Fréttablaðið - 03.11.2003, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 03.11.2003, Blaðsíða 13
setinn ágætlega unað við einkunn- ina sem hann fær hjá almenningi í könnuninni. Að auki hafi enn ekki orðið vart þeirrar reiði meðal kjósenda sem leiddi til þess að George Bush eldri tapaði forseta- kosningunum 1992.  13MÁNUDAGUR 3. nóvember 2003 Kvótadómur: Viðbragða mátti vænta STJÓRNMÁL Guðjón Arnar Kristjáns- son, formaður Frjálslynda flokks- ins, segir ekki hægt að mæla því bót að menn brjóti lög á þann veg sem fimm menn voru dæmdir fyr- ir í Héraðsdómi Vesturlands. „Þeir gerðu út í margar vikur án þess að hafa heimildir, þannig að miðað við okkar lög um kvóta- kerfi mátti búast við að það yrðu viðbrögð við því,“ segir Guðjón. „Staðreyndin er auðvitað sú að það er búið að læsa öllum tegund- um í kvóta og þeir sem eru að baksa við að koma sér fyrir í út- gerð eiga sér varla viðreisnar von,“ segir hann.  STJÓRNMÁL Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, seg- ist telja að það sé breiður vilji inn- an flokksins að skoða hugmyndir um að beita markaðslausnum til þess að gera heilbrigðiskerfið skil- virkara og hagkvæmara. Í ræðu sinni við setningu landsþings Samfylkingarinnar í fyrradag sagði Össur að næsta pólitíska stórverkefni Samfylk- ingarinnar væri stefnumótun á sviði heilbrigðismála. Nauðsyn- legt væri að láta markaðslögmál- in vinna í þágu markmiða jafnað- arstefnunnar í þessum mála- flokki. „Ég er alveg viss um það að til að byrja með verður ákveðinn ótti við að ráðast í breytingar á heil- brigðiskerfinu,“ segir Össur. „Þetta er mjög viðkvæmt svið og mikilvægt. Ég er að tala um hæg- fara umbætur sem leiða að lokum til þess að við gætum virkjað markaðslausnir til að fá meira út úr því fjármagni sem veitt er í heilbrigðismál og til að geta veitt þegnunum betri þjónustu.“ Aðspurður hvort hugmyndir um að beita markaðslausnum í þessum hluta velferðarkerfisins samræmd- ist jafnréttishugsjóninni segir Öss- ur: „Við erum ekki að tala um einkavæðingu. Við erum markaðs- sinnaður flokkur og þetta er eitt af því sem er í umræðu mjög víða og við Íslendingar verðum að hafa kjark til þess að skoða þetta. Eng- inn flokkur hefur haft þor til að setja þetta mál á dagskrá með þess- um hætti og við erum að stíga fram fyrir skjöldu. Þetta eru auðvitað djarfar og róttækar hugmyndir.“  HERMENN VIÐ BRAK ÞYRLUNNAR Bandarískir hermenn sjást hér bera á brott særðan eða látinn hermann úr braki þyrl- unnar sem skotin var niður í gær. L. PAUL BREMER Degi eftir að L. Paul Bremer lýsti því yfir að stefnt væri að því að afhenda Írökum völd- in í landi sínu fyrr en ætlað hefði verið, átti næstmannskæðasta árás á bandaríska her- menn frá upphafi stríðsins sér stað. ENN ÁTÖK Í BAGDAD hersveita og Íraka í vesturhluta Bagdad tvisvar á æðinu sögðu að átökin í gær hefðu hafist eftir að yrirskipuðu fólki að fjarlægja trúarleg veggspjöld. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Samfylkingin ræðir markaðslausnir í heilbrigðiskerfinu: Markaðsvæðing ekki einkavæðing ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Össur segist alveg viss um að til að byrja með verði ákveðinn ótti við að ráðast í breyting- ar á heilbrigðiskerfinu.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.