Fréttablaðið - 13.12.2003, Síða 16

Fréttablaðið - 13.12.2003, Síða 16
16 13. desember 2003 LAUGARDAG ■ Þetta gerðist 1843 Jóladraumur eftir Charles Dick ens kemur út. 1862 Um ellefu þúsund hermenn ú norðri láta lífið eða særast við Fredericksburg þegar samband herinn er sigraður af her uppreisnarmanna undir stjórn Robert E. Lee. 1913 Yfirvöld í Flórens á Ítalíu tilkyn að Móna Lísa sé komin aftur í leitirnar. Verkinu var stolið á Louvre-safninu í París tveimur árum áður. 1989 F.W. de Klerk, forseti Suður- Afríku, hittir Nelson Mandela í fyrsta sinn á skrifstofu forsetan Höfðaborg. 1991 Norður-Kórea og Suður-Kórea skrifa undir friðarsáttmála. 1995 Wei Jingsheng, einn mesti bar áttumaður fyrir lýðræði í Kína, dæmdur í fjórtán ára fangelsi t viðbótar við þau sextán ár sem hann hafði þegar setið inni. 4. flokki 1992 – 40. útdráttur 4. flokki 1994 – 33. útdráttur 2. flokki 1995 – 31. útdráttur 1. og 2. flokki 1998 – 22. útdráttur Frá og með 15. desember 2003 hefst innlausn á útdregnum húsbréfum í eftirtöldum flokkum: Innlausnarverðið er að finna í Morgunblaðinu laugardaginn 13. desember. Innlausn húsbréfa fer fram hjá Íbúðalánasjóði, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum. Innlausn húsbréfa STEVE BUSCEMI Leikarinn er fæddur þennan dag árið 1957. Hollenski siglingafræðingurinnAbel Tasman varð fyrstur Evr- ópubúa til að uppgötva eyjaklasa, sem seinna fékk nafnið Nýja-Sjá- land, þennan dag árið 1642. Tasman gerði misheppnaða til- raun til að stíga á land og létust nokkrir úr áhöfn hans þegar eyjar- skeggjar snérust til varnar. Eyjar- skeggjar töldu að lúðrablástur af skipi Tasman væri merki um árás áhafnarinnar. Nokkrum vikur áður hafði Tasm- an uppgötvaði Tasmaníu, við suð- austurströnd Ástralíu. Tasman nefn- di eyjuna upphaflega Van Diemens Land. En eins og Tasmaníuhaf, á milli Nýja-Sjálands og Ástralíu, var eyjunni gefið nafni Tasmanía til heiðurs landkönnuðinum. Nýja-Sjáland, sem var nefnt eft- ir hollenska héraðinu Sjálandi, laðaði ekki marga Evrópubúa til sín fyrr en seint á átjándu öld þegar skipstjórinn James Cook sigldi um svæðið og skrifaði ítarlega grein um eyjarnar. Trúboðar og menn í viðskiptahugleiðingum komu í kjöl- farið og árið 1840 innlimaði Bret- land eyjarnar. ■ ABEL TASMAN Uppgötvaði fyrstur Evrópumanna Tasman- íu og Nýja-Sjáland. Abel Tasman uppgötvar Nýja-Sjáland TASMAN UPPGÖTVAR NÝJA-SJÁLAND ■ Landkönnuðurinn Abel Tasman upp- götvar Nýja-Sjáland fyrstur Evrópubúa. 13. desember 1642 13. desember Pabbi vill sjá þig um jólin F é l a g á b y r g r a f e ð r a F e ð r a h e i l l Thymematernity Verslun fyrir barnshafandi konur Hlíðasmára 17, s. 575-4500 Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 11-18 Laugardaga frá kl. 11-16 Sendum í póstkröfu um allt land. Áttu von á barni? Jólasendingin komin! Menntun er mikilvæg Afmælið verður bara minni-háttar þetta árið, en það verður fjölskylduafmæli,“ segir Guðmundur Torfason, fyrrum atvinnumaður og landsliðsmað- ur í knattspyrnu og fótbolta- þjálfari, sem er 42 ára í dag. Hann er ekki sá eini í fjölskyld- unni sem á afmæli um þessar mundir, því sonur hans Nikulás Torfi verður fimm ára eftir tvo daga og dóttir hans Birna varð níu ára 7. desember. Það er mikið að gera hjá Guðmundi því hann er í miðjum prófum en hann er á öðru ári í Viðskipta- og hagfræðideild HÍ. Jafnframt rekur hann tvær verslanir með konu sinni Jak- obínu. Þess á milli sér hann svo um fótboltalýsingar á Stöð 2 og Sýn. Guðmundur stundaði at- vinnumennsku í fótbolta í rétt tæpan áratug, í Belgíu, Austur- ríki og Skotlandi, en mælir hann með þessu fyrir unga knatt- spyrnumenn? „Þetta er mjög erfitt, en þetta er líka góður skóli,“ svarar hann til. „Þetta er orðinn allt annar heimur núna en þegar ég var í þessu. Núna fylgja fjölmiðlar hverju fótspori þessara fótboltamanna.“ Að spila fótbolta erlendis er greini- lega ekki bara dans á rósum. „Þessu fylgja miklar fórnir, því maður er alltaf í burtu frá vin- um og fjölskyldu. Það er líka gífurleg samkeppni innan al liða og því fylgir gífurlegt ála segir afmælisbarnið. Guðmundur segir að þe hann hætti að þjálfa og sp hafi hann sett fjölskylduna o á oddinn en hann hefur ekki veg skilið við boltann því e sinni til tvisvar í viku hit knattspyrnuhópurinn „til hreyfa sig og sprikla aðein eins og hann orðar það. ■ 11.00 Jón Valgeir Ólafsson, áður Bú arstíg, Eyrarbakka, verður jarð- sunginn frá Eyrarbakkakirkju. 13.30 Helga Kristín Sigurðardóttir verður jarðsungin frá Dalvíkur- kirkju. 14.00 Magnús Helgi Þórðarson, loft skeytamaður, frá Vík í Mýrdal, verður jarðsunginn frá Víkurkir 14.00 Bára Jónsdóttir, frá Raftholti, verður jarðsungin frá Mart- einstungukirkju. 14.00 Gísli Helgason, Holtastíg 10, B ungarvík, verður jarðsunginn fr Hólskirkju í Bolungarvík. 14.00 Baldvin Grani Baldursson, fyr verandi bóndi og oddviti, Rang Köldukinn, verður jarðsunginn Þóroddsstaðarkirkju. 14.00 Ólafía Sigurðardóttir (Lóa), á Strembugötu 2, Vestmannaeyj verður jarðsungin frá Landakir í Vestmannaeyjum. 14.00 Hjalti Pétursson, fyrrum bónd Snotranesi, verður jarðsunginn Bakkagerðiskirkju. Ein saman í fyrsta sinn Ólöf Kolbrún Harðardóttirsópransöngkona og Jón Stef- ánsson, organisti og kórstjóri, halda tónleika í Langholtskirkju síðdegis í dag í tónleikaröðinni Blómin í garð- inum. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem þau tvö koma ein fram á tón- leikum saman þótt þau hafi starfað saman í Langholtskirkju í ein fjöru- tíu ár. „Já, við vorum allt í einu að upp- götva þetta,“ segir Jón. „Við erum búin að vinna rosalega mikið saman en þetta er mjög merkilegt.“ Ólöf Kolbrún var aðeins fjórtán ára þegar hún hóf að syngja í Kirkjukór Langholtssafnaðar. Nokkrum mánuðum síðar lék Jón fyrst á orgelið í kirkjunni og var svo fastráðinn þar stuttu síðar. Á tónleikunum flytja þau verk eftir Hugo Wolf, Bach og Peter Cornelius, allt efni sem er tengt að- ventu og jólum. „Við höfum flutt sumt af þessu í messum áður, en við erum búin að ganga með það í maganum í mörg ár að flytja nákvæmlega þetta pró- gramm á tónleikum,“ segir Jón. „Okkur finnst þetta svo falleg og jólaleg tónlist, en þessi tónleikaröð ýtti á eftir okkur að láta verða af þessu núna.“ Tónleikaröðin „Blómin í garðin- um“ er á vegum Kórs Langholts- kirkju og er haldin í tilefni af 50 ára afmæli kórsins nú í vetur. Allir söngvarar í þessari tónleikaröð eiga það sameiginlegt að hafa byrjað sinn söngferil í kórnum. ■ ■ Andlát ■ Jarðarfarir ■ Afmæli Jóna Rúna Kvaran miðill, 51 árs. Lísa Pálsdóttir útvarpskona, 50 ára. Lárus H. Grímsson hljómsveitarstjór 49 ára. Gestur Jónsson, frá Meltungu, lést fimmtudaginn 27. nóvember. Unnur Sigurlaug Gísladóttir lést mi vikudaginn 10. desember. Guðbjartur Ólafur Ólason, frá Bídlu Skipholti 6, Reykjavík, lést miðvikuda inn 10. desember. Karen Jóhannsdóttir, frá Skjaldfönn Blómvallagötu 13, lést mánudaginn desember. Bálför fór fram í kyrrþey. Björgvin Guðmundsson, Hlégerði 1 Kópavogi, lést þriðjudaginn 9. desem ber. GUÐMUNDUR TORFASON MEÐ BÖRNUM SÍNUM Er kominn í háskólanám og rekur tvær verslanir með konu sinni Jakobínu Afmæli GUÐMUNDUR TORFASON ■ fyrrum fótboltakappi er 42 ára í dag. Mælir með að strákar fari í atvinnu- mennsku erlendis en varar við að því fylgi gífurlegt álag. Tímamót ÓLÖF KOLBRÚN HARÐARDÓTTIR ■ sópran og Jón Stefánsson organisti hafa starfað saman í fjörutíu ár en aldrei komið ein saman fram á tónleikum – fyrr en í dag. ÓLÖF KOLBRÚN HARÐARDÓTTIR OG JÓN STEFÁNSSON Þau ætla að flytja tónlist tengda aðventu og jólum í Langholtskirkju í dag. Foreldrar Verjum tíma með börnunum okkar Hver stund er dýrmæt

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.