Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.10.2003, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 24.10.2003, Qupperneq 12
12 24. október 2003 FÖSTUDAGUR SKILNAÐARBRÉFIÐ Handritasérfræðingur hjá Christie’s í London rýnir hér í bréf sem Hinrik VIII Englandskonungur skrifaði vegna skilnaðar við eiginkonu sína, Katrínu. Bréfið verður selt á uppboði hjá Christie’s í byrjun des- ember og vonast uppboðshaldarar til að fá rúmar tvær milljónir króna fyrir það. Kynþáttahatur innan bresku lögreglunnar: Lögreglumaður með Ku Klux Klan grímu BRETLAND Einn lögreglumaður hef- ur sagt af sér og sjö aðrir hafa verið leystir tímabundið frá störf- um í kjölfar nýrrar heimildar- myndar sem sviptir hulunni af kynþáttahatri innan bresku lög- reglunnar. Í myndinni, sem sýnd var í bres- ka ríkissjónvarpinu BBC, sést vels- ki lögreglumaðurinn Robert Pull- ing með Ku Klux Klan hettu á höfði í æfingabúðum lögreglunnar. Mark Daly, blaðamaður BBC, sem var með falda myndavél í búðunum, fékk Pulling til að viðurkenna að hann væri kynþáttahatari, styddi breska þjóðernisflokkinn og að- hylltist hugmyndir Aldolfs Hitlers. Sjö aðrir lögreglumenn láta einnig falla ósæmandi ummæli í mynd- inni. Lögregluyfirvöld í Bretlandi hafa fordæmt hegðun mannanna og heitið að beita sér fyrir því að kynþáttahatri innan lögreglunnar verði útrýmt. Daly hefur þó verið gagnrýndur fyrir að hafa ekki greint lögreglunni frá innihaldi myndarinnar áður en hún var sýnd almenningi. David Blunkett, innanríkisráð- herra Breta, sendi frá sér yfirlýs- ingu eftir sýningu myndarinnar þar sem hann sagði að kynþáttahatur væri skelfilegt og lagði til að lög- reglumenn yrðu þjálfaðir betur. ■ Fæ engan rökstuðning STJÓRNMÁL „Ég hef enn ekki feng- ið rökstuðning fyrir því að grípa til þessara aðgerða. Meðan svo er þá get ég ekki fallist á þessar breytingar á atvinnuleysibóta- rétti,“ segir Krist- inn H. Gunnars- son, alþingismaður Framsóknarflokks, sem leggst að óbreyttu gegn nokkrum atriðum fjárlagafrumvarpsins. Kristinn hefur athugasemdir varðandi skerðingu á réttindum til at- vinnuleysisbóta og spurði fjár- málaráðherra „í allri vinsemd“ um þau áform sem fram koma í fjárlagafrumvarpinu. „Eru menn að segja að fólk sem er atvinnulaust sé að ofnota kerfið? Er þetta sett á til þess að koma í veg fyrir einhverja mis- notkun? Ég hef engan heyrt tala um það, hvorki úr stjórnarliðinu né annars staðar að það væri ein- hver misnotkun í gangi á at- vinnuleysisbótum. Mér finnst að menn geti ekki sett svona fram í fjárlagafrumvarpi án þess að færa fyrir því boðleg rök,“ sagði Kristinn í þingræðu. „Ég tala auðvitað sem félags- hyggjumaður vegna þess að ég er það og minn flokkur skilgreinir sig sem félagshyggjuflokk. Ég hef aldrei séð það fyrir mér að félagshyggjuflokkur teldi það vera eitt af brýnustu verkefnum stjórnmála dagsins að taka af mönnum rétt til atvinnuleysis- bóta. Það er eitthvað nýtt sem ég hef aldrei heyrt,“ sagði Kristinn. Hann hefur líka athugasemdir við áform um að lækka stofn til vaxtabóta úr sjö prósentum niður í 5,6 prósent og fellst ekki á þau rök sem fram koma í fjárlaga- frumvarpinu að þetta sé gert vegna lækkunar raunvaxta. „Hafi raunvextir lækkað kem- ur það fram hjá ríkissjóði með lægri vaxtabótum. En þeir sem tóku skuldirnar sínar eins og hús- bréf á sínum tíma sitja uppi með sína raunvexti og þeir breytast ekki,“ segir Kristinn. „Hvað vakir fyrir mönnum að hækka komugjöld á heilsu- gæslustöðvar um hundraðkall og ná þar fram nokkrum tugum milljónum, kannski 40–50 millj- ónum króna? Það er innan við eitt prósent af kostnaði við að reka heilsugæslustöðvarnar,“ segir Kristinn H. Geir Haarde fjármálaráð- herra vísaði á heilbrigðisráð- herra og félagsmálaráðherra til að svara þingmanninum, sem reyndar er flokksbróðir þeirra beggja. Kristinn segist enn ekki hafa fengið nein svör og að óbreyttu muni hann því leggjast gegn þessum atriðum. rt@frettabladid.is ■ Eru menn að segja að fólk sem er atvinnu- laust sé að of- nota kerfið? BRESKIR LÖGREGLUMENN Lögregluyfirvöld í Bretlandi heita því að uppræta kynþáttahatur innan lögreglunnar. Kristinn H. Gunnarsson krefur fjármálaráð- herra svara vegna hærri komugjalda og skerð- ingu vaxtabóta og réttinda atvinnulausra. KRISTINN H. GUNNARSSON Lýsir andstöðu við einstaka liði fjárlagafrumvarpsins. Litla-Hraun: Hassmál í rannsókn FÍKNIEFNI Um 50 grömm af hassi fundust í klefa refsifanga á Litla- Hrauni í síðustu viku. „Við erum búnir að yfirheyra fangann. Nú bíðum við eftir niðurstöðum frá tæknideild lögreglunnar í Reykjavík um nákvæmt magn efnisins,“ segir Jón Hlöðver Hrafnsson hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi. Ætla má að hassið hafi verið ætlað til sölu og dreifingar miðað við það magn sem fannst. Málið er enn í rann- sókn. ■ VIÐSKIPTI Þórólfur Gíslason, kaup- félagsstjóri Kaupfélags Skagfirð- inga, eins helsta keppninauts Ferskra afurða sem nú rambar á barmi gjaldþrots, segist alls ekki hafa beitt sér á nokkurn hátt gegn fyrirtækinu. Héraðsdómur Norðurlands ves- tra féllst á þriðjudaginn á kröfu Kaupþings-Búnaðarbanka um að greiðslustöðvun Ferskra afurða yrði ekki framlengd. Djúpstæður ágreiningur er milli bankans og fyrirtækisins og hefur verið ýjað að því að Þórólfur, sem sat í banka- ráði Búnaðarbankans um tíma, hafi beitt sér eitthvað í málinu. „Mér þykir mjög miður að menn skuli leggjast svo lágt að kenna einhverjum öðrum um sínar ófarir,“ segir Þórólfur. „Ég hef ekki neinn þátt í þessu máli.“ ■ Fjárhagsvandræði Ferskra afurða: Þórólfur sver af sér sakir

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.