
A
Sundlaugarvörður
með málverkasýningu
Sundlaugar
KRISTJÁN H. MAGNÚSSON
■ Hefur opnað málverkasýningu í Vest-
urbæjarlauginni. Bæði landbúnaðarráð-
herra og heilbrigðisráðherra hafa skoðað
sýninguna og voru hrifnir.
KRISTJÁN Á
SUNDLAUGAR-
BAKKANUM
Málar til að fá útrás.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
A
LÓ
A