Fréttablaðið - 13.12.2003, Side 24
24 13. desember 2003 LAUGARDAG
s í m i 5 5 3 8 0 5 0 • w w w . e c c o . c o m
Þ Ú Á T T Þ A Ð S K I L I Ð !
Nova
23754-101
Walkathon
24314-101
Vefsvæðið Ljóð.is hefur starfað í rúm tvö ár og þar hefur safnast saman fjöldi
ljóða, bæði frá þjóð- og skúffuskáldum. Aðstandendur vefjarins hafa safnað sam-
an 101 úrvalsljóði af vefnum og gefið þau út á bók.
Sjö þúsund
rafræn ljóð
Þetta er þrælmassív ljóðabóksem gefur skemmtilegan þver-
skurð af ljóðapælingum lands-
manna,“ segir Davíð A. Stefáns-
son, einn ritstjóra ljóðabókarinn-
ar 101.ljóð.is. Öll ljóðin í bókinni
hafa áður birst á vefnum
www.ljod.is þar sem hverjum sem
er gefst tækifæri til að gera kveð-
skap sinn sýnilegan almenningi.
Ljóðavefurinn er rétt rúmlega
tveggja ára gamall og á þeim tíma
hafa safnast þar saman um sjö
þúsund ljóð.
„Það eru 101 eitt ljóð, eftir
jafnmörg skáld, í bókinni og þau
hafa öll verið ljóð dagsins á vefn-
um hjá okkur. Ljóðin áttu upphaf-
lega að vera hundrað en svo vor-
um við, hálfpartinn óvart, búin að
fá leyfi hjá hundrað og einu skáldi
þannig að það passaði bara mjög
vel að bæta einu ljóði við. Þetta
hljómar líka vel og svo er þetta
dálítið miðbæjarlegt verkefni.“
En hvað varð til þess að Davíð
og félagar hleyptu vefnum Ljóð.is
af stokkunum? „Ég er ljóðskáld
sjálfur og hef gefið út þrjár bæk-
ur. Ég hef þvælst mikið í þessu og
þetta er bara ein af þessum hug-
myndum sem beið eftir að ein-
hver framkvæmdi með því að
koma ljóðinu á Netið. Pælingin
var svolítið sú að fólk tollir rosa-
lega illa við að lesa langan texta á
skjánum og þess vegna passar svo
vel að gefa því kost á að lesa stutt
ljóð. Ljóðin á vefnum eru nú um
7000. Hluti þeirra er frá þjóð-
skáldunum en meirihlutinn er frá
fólki sem er eins og ég og þú,
skrifar ljóð og setur þau þarna
inn.“
Er ljóðið dautt?
„Við vitum alveg að þó vefur-
inn nái til margra þá nær hann
aldrei til allra,“ segir Davíð þegar
hann er spurður hvort það geti
ekki talist afturför að flytja ljóð
af vefnum yfir á bók. „Bókin hef-
ur bara öðruvísi snertiflöt, fyrir
utan það að það er gaman að geta
sent frá sér áþreifanlega afurð,
eitthvað sem lifir í heiminum. Það
er auðvitað líka gaman fyrir höf-
undana að komast með ljóð á
bók.“
Undanfarin ár hafa borist tíðar
fregnir af meintu andláti ljóðsins.
Davíð gefur ekki mikið fyrir slík-
ar vangaveltur og segist vera orð-
inn langþreyttur á að svara spurn-
ingunni um það hvort ljóðið sé
dautt.
„Þetta er orðið að klisju og það
hlýtur að vera einhver ástæða fyrir
því. Kannski er það vegna þess að
ljóðabækur seljast ekki mikið þan-
nig að fólk gengur út frá því að ljóð-
ið sé dautt. Ég held því aftur á móti
fram að ljóðið, sem slíkt, muni
aldrei, aldrei, með mikilli áherslu á
það orð, hætta að vera til. Þetta er á
margan hátt eins og að teikna rosa-
lega einfalda og frumstæða mynd
og við munum alltaf hafa þörfina
fyrir einfaldleikann og einhvern
frumkraft óháð því hversu tækn-
inni fleygir mikið fram á hinum
ýmsu sviðum. Þetta er mikilvægur
punktur að mínu mati.“
thorarinn@frettabladid.is
DAVÍÐ A. STEFÁNSSON
„Ef þú ert mjög praktískur þá kaupirðu
ekki bókina og ferð bara og kíkir inn á
ljóðin á Netinu. Annars seljum við hana
bæði beint í gegnum vefinn og svo í bóka-
búðum,“ segir Davíð.
Jack Nicholson vill kvikmynda fjölskyldusögu sína,
sem er vægast sagt full af dramatík.
Allir svíkja alla
JACK NICHOLSON
Vill kvikmynda dramatíska sögu fjölskyldu sinnar, en hún er vægast sagt full af óvenju
um staðreyndum.
Leikarinn heimsþekkti JackNicholson á nú í viðræðum við
kvikmyndaframleiðendur í Holly-
wood um að kvikmynda sögu fjöl-
skyldu sinnar. Hann segir að
myndin muni fjalla um svik.
Nicholson fæddist utan hjóna-
bands, sonur hinnar 17 ára June
Nicholson, sem alla tíð þóttist
vera systir hans. Amma hans,
Ethel, þóttist vera móðir hans.
Eiginmaður Ethelar fór eitt sinn á
barinn þegar Nicholson var hvít-
voðungur og sneri aldrei aftur
heim. Maður að nafni Don Rose,
sem var skemmtikraftur, hélt því
alla tíð fram að hann væri faðir-
inn og var vanur að bíða eftir
Nicholson við skólaútganginn
þegar hann var barn en talaði
aldrei við hann. June yfirgaf
heimilið til að giftast flugmanni
þegar Nicholson var sjö ára gam-
all. Hann segir öryggisleysi í
æsku og einkennilegt andrúms-
loft á heimilinu hafa orðið til
hann varð vandræðagemill
fullur af niðurbældri reiði. Rei
hefur fylgt honum alla tíð. Fy
níu árum notaði hann golfkylfu
að brjóta bílrúðu í bifreið en ö
maðurinn hafði svínað fyrir ha
Þegar Nicholson braut rúðu
hrópaði hann: „Hér er Johnn
fleyg orð úr hryllingsmynd h
The Shining. Hann sagðist sein
skammast sín fyrir athæfið.
Nicholson komst ekki að
fyrr en hann var 37 ára hei
frægur leikari að konan sem ha
hélt vera systur sín var í ra
móðir hans. Móðir hans og am
voru þá báðar látnar. Það
blaðamaður sem sagði hon
fréttirnar en Nicholson seg
hafa ýtt upplýsingunum til hli
en sé nú, 66 ára gamall, tilbúinn
að horfast í augu við sannleika
Nicholson segist hvorki ál
móður sinni né ömmu. Hann h
hins vegar oft velt því fyrir sér
hverju konan sem hann hélt v
systur sína hefði verið jafn ver
andi gagnvart honum og hún æ
var. Hann segir einnig að er
asta lexía sem hann hafi lært
miðbik ævinnar hafi verið sú
allir svíkja alla. ■
Ég held því aftur á
móti fram að ljóðið,
sem slíkt, muni aldrei,
aldrei, með mikilli áherslu á
það orð, hætta að vera til.
,,
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
A
LÓ
A