Fréttablaðið - 30.11.2003, Page 24

Fréttablaðið - 30.11.2003, Page 24
NNUDAGUR 30. nóvember 2003 23 Hrafn Gunnlaugsson segir hér frá tilurð myndar- innar Opinberunar Hannesar. Þar kemur meðal annars fram að höfnun Kvikmyndasjóðs í tvígang varð til þess að tugir milljóna frá útlöndum töpuð- ust úr framleiðslunni. Milli Matthildar og Óðalsins Hrafn Gunnlaugsson segir hér frá langri og nokkuð strembinnimeðgöngu Opinberunar Hannesar: „Upphaflega stóð til að þetta yrði sjónvarpsmynd. Lars Sätström hjá sænska sjónvarpinu í Málmey spurði mig hvort það væri eitt- hvað sem ég vildi vinna fyrir sjónvarp í Svíþjóð. Ég sagði honum að þessum Vermalandsferðum mínum til útlanda væri lokið. Ég vildi heldur vinna heima og hefði ekki mikið að segja Svíum. En sagði honum að gamall æskuvinur minn hefði gefið mér smá- sagnasafn og þar væri saga sem ég væri að velta því fyr- ir mér að skrifa handrit upp úr, en ekki komið í verk. Ég hefði leyfi frá höfundinum til að vinna algerlega frjálst upp úr sögunni. Lars spurði hvort ég gæti útvegað sér söguna á ensku eða sænsku. Þá var verið að þýða bókina vegna þess að það átti að gefa hana út í Þýskalandi. Ég sendi honum þessa sögu: Glæpur skekur Húsnæðis- stofnun. Hann gerði í kjölfar- ið samning við mig um að ég skrifaði handritið fyrir sænska sjónvarpið. Það er því borgað af sænska sjónvarpinu. Svo fór hugmyndin að fá einhverja aðra vídd. Ég áttaði mig á að í tölv- unni sem var stolið var gagnabanki. Hugmyndin vex eins og kóral- rif. Handritið orðið stærra og meira en mig grunaði. Þetta er fyrir fjórum árum. Loks þegar ég sendi Lars handritið segir hann: Þetta er ekki sjónvarpsmynd. Þetta er bíómynd og ég skal hjálpa þér að fjármagna hana sem slíka. Hann kynnir þetta fyrir hinum norrænu sjónvarpstöðvunum, sem hoppuðu á þessa hugmynd. Ég var kominn með um 80 milljónir erlends fjármagns í myndina. Þá sæki ég um til Kvikmyndasjóðs, ekki um vilyrði eða þróunarstyrk eins og nú er í tísku heldur það sem upp á vantaði, og ætlaði að fara beint í fram- leiðslu. Þá var kostnaðaráætlun upp á rúmar 120 milljónir og til stóð að skjóta í stúdíói og gera þetta að stórri og mikilli mynd. Þarna höfðu dramatúrgar á fimm erlendum sjónvarpsstöðvum lesið hand- ritið og gefið grænt ljós á það. En þegar það kom til umfjöllunar út- hlutunarnefndar Kvikmyndasjóðs voru þar ofurhugar sem höfnuðu handritinu. Ég fékk neitun í tvígang í röð. Þegar hér var komið sögu höfðu orðið mannabreytingar á sjónvarpsstöðvunum og menn vita hvernig það er þegar sami graut- urinn er hitaður upp aftur og aft- ur... fyrir bragðið missti ég út bæði Dani og Norðmenn. En Finnarnir héldu áfram að vera með og Svíarnir að hluta til, sem og íslenska sjónvarpið. Útilokað var að gera þá mynd sem ég ætl- aði mér upphaflega að gera. Nú vil ég ekki gera neinum manni upp að gæði ráði ekki ferðinni, umfram einhverjar pólitískar meiningar. En auðvitað veltir maður því fyrir sér. Þegar er- lendir aðilar meta söguna mjög frambærilegt verk óháð því hverjir standa á bak við hana. Örugglega hefur það ekki hjálpað verkinu að hugmyndin er byggð á smásögu eftir þennan æskuvin minn sem vill til að varð síðar forsætisráðherra og er forsætisráðherra með mikl- um glæsibrag. En þegar búið var að hafna þessu í tvígang stóð ég frammi fyrir því að leggja þetta frá mér eða finna einhverja aðra leið. Þetta er sennilega svona eins og að vera kominn langt fram yfir eðlilegan meðgöngutíma gangi maður með barn. En það deilir eng- inn við dómarann og maður reynir að taka þessu með jafnaðargeði. En hvernig gæti ég þrátt fyrir allt gert þessa mynd? Ég fór í að skera verkið niður og breyta allri upptökunni. Prufa eitthvað alveg nýtt. Oft getur verið gott fyrir listamann að neyðast til að endurnýja sig. Ég ákvað að skjóta þetta ekkert ólíkt því hvernig dogmamynd- irnar hafa verið skotnar. Þrátt fyrir það skorti mig fé. Bók Davíðs Oddssonar, Nokkrir góðir dagar án Guðnýjar, var að koma út í Þýska- landi og hafði fengið mjög góða dóma. Ég leitaði því kaupanda að Þýskalandsréttinum. Þar opnaðist möguleiki. Rétturinn á smásög- unni var kominn í hendurnar á þessu nýja forlagi sem Björgólfur Guðmundsson og hans menn höfðu tekið yfir. Það eru ofsögur að ég hafi verið styrktur af Björgólfi heldur seldi ég honum Þýskalandsréttinn fyrir fram og vonandi á það eftir að skila sér vel til hans. Þetta varð til að sparka mér í gang. Ég fór ekkert ólíka leið og ég gerði með Óðal feðranna á sínum tíma. Ég valdi leikara með tilliti til karakter- anna í sögunni þannig að hægt væri að vinna þetta án gerva, sminks og búninga. Að vera með óvana leikara þýddi miklar æf- ingar. Sem hefur í för með sér miklu meiri vinnu fyrir leikstjór- ann. En ég var svo heppinn að Viðar Víkingsson, sem er leikstjóri sjálfur, fer með aðalhlutverkið. Og hann þekkir og hefur fullan skilning á vinnsluferlinu og það hjálpaði mikið. Ég fór í grasrótina aftur. Vinnslan ekkert ólík Óðali feðranna og andinn í handritinu af sama toga og í Útvarpi Matthildi á sínum tíma. Sem passar vel því þarna eru saman komnir tveir þriðju af Þórði Breiðfjörð, sem stóð á bak við Matthildi.“ ■ nski bréf þar sem þér er hótað ægilegum aðgerðum stjórn- da ef þú svarar ekki innan 15 ga. Svo getur þessi andlitslausa fnun dregið það mánuðum man að svara þér. Ég hef yggjur af því að hér sé að vaxa p vísir að alræðis- og eftirlits- ðfélagi þar sem andlitslausar fnanir ráðskast með líf okkar meir.“ Hrafn segir þetta sjálfsprottið mur en að hægt sé að benda á stri eða hægri í pólitík. „Þetta ðist koma innan úr kerfinu lfu. Hér má kenna fréttamönn- um að einhverju leyti. Varla ist nokkuð án þess að þeir rji: Er nóg eftirlit? Hefur hið nbera brugðist? Vantar ekki rari reglur? Þarf ekki að herða gjöfina? Eru refsingar nógar að hræða fólk til hlýðni? Það er s og sé að vaxa upp andrúm sem menn hafa oftrú á boðum bönnum. Ég sá þetta frumvarp vændi sem er í þinginu. Er gt að setja löggjöf um mann- a hegðun? Er hægt að stýra nnlegu eðli með boðum og num? Hvað er refsivert? Ef þú ur konu út að borða og hún fer heim með þér... er það vændi? ar eru mörkin? Ég held að það þurfi að vera gu skýrt að harðar refsingar viðhafðar gegn þriðja aðila, umöngurum og þeim sem mis- a aðra. En hvað tveir fullorðn- einstaklingar gera og hvernig þeir semja sín á milli um sín við- skipti kemur ekki nokkrum manni við og allra síst ríkinu eða stjórn- valdinu.“ Menn verði að ganga með trefil Þessi tilhneiging gegnsýrir allt þjóðfélagið, segir Hrafn. „Ég hef verið að velta fyrir mér hvenær við setjum lög um skyldunotkun skjólfatnaðar. Ef við setjum slík lög sem fjalla til dæmis um að við 4 stiga frost verði allir að ganga með trefil. Lögreglunni verði falið að stöðva vegfarendur og at- huga hvort þeir séu með trefil. Síðan myndi umræðan ekki fara út í það hvort það sé rétt eða rangt að hafa skyldunotkun skjólfatnaðar, heldur hvort miða beri við fjögurra eða fimm gráðu frost. Sennilega myndi umræðan enda þar.“ Hrafn segir að spurningin um réttmæti þess að lögskylda fólk til að nota skjólfatnað kæmi senni- lega aldrei fram. Varðsveit Björns Bjarnasonar „Nákvæmlega eins og þegar allt lögregluvald í landinu var sameinað undir ríkislögreglu- stjóra. Þó ég hafi ekki nema gott eitt um hann að segja persónulega þá er þetta spurning um hversu mikla miðstýringu við ætlum að gera á valdinu. Hvort við séum að búa til vísi að alræðislögreglu? Hvaða tryggingu höfum við fyrir því að yfirmaður þarna verði alltaf líkur þeim ágæta manni sem er þar í dag?“ Og hugmyndir Björns Bjarna- sonar um þjóðvarðlið hugnast Hrafni illa. „Hvað gerist einn daginn ef þetta þjóðvarðlið lendir undir stjórn manns sem ekki kann fótum sínum forráð og fer að beita því á okkur sjálf? Og hvað gerist svo ef við ætlum að leggja það niður einn daginn? Hverjir missa þá atvinnuna? Hvaða stofnun erum við búin að búa til? Þess vegna er svo hættu- legt að búa til einhverjar stofnan- ir sem fara síðan að lifa sínu eig- in lífi og taka völdin. Við sjáum bara í skáldsögunni Félaga Napól- eon eftir Orwell að um leið og búin er til lítil hundavarðsveit koma alltaf upp hugmyndir um meira og meira sem endar með því að hundavarðsveitin tekur yfir.“ Að eltast við borgunarmenn Eitt atvik sem myndin sækir yrkisefni í er að brotist var ítrekað inn í sumarbústað foreldra Hrafns. „Slag í slag, árum saman, var þar allt lagt í rúst. Í þrígang fengum við lögreglu á staðinn, það voru gerðar skýrslur og eitthvað reynt að gera í málinu. Eitt sinn stóð ágætur lögreglumaður inni á miðju gólfi og sagði við mig: Ann- ars er nú lítið gagn í að hafa uppi á þessum mönnum því sjaldnast eru þeir borgunarmenn fyrir þeim skaða sem þeir valda. Þetta hefur ekki upplýstst og ég hef á tilfinn- ingunni að lítið hafi verið gert í málinu. Á sama tíma er verið að stoppa okkur smáborgarana fyrir að keyra 10 km of hratt og orkunni eytt í það. Ég vona að það sé ekki bara vegna þess að við erum borg- unarmenn fyrir sektinni.“ Hrafn hyggur nú í auknum mæli á að snúa sér að skriftum og læra kínversku. Hann ætlar til Kína og hyggst dvelja þar í eitt ár við kínverskunám. Jafnvel skrifa handrit fyrir aðra leikstjóra. Hann segir svo gríðarlegt fyrir- tæki að ræsa þá miklu maskínu sem kvikmyndaupptökur eru. Hrafn óar við því og segir það nánast handverk þegar hugmynd- in liggur fyrir. „Ég á reyndar eft- ir að gera unglingamynd. Jú, ætli það séu ekki einhverjar einar þrjár myndir einhvers staðar inni í hausnum á mér.“ jakob@frettabladid.is Á LAUGARNESTANGA Heimili hans á Laugarnestanga hefur verið líkt við laup hrafnsins. Hrafn stefnir nú til Kína, hyggur á árs dvöl og vill nema kínversku. Örugglega hefur það ekki hjálpað verkinu að hugmyndin er byggð á smásögu eftir þennan æskuvin minn sem vill til að varð forsætisráðherra og er forsætisráðherra með miklum glæsibrag. ,, Óðal feðranna verður til af því að hafði verið sjálfur í sveit. sýn byggir á reynslu nni. Ég sá hvernig menn ru að flosna upp og ernig menn bjuggu enn á yggilegum stöðum miðað nútíma tækni. gmyndin er sótt í svipaða ynslu. Ég hef sjálfur lent í su í samskiptum við rfið og oft hugsað: Þetta ta ég í bíómynd einn ginn. ,, HRAFN GUNNLAUGSSON Hefur verið forspár og sér nú fyrir sér fram- tíðarríki í viðjum eftirlits og leyfisveitinga í nýjustu mynd sinni. Andlitslausar stofnanir ráðskast með líf okkar, segir hann. DAVÍÐ ODDSSON Höfundur sögunnar Glæpur skekur húsnæð- isstofnun, en Hrafn byggir á henni í Opinber- un Hannesar. Hrafn staðsetur mynd sína í höfundarverkinu einhvers staðar milli Óðals feðranna og útvarpsþáttanna Matthildar. FILMÓGRAFÍA HRAFNS 1. Lilja (1976) 2. Blóðrautt sólarlag (1978) 3. Vandarhögg (1980) 4. Óðal feðranna (1981) 5. Okkar á milli (1982) 6. Hrafninn flýgur (1984) 7. Í skugga hrafnsins (1988) 8. Hvíti víkingurinn (1991) 9. Hin helgu vé (1993) 10.Allt gott (1994) mynd eftir sögu Davíðs Oddssonar 11.Þegar það gerist (1998) (Sjónvarp) 12.Myrkrahöfðinginn (2000) 13.Reykjavík í öðru ljósi (2000) 14. Ísland í öðru ljósi (2003) 15.Opinberun Hannesar (2003)

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.