Fréttablaðið - 13.12.2003, Síða 42

Fréttablaðið - 13.12.2003, Síða 42
matur o.fl. Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um mat og drykk Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: matur@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is Jólabókafló ðið er í Office 1 ! SKEIFUNNI SMÁRALIND AKUREYRI EKKI BARA SUMAR RAUÐ EÐA HVÍT JÓL? Við þurfum ekki að hafa svo miklar áhyggjuraf deilum veðurfræðinganna, við ráðum því sjálf hvort við höfum rauð jól eða hvít! Eðalvín ehf. hafa nýverið sent frá sér jólabæklinginn „Rauð og hvít jól“ sem hægt er að finna í sælkera- búðum og kaffihúsum. Í honum eru góð ráð um vín með flestum okkar algengustu hátíðarréttum, svo og ráðleggingar og hugmyndir frá bestu kokkum landsins um eldun hátíðarréttanna. Bæk- linginn má einnig nálgast á nýrri heimasíðu fyrir- tækisins, www.edalvin.is. ■ Stowells: Með vín frá 10 löndum Frá árinu 1878 hefurStowells sérhæft sig í því að finna einstök vín sem end- urspegla einkenni hvers vín- gerðarlands en Stowells of Chelsea er eitt öflugasta vín- fyrirtæki heims og framleiðir vín í 10 þjóðlöndum. Vín- sérfræðingur Stowells velur vínin með tilliti til einkenna svæðisins og þrúgutegund- anna og er hvert vín einstakt. Áhersla er lögð á gæði og fjöl- breytileika og iðulega nokk- urra ára undirbúningur að því að setja vínin á markað. Mikið er lagt upp úr góðu sambandi við vínbændurna og sjálfstæði víngerðarteymisins þannig að sem mestu sé náð út úr víninu. Hér á landi fást fjölmargar gerðir vína frá Stowells og hafa kassavínin þeirra sér- staklega verið vinsæl en hér fást þrjár gerðir þeirra. Stowells - Tempranillo Vínið kemur frá hásléttu Spánar, nánar tiltekið frá hér- aðinu La Mancha. Stowells Tempranillo hefur ágæta fyll- ingu, rauðar plómur og jarðar- ber eru áberandi en vínið sjálft hefur kryddaðan ávöxt og er sultukennt með safaríkt eftirbragð. Hentar vel með rauðu kjöti og ostum. Verð í Vínbúðum 3.390 kr. Stowells - Vin du Pays du Gard Þetta franska vín er Mið- jarðarhafslegt í stíl með þroskuðum og sólríkum ávöxt- um. Létt og með mildri end- ingu. Vínið þolir smá kælingu og er tilvalið með léttari rétt- um. Hentar vel með kjötrétt- um, ostum og paté. Verð í Vínbúðum 3.290 kr. Stowells - Chenin Blanc Suður Afríka Tilvalið sem léttur for- drykkur og hentar einnig afar vel með léttum réttum eins úr sjávarfangi, hvítu kjöti og grænmeti. Vínið hefur örlitla sætu og eru þroskuð epli og melónur áberandi eiginleikar vínsins. Ávaxtaríkt með góða fyllingu. Verð í Vínbúðum 3.390 kr. ■ Barþjónakeppni: Á leið til Lapplands á Finlandia Cup Valtýr Bergmann, barþjónn íSjávarkjallaranum, er á leið til Finnlands í dag en á morgun keppir hann í einni helstu barþjónakeppni heims, Finlandia Cup International. Keppnin er haldin ár hvert og etja kappi 15 barþjónar sem valdir eru úr ýmsum þjóðlöndum eftir for- keppni í heimalandinu. Íslendingar hafa þrívegis áður tekið þátt í keppninni með ágætis árangri. Keppt er eftir alþjóðaregl- um barþjóna, keppendur verða að sýna fagleg vinnubrögð og útbúa frumsamdar uppskriftir í þremur flokkum; þurrum og sætum drykkj- um þar sem annað áfengi er notað í kokteilana og í flokki þar sem blandað er í óáfengt. Valtýr hefur undanfarið undir- búið sig af miklum krafti og sett saman þrjár uppskriftir sem því miður er ekki heimilt að birta hér í blaðinu fyrr en að keppninni lok- inni. „Ég hlakka mikið til að kljást við þessa kappa og tel mig eiga nokkuð góða möguleika,“ segir Val- týr. „Það er auðvitað dagsformið sem ræður í þessu eins og öðru og svo er þetta spurning um tísku, hvort maður hittir á drykki sem dómnefndinni líkar eða telur höfða til almennings á hverjum tíma. Maður þarf því að vera með fingur- inn á púlsinum hjá fólki og ég er svo lánsamur að vinna á lifandi stað þar sem ég hitti fullt af fólki sem er til í að prófa nýja drykki. Finlandia er líka alveg afbragðs hráefni til að vinna fjölbreytta drykki úr. Þetta er hreinasta vodkað á markaðnum, frískt og hressandi.“ Valtýr bar sigur úr býtum í for- keppni sem haldin var meðal bestu barþjóna landsins á veit- ingastaðnum við Bláa lónið. Úrslitavaldið höfðu þremenn- ingarnir Margrét Gunnarsdóttir, margfaldur Íslandsmeistari og formaður Barþjónaklúbbsins, Ingólfur Haraldsson, hótelstjó Hótel Loftleiðum, sem unnið h ur til fjölda verðlauna og yfirdó arinn Óskar Magnússon en ha heldur utan um allar uppskrift barþjónakeppnum hérlendis tryggir að þær séu frumsamd ■ Rjúpur hafa verið órjúfanlegur hluti jólanna: Hvað kemur í stað jólarjúpu? Áundanförnum dögum hafa þrírmenn verið teknir við óleyfi- legar veiðar á rjúpum. Þeir tveir sem voru gripnir með dauðar rjúp- ur báru því við að þeir hafi verið að veiða í jólamatinn. Fyrir örlítinn hluta landsmanna er rjúpa það órjúfanlegur hluti jólanna að þeir eru tilbúnir að brjóta lög til að við- halda þessum sið. Stór meirihluti skotveiðimanna eru þó löghlýðnir borgarar og ef þeir vilja rjúpu verður fryst eða erlend rjúpa fyrir valinu. Samkvæmt skoðanakönnun Gallups fyrr í þessum mánuði ætl- uðu, þrátt fyrir rjúpnaveiðibannið, rösklega sjö prósent landsmanna að hafa rjúpu í matinn á aðfanga- dagskvöld en það er einungis helm- ingurinn af þeim sem ætluðu að hafa rjúpu fyrir ári. Af því tilefni fór Fréttablaðið á stúfana og spurði nokkrar þekktar rjúpnaætur hvað yrði á borðum þessi jól. „Það verður rjúpa í jólamat- inn,“ segir Sig- mar B. Hauksson, matreiðslumaður og formaður skot- veiðifélags Ís- lands. „Ég skaut hana norður á ströndum í fyrra. Það verður líka rjúpa á borðum næstu jól, þó svo ég þurfi að fara til Grænlands og skjóta hana þar.“ Fyrir hönd rjúpnaaðdáenda og skot- veiðimanna vonast Sigmar þó til að skotveiðibanninu verði aflétt að ári. „Það er ekkert betra en rjúpa á jólunum,“ svarar Jónas Haraldsson, fyrrum aðstoðarritstjóri DV. „En ég sætti mig við þetta veiðibann og bíð bara þangað til veiðibanninu á rjúpu verður aflétt. Það verður að bjarga rjúpnastofninum.“ Í staðinn verður hreindýrakjöt á borðum hjá Jónasi og fjölskyldu hans. „Við ætl- um að halda okkur við eitthvað villt. Það er nú konan sem sér aðallega um eldamennskuna en ég er aðstoð- armaður í eldhúsinu.“ „Ég lofa að það verða ekki ís- lenskar rjúpur á boðstólnum,“ segir Dagný Jónsdóttir þingkona. „Í stað- inn verðum við með skoskar rjúp- ur.“ Dagný ætlar að borða með for- eldrum sínum á aðfangadagskvöld og þar hefur tíðkast að bjóða upp á rjúpur. „Það verður einkennileg til- finning að borða erlendan mat á að- fangadagskvöld og hangikjötið verður líklega til taks ef hitt bregst.“ Sjálf hefur hún ekki áður smakkað þær skosku, en það hafa foreldrar hennar gert og þóttu góð- ar. „Við skulum vona að þetta verði bara í ár,“ segir Dagný en hún hefur mótmælt rjúpnaveiðibanninu á þingi. svanborg@frettabladid.is VALUR BERGMANN Ætlar að þeysa á hundasleða og fleygja sér í næstu vök á Finnlandi. JÓNAS HARALDSSON Býður upp á hrein- dýrakjöt af dýri sem hann skaut ekki sjálfur. SIGMAR B HAUKSSON Myndi ferðast til Grænlands til að skjóta sínar rjúpur. DAGNÝ JÓNSDÓTTIR Borðar skoskar rjúp- ur með foreldrum sínum, en hangikjöt- ið verður til vara. RJÚPAN Er vinsæl í jólamatinn, þó svo fáir fái að bragða hana í ár. Ný kryddbúð: Smakkað í búðinni Íkryddbúðinni La Vida á Laugavinum er heimilisleg stemning, þar er gestum boðið að lykta af þ kryddblöndum sem er í boði smakka á vörunni. Kryddblöndur koma frá matreiðslukonunni Tr Foulkes í Suður-Afríku, en hún framleiðslu á þeim árið 2000. H er að nota kryddin á hefðbundin h blanda þeim í olíu og nudda þeim í kjöt eða fisk eða velta hráefn upp úr blöndunni. Auk þess má nokkurs konar ídýfur, þar sem h um, fræjum og kryddi er blan saman. Brauði vættu í matarolíu dýft ofan í og er þá komið hið be snarl. „Þessi kryddbúð er hugmynd s hefur blundað lengi með okkur,“ s ir Helga Karlsdóttir verslunarst en eigandi verslunarinnar er A heiður Karlsdóttir. „Við erum bú að vera að bera kryddin með ok að utan undanfarin ár og fannst k inn tími til að opna verslun.“ Í búðinni er einnig boðið up fleiri vörur frá ýmsum löndum segir Helga að hugmyndin sé sú gera meira út á ákveðið þema í fr tíðinni. „Það er til dæmis hægt kaupa gjafakörfu með afrísku þe geisladisk með afrískri tónlist, k með tígrismunstri og afríska kry blöndu.“ ■ HÆGT AÐ SMAKKA KRYDDIN Í desember er einnig boðið upp á jó drykk þannig að sælkerar gætu hægle eytt stórum hluta úr degi þarna inn

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.