Fréttablaðið - 13.12.2003, Side 39
LAUGARDAGUR 13. desember 2003
Starfs sín vegna liggur ÁsdísBenediktsdóttir, afgreiðslu-
kona í Bókabúð Máls og menn-
ingar, yfir jólabókunum. Hún er
mjög ánægð með bók Arnaldar
Indriðasonar, Bettý. „Þetta er
saga sem gæti vel gerst í ís-
lenskum raunveruleika. Vel
unnin bók enda kann Arnaldur
til verka. Þarna eru persónur
sem er auðvelt að trúa á og bók-
in er spennandi og kemur á
óvart. Þótt bókin hafi fengið
misjafna dóma þá láta aðdáend-
ur Arnaldar það ekki á sig fá og
bókin er að rokseljast,“ segir
Ásdís. Hún nefnir fjölmargar
aðrar bækur til sögu: „Bók Þrá-
ins Bertelssonar, Einhvers kon-
ar ég, finnst mér ákaflega falleg
bók sem lífgar upp á tilveruna.
Skáldsagan Stúlka með perlu-
eyrnalokka eftir Tracy Chevali-
er er unaðsleg lesning fyrir
fjórtán ára og upp úr, reyndar
meiri kvennabók en karlabók.
Mjög læsileg og skemmtileg.
Bók Sjóns, Skugga-Baldur,
finnst mér sérlega góð og
umhugsunarverð, ekki síst
vegna þess að þar er verið
að fjalla um örlög
mongólíta. Fyrsta skáld-
saga Sölva Björns Sig-
urðssonar, Radíó Sel-
foss, er skemmtileg bók.
Sölvi er ungur og á ör-
ugglega eftir að vaxa
mjög sem rithöfundur og
verða kraftmeiri. Ég er einnig
ánægð með skáldsögu Sigurjóns
Magnússonar, Borgir og eyði-
merkur sem fjallar um Krist-
mann Guðmundsson og lýsir því
vel hvernig Kristmann var lagð-
ur í hálfgert einelti.“
Ásdís er mikill ljóðaunnandi
og segist hafa lesið nokkuð í
ljóðabók Kristjáns Karlssonar,
Kvæði 03, og sú bók hrífur
hana. Hún er nýbúin að lesa
skáldsögu Guðmundar Andra
Thorssonar, Náðarkraftur. „Ég
las hana á einu kvöldi í einni
lotu af því að ég er þannig að ef
mér finnst bók skemmtileg þá
verð ég eins og alkarnir, get
ekki hætt,“ segir Ásdís. „Guð-
mundur Andri skrifar svo fal-
lega um manneskjuna að það er
sérstök upplifun að lesa þessa
bók. Hún er hlý og manneskju-
leg og stíllinn er fallegur og
tær.“ ■
Sjaldgæft er að kirkjunnarmenn geri skáldverk, hvað þá
nýútkomin, að umtalsefni í
predikum sínum. Þetta gerðist þó
á dögunum í sunnudagsmessu á
Reynivöllum þegar séra Gunnar
Kristjánsson gerði þrá mannsins
eftir sambandi við Guð og spurn-
ingar um tilvist hans að predikun-
arefni. Í skemmtilegri, umhugs-
unarverðri og óvenjulegri ræðu
vitnaði hann máli sínu til stuðn-
ings í nýútkomna íslenska skáld-
sögu, auk erlendrar skáldsögu og
Hamlet Shakespeares.
Eftir hefbundin trúarleg upp-
hafsorð: „Náð sé með yður og frið-
ur,“ hófst predikunin á fyrstu
setningunni í skáldsögu Hall-
gríms Helgasonar, Herra Alheim-
ur: „Guð var í símanum“.
Eftir að hafa rakið söguþráð
bókarinnar í nokkrum setningum
vitnaði séra Gunnar enn í upp-
hafsorð Herra Alheims: „Guð var
í símanum“ og spurði: „Gæti það
verið? Hvernig næst samband við
Guð? Hvar er Guð? Hvernig get-
um við talað um Guð? Aðventan er
tími fyrir slíkar hugleiðingar, hún
er tími til að hugleiða spurningar
okkar um Guð... Guð er á dagskrá
í umræðu dagsins.“
Séra Gunnar vék einnig talinu
að skáldsögunni Sögunni af Pí eft-
ir Yann Martel en sagt hefur ver-
ið að það sé saga sem fái mann til
að trúa á Guð. Séra Gunnar sagði
meðal annars: „Skáldsagan um Pí
er tilraun höfundar til að sýna
hvernig trúin á Guð breytir lífi
mannsins í reynd svo allt fær ann-
an svip og verður innihaldsríkara,
skynsamlegra og áhugaverðara.
Skáldsaga, sem fær lesandann til
að trúa á Guð, hlýtur að vera
mögnuð, og kannski er þetta lof-
orð ein ástæðan fyrir vinsældum
hennar. En skyldi hún uppfylla
þær væntingar?“
Loks vék séra Gunnar talinu að
Hamlet Shakespeares sem hann
sagði geyma sígilda lýsingu á við-
horfum fólks til spurningarinnar
um Guð í samtali tveggja varð-
manna þar sem annar trúir á
frumkraft heilagleikans en hinn
sé efasemdarmaður.
„Guð er á dagskrá nú eins og
endranær,“ sagði séra Gunnar og
bætti við: „Í því efni þurfum við
hins vegar á myndbrjótum að
halda sem hreinsa til í hugmynda-
heimi okkar og orðræðu um Guð,
þar geta bækur eins og Herra Al-
heimur gegnt því hlutverki að
brjóta niður táknmyndir og mynd-
mál fyrri tíma sem á sér litlar for-
sendur lengur í hugarheimi
mannsins“. ■
Getur ekki
hætt að lesa
ÁSDÍS BENEDIKTSDÓTTIR
Hún er öflugur lestrarhestur
og er búin að lesa
fjölmargar bækur
fyrir þessi jól.
SR. GUNNAR KRISTJÁNSSON
Í predikun sagði séra Gunnar að
bækur eins og Herra Alheimur eftir
Hallgrím Helgason gætu gegnt því
hlutverki að brjóta niður táknmyndir
og myndmál fyrri tíma.
Séra Gunnar Kristjánsson gerði skáldsögu Hallgríms
Helgasonar og fleiri að umtalsefni í predikun sinni nýver-
ið.
Skáldskapurinn
og Guð
8-39 (34-35)bækur 12.12.2003 14:51 Page 3