Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.11.2003, Qupperneq 41

Fréttablaðið - 30.11.2003, Qupperneq 41
LEIKIR  10.00 Keppni í 1. deild karla á Í landsmótinu í innanhússfót- bolta, úrslit í Laugardalshöll.  10.00 Keppni í 4. deild karla Ís- landsmótinu í innanhússfót- bolta hefst í Austurbergi.  11.40 Keppni í 1. deild kvenna landsmótinu í innanhússfót- bolta, úrslit í Laugardalshöll.  16.00 Ármann/Þróttur leikur vi Þór Þorlákshöfn í Laugardalsh í Bikarkeppni KKÍ&Lýsingar í körfubolta karla.  17.00 Stjarnan og HK keppa í Garðabæ í suðurriðli RE/MAX- deildar karla í handbolta.  18.00 Þór Ak. keppir við Tindas á Akureyri í Bikarkeppni KKÍ&Lý ingar í körfubolta karla.  18.00 Selfoss mætir KFÍ á Selfo í Bikarkeppni KKÍ&Lýsingar í körfubolta karla.  19.15 Stjarnan leikur við Snæfe Garðabæ í Bikarkeppni KKÍ&Lý ingar í körfubolta karla.  19.15 Skallagrímur og Hamar keppa í Borgarnesi í Bikarkepp KKÍ&Lýsingar í körfubolta karla SJÓNVARP  12.30 Boltinn með Guðna Berg Sýn. Umræðuþáttur um enska boltann.  12.40 Heimsmeistaramót ís- lenska hestsins á RÚV. Þáttur mótið sem fór fram í Danmörk  13.45 Enski boltinn á Sýn. Bein útsending frá leik Arsenal og F ham.  15.55 Enski boltinn á Sýn. Bein sending frá leik Chelsea og M Utd..  17.05 Markaregn á RÚV. Mörk helgarinnar í þýska boltanum.  18.00 NFL á Sýn. Bein útsendin frá leik St. Louis Rams og Minnesota Vikings.  21.50 Helgarsportið á RÚV. Far yfir helstu íþróttaviðburði helga innar. 40 30. nóvember 2003 SUNNUDAG MEIÐSLI Á MOULINEAUX Kona slasaðist illa á andliti þegar hún fékk flugeld í andlitið fyrir leik Wolves og Newcastle á Moulineaux-leikvanginum í Wolverhampton í gær. Fyrir leikinn fór fram flugeldasýning og skaust einn flug- eldanna upp í áhorfendapalla með þess- um afleiðingum. Knattspyrna hvað?hvar?hvenær? 27 28 29 30 1 2 NÓVEMBER Sunnudagur Þýska knattspyrnan í gær: Jafnt hjá fjórum efstu FÓTBOLTI Stuttgart heldur enn tveggja stiga forystu á Werder Bremen á toppi þýsku 1. deildar- innar í knattspyrnu þrátt fyrir markalaust jafntefli gegn Boch- um á útivelli í gær. Þrjú næstu lið á eftir Stuttgart, Werder Bremen, Bayer Leverkusen og Bayern München, gerðu einnig jafntefli í sínum leikjum. Bæjarar gerðu óvænt jafntefli gegn botnliði Kölnar, 2-2, á heima- velli þar sem perúski framherjinn Claudio Pizarro skoraði bæði mörk liðsins. Bayer Leverkusen komst í hann krappan gegn 1860 München á heimavelli. Leverku- sen lenti 2-0 undir en tókst að jafna metin með mörkum frá Brasilíumönnunum Robson og Lucio. Eintracht Frankfurt lenti einnig 2-0 undir gegn Wolfsburg en tókst með mikilli seiglu að jafna metin og komastsíðan yfir, 3-2, og tryggja sér þar með sigur og þrjú dýrmæt stig í botnbarátt- unni. Staða fjögurra efstu liðanna innbyrðis breyttist ekkert eins og gefur að skilja. Stuttgart er efst með 34 stig, Werder Bremen kem- ur næst með 32 stig, Bayer Leverkusen er í þriðja sæti með 31 stig og Bayern München í því fjórða með 28 stig. ■ Loks vann Leeds Bar sigurorð af Charlton á útivelli eftir fimm tapleiki í röð í deildinni. FÓTBOLTI Leeds, Aston Villa, Black- burn og Leicester unnu öll mikil- væga sigra í botnbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar í gær. Leeds, sem hefur verið mikið í fréttum undanfarið vegna slæmr- ar fjárhagsstöðu og lélegrar spila- mennsku, bar sigurorð af Charlton, 1-0, og var það fyrsti sigur liðsins í sex deildarleikjum og jafnframt sá fyrsti undir stjórn Eddie Gray. Táningurinn James Milner skoraði sigurmarkið í upp- hafi leiks og þótt Leeds sé enn á botni deildarinnar þá gefur sigur- inn félaginu byr undir báða vængi. Framherjinn Dion Dublin tryggði Aston Villa afskaplega mikilvægan sigur á Southampton með marki rétt undir lok fyrri hálfleiks. Með sigrinum tókst Aston Villa að hífa sig af botni deildarinnar um stundarsakir að minnsta kosti en Southampton hefur nú leikið fjóra leiki í röð án þess að fara með sigur af hólmi. Gott gengi Leicester heldur áfram en liðið vann sinn þriðja sigur í síðustu fjórum leikjum þegar það bar sigurorð af Portsmouth á útivelli, 2-0. Leicester komst upp í tólfta sæti deildarinnar með sigrinum. Gamla brýnið Les Ferdinand skoraði sitt fimmta mark í úrvals- deildinni á þessu tímabili og fé- lagi hans í framlínu Leicester, Marcus Bent, skoraði síðara markið. Slóvakinn Vratislav Gresko reyndist bjargvættur Blackburn gegn Tottenham. Hann skoraði sigurmark liðsins þegar tólf mín- útur voru til leiksloka og er liðið komið úr fallsæti í fyrsta sinn í langan tíma. Jóhannes Karl Guðjónsson var næstum því búinn að tryggja Wolves sigur gegn Newcastle en aukaspyrna hans undir blálokin hafnaði í utanverðri stöng Newcastle-marksins. Þar með endaði leikurinn með jafntefli og geta leikmenn Wolves nagað sig í handarbökin fyrir að fara illa með góð færi í leiknum. Dapurt gengi Everton heldur áfram en liðið beið lægri hlut fyr- ir Bolton, 2-0, á Reebok-leikvang- inum. Leikmenn Everton sáu aldrei til sólar í leiknum og var sigur Bolton-liðsins í þessum leik sanngjarn og fyllilega verðskuld- aður. ■ Logi á leið til Þýskaland Semur við Lemgo HANDBOLTI Það er loks orðið lj að handknattleiksmaðurinn L Geirsson, sem spilar með FH RE/MAX-deildinni, leikur m þýska stórliðinu Lemgo á næ tímabili en forráðamenn félags hafa haft Loga í sigtinu í lang tíma. Logi, sem er 21 árs, hitti f ráðamenn félagsins fyrir helgi fór með þriggja ára samning he í farteskinu sem væntanle verður skrifað undir í næstu vi Logi mun klára tímabilið m FH-ingum og halda utan næ sumar þar sem hann hittir tilv andi félaga sína. ■ LOGI GEIRSSON Skrifar undir þriggja ára samning við Lemgo í vikunni. JAMES MILNER Hinn ungi James Milner fagnar hér sigurmarki sínu fyrir Leeds gegn Charlton í ensku úr- valsdeildinni í gær. ENSKA ÚRVALSDEILDIN Wolves-Newcastle 1-1 1-0 Nathan Blake (27.), 1-1 Alan Shearer (31.). Aston Villa-Southampton 1-0 1-0 Dion Dublin (45.). Blackburn-Tottenham 1-0 1-0 Vratislav Gretsko (78.). Bolton-Everton 2-0 1-0 Per Frandsen (26.), 2-0 Youri Djorka- eff (46.). Charlton-Everton 0-1 0-1 James Milner (9.). Portsmouth-Leicester 0-2 0-1 Les Ferdinand (31.), 0-2 Marcus Bent (59.).

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.