Fréttablaðið - 13.12.2003, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 54
Leikhús 54
Myndlist 54
Íþróttir 50
Sjónvarp 56
LAUGARDAGUR
HANDBOLTAVEISLA Átta leikir fara
fram í RE/MAX-deildum karla og kvenna. Í
kvennaflokki mætast Stjarnan og Fram,
Fylkir/ÍR og Grótta/KR, FH-Valur og Víking-
ur-Haukar. Stjarnan tekur á móti Breiða-
bliki í karlaboltanum, HK á móti FH, Valur
á móti Þór og ÍBV fær Selfoss í heimsókn.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
NAPURT OG STREKKINGUR Í
BORGINNI Fremur svalt í veðri og lík-
lega slydda í borginni. Enn kaldara á morg-
un svo fólk verður að klæða sig vel við
jólainnkaupin. Sjá síðu 6
13. desember 2003 – 311. tölublað – 3. árgangur
RÆDDU VARN-
ARSAMSTARF
Halldór Ásgrímsson
utanríkisráðherra og
Douglas Feith, að-
stoðarvarnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, ræddu varnarsamstarf
ríkjanna í gær. Engin ákvörðun hefur verið
tekin um framtíð varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli. Sjá síðu 6
BRIM VERÐUR SELT Stjórn Eimskipa-
félagsins tók í gær ákvörðun um að selja
sjávarútvegshluta fyrirtækisins, Brim. Margir
hafa lýst áhuga á einstökum hlutum fyrir-
tækisins en engin tilboð borist enn sem
komið er. Sjá síðu 2
GENGU AF FUNDI Forystumenn út-
vegsmanna og sjómanna gengu af fundi í
sjávarútvegsnefnd þegar þeir komust að því
að fulltrúar smábátaeigenda voru líka á
fundinum. Þeir töldu sig ekki geta rætt
málið við þær aðstæður. Sjá síðu 2
HEIMAMENN ÓSÁTTIR Bankastjórn
Kaupþings Búnaðarbanka staðfesti kaup-
samning sem gerður var við Stökur á Akur-
eyri um sölu á sútunarverksmiðju Loðskinns
á Sauðárkróki. Verkalýðsleiðtogi á Sauðár-
króki segir söluna áfall en heimamenn geti
sjálfum sér um kennt. Sjá síðu 4
Ríkisútvarpið:
Ég fylgi rödd
Guðmundur Andri Thorsson talar
um tilurð þess að hann ákvað að
skrifa um síðustu sósíalistana í
bók sinni Náðarkraftur. SÍÐA 38
▲
Bækur:
Haukur Hauksson hættur
VÍTISENGLAR Níu manna hópur Vít-
isengla sem kom með flugi frá
Osló, auk tveggja Íslendinga í
vélhjólaklúbbnum Fáfni, var
stöðvaður í Leifsstöð í gær. Að
sögn Eyjólfs Kristjánssonar, hjá
sýslumannsembættinu á Kefla-
víkurflugvelli, eru Vítisenglarn-
ir grunaðir um að reyna að koma
á fót klúbbi hér á landi.
Annar Íslendinganna var
handtekinn og færður í fanga-
geymslur í Keflavík eftir að
hann neitaði með látum að sýna
skilríki. Eyjólfur segir hann
hugsanlega hafa nefbrotið einn
lögreglumanninn.
Skýrslur voru teknar af
mönnunum fram eftir kvöldi
sem voru síðan sendar Útlend-
ingastofnun til úrskurðar. Fast-
lega er gert ráð fyrir að stærst-
um hluta hópsins verði vísað frá
landi. ■
hver er hinn upprunalegi texti?
Gísli Sigurðsson:
▲
SÍÐUR 22-23
Jólasveinar
ganga um gólf
tekur stundum lagið
Addi Rokk:
▲
SÍÐA 62
Rokkaði fyrir
Ringo Starr
Opið til kl. 22 í kvöld
dagar
til jóla11
ÚRSAGNIR Þrátt fyrir kröftug mót-
mæli verkalýðsforkólfa og hótanir
um úrsagnir þeirra úr Samfylking-
unni stendur Guðmundur Árni Stef-
ánsson við frumvarp um breytingar
á eftirlaunaréttindum æðstu ráða-
manna ríkisins. Hann er eini þing-
maður Samfylkingarinnar sem styð-
ur málið. Búast má við átökum á
þingflokksfundi í morgunsárið.
„Ég er vanur því að fylgja þeim
málum sem ég flyt allt til enda og ég
geri það nú,“ segir Guðmundur Árni
og segist hafa skilning á því að fé-
lagar sínir þurfi meiri tíma til að
kynna sér málið. Hann segir frum-
varpið tryggja eðlilega endurnýjun
á Alþingi og í ráðherrastóli auk þess
að koma í veg fyrir að feitum emb-
ættum sé skammtað til stjórnmála-
manna sem séu að hætta á þingi.
„Mikill er máttur minn ef svo
er,“ segir hann aðspurður hvort
hann hafi áhyggjur af úrsögnum
verkalýðsforkólfa úr Samfylking-
unni vegna afstöðu sinnar. „Þeir
verða að taka sínar ákvarðanir. Ef
þeim finnst þetta mál vega svo
þungt að það skipi þeim í pólitísk-
ar fylkingar til frambúðar er það
þeirra ákvörðun.“
„Bréfið er farið, ég segi mig úr
Samfylkingunni og um leið segi ég
af mér öllum trúnaðarstörfum fyr-
ir flokkinn,“ segir Halldór Björns-
son, formaður Starfsgreinasam-
bandsins. Halldór hefur tekið virk-
an þátt í stjórnmálastarfi Samfylk-
ingarinnar og setið á framboðslist-
um fyrir flokkinn.
„Þetta er pólitískt dómgreindar-
leysi,“ sagði Kristján Gunnarsson,
formaður Verkalýðs- og sjómanna-
félags Keflavíkur, í gærkvöldi.
Hann segist ekki eiga samleið með
Samfylkingunni lengur þar sem
einn þingmanna flokksins styðji
frumvarpið umdeilda enn.
„Ég segi mig því úr flokknum og
læt af öllum trúnaðarstörfum fyrir
hann, verði ekki breyting á,“ sagði
Kristján, sem tók virkan þátt í
stofnun flokksins.
Fréttablaðinu er kunnugt um að
Signý Jóhannesdóttir, formaður
verkalýðsfélagsins Vöku á Siglu-
firði, hafi sent úrsagnarbréf.
Grétar Þorsteinsson, forseti
ASÍ, segir að koma verði í ljós
hvað hann gerir.
Verkalýðsleiðtogar sem starfað
hafa með stjórnarflokkunum voru
langt í frá ánægðir með eftirlauna-
frumvarpið en yfirlýsingar þeirra
voru hógværar.
„Ég hef ekki hugsað mér að segja
mig úr flokknum, ekki að sinni. Ég
er nýbúinn að standa í miklu stappi
innan flokksins vegna skerðingar
atvinnuleysisbóta og þar náðist ár-
angur,“ sagði Björn Snæbjörnsson,
formaður verkalýðsfélagsins Ein-
ingar-Iðju og fulltrúi í miðstjórn Al-
þýðusambands Íslands. Björn skip-
aði sæti á framboðslista Framsókn-
arflokksins í Norðausturkjördæmi
fyrir síðustu alþingiskosningar.
the@frettabladid.is
brynjolfur@frettabladid.is
Sjá síðu 10
Fréttamaðurinn knái Haukur Hauksson
er hættur á Rás 2. Ástæðan er
ósamkomulag við yfirstjórnina.
▲
SÍÐA 18
Níu norskir Vítisenglar og tveir Íslendingar stöðvaðir:
Slegist við löggur í Leifsstöð
Afstaða Guðmundar
Árna flokknum dýr
Áhrifamenn úr verkalýðshreyfingunni hugsa sér til hreyfings úr Samfylkingunni vegna stuðn-
ings eins þingmanna flokksins við breytingar á eftirlaunaréttindum æðstu ráðamanna ríkisins.
Formaður Starfsgreinasambandsins hefur þegar sagt sig úr flokknum.
M
YN
D
/A
P
JÓLALJÓS Í AÞENU Grikkir eru farnir að huga að jólum og hafa tendrað jólaljós á Syntagma-torginu í miðborg Aþenu, fyrir framan
þinghúsið. Þau hátíðahöld sem borgin stendur fyrir í tilefni jóla hófust formlega í gær.
Meðallestur 25-49
Höfuðborgarsvæðið
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í okt. ‘03
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
IÐ
75%
56%
barþjónakeppni í finnlandi ● krydd
Hvað kemur í stað
jólarjúpunnar
matur o.fl.
Sigmar B. Hauksson:
▲
SÍÐA 38
lúsíuhátíðin ● jólalestin
Í jóla-
gírinn
jólin koma
Gosi:
▲
SÍÐUR 40-43
Sænsk jólahefð:
Kveiktu í
jólageit
SVÍÞJÓÐ, AP Skemmdarvargar
kveiktu í jólageit í sænska bænum
Gävle í gær og viðhéldu þar með
áralangri hefð.
Geitin er risastór, búin til úr
stráum og komið fyrir í aðdrag-
anda jóla. Þetta hefur verið gert í
nær 40 ár og á öllum þeim tíma
hafa aðeins tíu geitur enst fram
yfir jól og áramót. Öll hin árin hef-
ur verið kveikt í geitinni fyrir þann
tíma. Síðasta geitin sem prýddi
bæinn fram yfir jól án þess að vera
brennd af skemmdarvörgum var
sett upp fyrir jólin 1997.
Fæstir skemmdarvarganna hafa
náðst. 2001 varði 51 árs Bandaríkja-
maður 18 dögum í fangelsi fyrir að
kveikja í jólageitinni. ■
1 12.12.2003 21:50 Page 1