Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.12.2003, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 14.12.2003, Qupperneq 10
Það þykir góð regla í allri um-ræðu um siðferði að minnast þess að enginn ætlast til að veg- vísir fari þangað sem hann bendir. Ef við hefðum þessa reglu ekki í huga værum við í raun ófær um að tjá okkur um siðferði nema með því að hafna því alfarið. Ekk- ert okkar stendur ætíð undir þeim siðferðiskröfum sem við þó telj- um eðlilegt að setja fram. Við þurfum því ekki að fyllast heil- agri vandlætingu þegar við bend- um á veikan siðferðisgrundvöll annarra. Í þeirri ábendingu felst ekki yfirlýsing um að við stöndum sjálf á traustari grunni. Það má því ræða siðferði manna í við- skiptum, stjórnmálum og hvaða öðrum samfélagsgeira sem er án þess að láta sem framferði manna gangi gersamlega fram af okkur og særi siðgæðisvitund okkar djúpu sári. Sál í háska Það var því í sjálfu sér ekkert að því að Davíð Oddsson forsætis- ráðherra véfengdi siðferðislegan grunn þeirrar ákvörðunar banka- ráðs Kaupþings Búnaðarbanka að verðlauna stjórnendur bankans fyrir hönd hluthafa með ríkuleg- um kaupréttarsamningum. Ég held að leikrænir tilburðir Davíðs af þessu tilefni hafi hins vegar verið óþarfir. Dramatíkin í orðum hans og æði var svo uppþanin að hann lét eins og hann væri við það að missa lystina á lífinu; hjarta hans var sært og hugur á barmi örvilnunar. Flestum öðrum tókst að efast um siðferðislegt réttmæti þessara samninga á hófstilltari hátt en komu samt hugsun sinni til skila. Og ég man ekki eftir nein- um öðrum en Davíð sem blandaði eigin líðan, svefnvenjum eða hug- arvíli inn í gagnrýni sína á starfs- menn og stjórn bankans. Enda voru fæstir að stilla upp eigin sið- ferðisþrótti gagnvart bankamönn- unum. Flestir létu sér nægja að benda á brestina – en það var eins og Davíð vildi ekki aðeins verða siðferðislegur vegvísir heldur halda því fram að hann færi ætíð þangað sem hann benti. Þessi staða virtist ganga nærri Davíð; svo nærri að þótt rimmuna tæki fljótt af þurfti hann að leita sér huggunar í passíusálmalestri að henni lokinni – sál í háska að leita styrks í trúarfestu Hallgríms Péturssonar. Og við hin – áhorf- endur að leikritinu – sáum að inn- tak verksins var ekki siðferðis- grunnur ákvörðunar bankamanna heldur sálarstríð forsætisráðherr- ans. Frumvarp um Davíð Odds- son Í ljósi þessarar forsögu skal engan undra að þessi sami áhorf- endaskari – fólkið í landinu – hafi orðið undrandi þegar inn á Al- þingi dettur frumvarp sem er sniðið að þörfum Davíðs Oddsson- ar og felur í sér eftirlaunagreiðsl- ur upp á tugi ef ekki hundruð milljóna. Þetta frumvarp er svo sérhannað um Davíð að þótt yfir- skrift þess sé „lagafrumvarp um eftirlaun forseta Íslands, ráð- herra, alþingismanna og hæsta- réttardómara“ þá gæti það allt eins kallast „lagafrumvarp um Davíð Oddsson“. Sem kunnugt er er ráðgert að Davíð hætti sem forsætisráð- herra 15. september á næsta ári. Ástæðan er annað hvort sú að hann tapaði kosningunum eða samdi af sér í stjórnarmyndunar- viðræðum við Halldór Ásgríms- son, formann Framsóknarflokks- ins. Frumvarpið felur í sér að ef Davíð myndi kjósa að segja af sér þingmennsku við þetta tækifæri færi hann beint á eftirlaun en þyrfti ekki að bíða til 2013. Ef Davíð ætlaði sér að nota eftirlaun- in til að geta lifað af ritstörfum vill svo skemmtilega til að í frum- varpinu er ákvæði sem segir að þóknun vegna ritstarfa muni ekki skerða eftirlaun Davíðs. Ef Davíð væri áhugamaður um fluguhnýt- ingar mætti því búast við að í frumvarpinu væri sérstakt ákvæði um tekjur af fluguhnýt- ingum. Það eru engin dæmi til um það í Íslandssögunni að Alþingi hafi með þessum hætti sérsniðið lög að persónulegum þörfum eins manns fyrir framfærslu, svo það er erfitt að meta hver viðbrögð almenn- ings, verkalýðshreyfingarinnar eða annarra hefðu verið ef ekki hefði komið til þessa undarlega forleiks með kaupréttarsamninga bankamannanna. Líklega hefðu viðbrögðin orðið álíka sterk þótt blærinn yfir þeim hefði orðið ann- ar. Vandlætingartónninn sem Davíð sló í bankamálinu hlaut að snúast gegn honum. Þú mátt ekki – en ég á það skilið Greinargerðin með frumvarp- inu um framfærslu Davíðs er ágætlega skrifuð varnarræða fyr- ir þá Hreiðar Má og Sigurð í Kaupþingi. Það eina sem vantar upp á er að skipta út orðinu „stjórnmálastörf“ fyrir „stjórn- unarstörf í stórfyrirtækjum“. Stjórnendur þeirra vinna lýjandi störf, breytingar í þeirra um- hverfi eru ekki síður örar en póli- tíkinni, krafan um að yngra og þróttmeira fólk taki við þeim eldri ekki síður hávær og atgangur fjöl- miðla síður en svo minni – og þan- nig mætti lengi telja. Greinar- gerðin með frumvarpinu um Dav- íð er þannig varnarræða fyrir því að þótt öll dýrin séu jöfn sé eðli- legt að sum dýrin séu jafnari en önnur. Davíð hefur sagt að það sé „lýðræðisleg réttlætiskrafa“ að koma þessu kerfi á. Þegar Sigurð- ur í Kaupþingi hélt þessu fram var hann púaður af sviðinu. Og þegar hann vísaði til þess að hans fyrirtæki starfaði á alþjóðamark- aði og því eðlilegt að launakjör hjá því tækju mið af því sem tíðkaðist hjá alþjóðlegum fyrirtækjum hló allur almenningur að þessum rök- færslum og Davíð Oddsson hæst. Nú segist hann hins vegar vera að færa kjör stjórnmálamanna nær því sem tíðkast hjá þjóðþingum annarra landa. Þegar Sigurður skilaði sínum samningi eftir reiðiöldu almennings sagði Davíð það spor í rétta átt. Þegar stjórnarandstaðan gerir það sama kallar Davíð hana ístöðulausa. Davíð Oddsson hefur verið gagnrýndur fyrir að taka afstöðu til mála fremur eftir þeim ein- staklingum sem tengjast þeim en efnisatriðum máls. Samanburður á málflutningi hans í málefnum bankamannanna í Búnaðarbank- anum Kaupþingi og varðandi eig- in eftirlaunakjör dregur þennan galla Davíðs sterklega fram. Hon- um finnst það lýðræðisleg rétt- lætiskrafa að hann verði leystur frá störfum með veglegum eftir- launum – og hafi aðgang að þeim strax. Honum finnst hann eiga það skilið. En hann ræður sér vart fyrir hneykslan og vandlætingu ef aðrir menn – og honum ekki vil- hallir – semja um góð kjör við stjórnir þeirra fyrirtækja sem þeir starfa hjá. Þessi flokkadráttur Davíðs hefur gert íslenskt samfélag hálf- taugaveiklað mörg undanfarin ár – einkum vegna þess hversu margir hafa talið það skyldu sína að elta dyntina í Davíð. Ofstjórn- artilburðir hans eftir margra ára valdasetu hafa leitt til þess að stór hópur fólks í ólíklegustu geirum samfélagsins er upptekinn af því hvað Davíð finnst eða hvað hann vill. Davíð sættir sig ekki við að valdsvið hans sé bundið við stjórnarráðið, ríkisvaldið og Sjálf- stæðisflokkinn heldur er hann sí- fellt að reyna að stjórna því hvernig mál þróast á allt öðrum básum samfélagsins. Fýlan út í Fréttablaðið Eitt dæmi þessa eru fjölmiðlar. Í umræðum á þingi um frumvarp- ið sitt á föstudaginn sagði Davíð meðal annars: „Hann [Gylfi Arn- björnsson] reiknaði þetta út og málpípur tiltekins auðhrings hér hafa flennt það upp í blöðum sín- um að stórar upphæðir væru að falla í skaut forsætisráðherra.“ Það var athyglisvert að Davíð sagði Gylfa vera forstjóra Al- þýðusambands Íslands fyrr í ræð- unni. Einnig hversu Davíð er tamt að tala um sjálfan sig í þriðju per- sónu. Hann segir ekki „ég“ heldur „forsætisráðherra“. Þegar við hin segjum: „ég er svangur“ þá segir Davíð „forsætisráðherra er svangur“. Næsta skref hjá Davíð væri að bæta við greini; „forsæt- isráðherrann er svangur“. En ég vil fyrst og fremst gera athugasemdir við innihald setn- ingarinnar. Þarna er Davíð enn og aftur að halda því fram að rit- stjórn Fréttablaðsins stundi ekki hefðbundna blaðamennsku held- ur að hún samanstandi af leigupennum og öðru illþýði. Honum hefur aldrei tekist að finna þessari hugmynd sinni stoð en vill samt halda í hana. Þess vegna setur hann það fram sem sönnun að Fréttablaðið hafi birt frétt um útreikninga Alþýðusam- bandsins á verðmæti hækkunar á eftirlaunum forsætisráðherra. Davíð finnst það enn ein sönnun- in á að á Fréttablaðinu sé ekki stuðst við eðlilegt fréttamat held- ur að blaðinu sé ritstýrt af illum hug í hans garð. Vinum Davíðs fannst fyrir skömmu það sama um yfirlýs- ingu stjórnarformanns næst- stærsta fyrirtækis á Íslandi að Davíð legði sig í einelti. Ekki veit ég hvers kyns blaða- mennsku Davíð lærði á Moggan- um á sínum tíma en þar sem ég hef verið hefur það þótt fullgild frétt að æðstu menn stærstu fyr- irtækja segi forsætisráðherra leggja sig í einelti og sömuleiðis útreikningar Alþýðusambandsins á kostnaði skattgreiðenda vegna eftirlauna fáeinna manna – eða jafnvel aðeins eins manns. Enda snýst mat Davíðs ekki um þetta heldur hitt að báðar þessar frétt- ir eru þannig að hann hefði held- ur viljað að þær birtust ekki. Og þetta er líklega einmitt skoðun Davíðs á blaðamennsku og fréttum; þær skulu vera þannig að þær komi honum vel. Þess vegna hefur hann hlutast til um að innleiða harðari ritskoðun á Ríkisútvarpinu og þess vegna sér hann ekkert athugavert við sérstakt frumvarp um hækkun eigin eftirlaunakjara. Þess vegna þolir hann ekki fyrirtæki sem þjóna honum ekki og þess vegna þolir hann ekki Fréttablaðið né aðra fjölmiðla sem segja ekki að- eins fréttir sem koma honum vel. Það er leiðinlegt að segja það – en svona er þetta nú samt. Þjóðin sem sótti Davíð inn í mennta- skóla og hefur borið hann á gull- stól gegnum lífið er orðin þjökuð af ráðríki hans, flokkadrætti og illum hug hans gagnvart þeim sem ekki falla fram og tilbiðja hann. ■ Landsmálapólitíkin er flókinnkappleikur sem tekur verulega á sál og líkama. Launagreiðslur al- þingismanna eru meira að segja stöðugt að færast nær knatt- spyrnutöxtum með tilheyrandi bónusum til liprustu marka- hrókanna á þingvellinum. Fyrir- huguð taxtahækkun aðalleik- mannanna hefur vakið hörð við- brögð hjá bullunum á áhorf- endapöllunum og þykir það sæta nokkrum tíðindum að reyndir spilamenn skuli ergja stuðnings- menn sína með þessu uppátæki. Ef þeir gömlu eru svona taktlausir skyldi engan undra að ungum þingmönnum verði fótaskortur á fyrstu metrunum og því ómaklegt af áhorfendum að gagnrýna fram- sóknarmaddömuna Dagnýju Jóns- dóttur, á dögunum, fyrir að missa það út úr sér að hún sé í Fram- sóknarliðinu og fylgi sannfæringu flokksins frekar en sinni eigin. Þetta getur varla talist meiri- háttar afhjúpun þar sem það eina sem greinir pólitíkina virkilega frá fótboltanum er sú undarlega staðreynd að þó fólk skipi sér í ákveðin lið eru liðsmennirnir flestir álíka uppteknir við að klekkja á samherjum sínum og andstæðingunum. Það er sérstak- lega vinsælt að reyna að ná sæti fyrirliða með bolabrögðum og tudda á gömlum jöxlum sem eru farnir að mæðast á hlaupunum. Þegar í harðbakkann slær og toppsætin eru í húfi þjappa liðin sér vitaskuld saman og spila þá eftir sama leikkerfi og eftir einni og sömu sannfæringunni. Sá sem er ekki með grundvallarreglurnar í því ati á hreinu getur ekki enst lengi á vellinum. Þetta hefur Dag- ný auðvitað lært í þjálfunarbúð- um fyrir efnileg framsóknarbörn og finnst þetta auðvitað svo sjálf- sagt og eðlilegt að það hljóti að mega tala um það. Þá má einnig benda á það framsóknarnýliðanum til varnar að vinstrimenn eiga yfirleitt líka einhverja sameiginlega sannfær- ingu sem þeir berjast fyrir allir sem einn. Þeir eru að vísu gjarn- ari á að gerast liðhlaupar og æða þá út og suður áður en þeir fara aftur í gamla vaðmáls liðsbúning- inn. Liðsmenn allra flokka hafa að vísu nú fengið gullið tækifæri til þess að sanna það fyrir alþjóð að þeir geti fylgt eigin sannfæringu. Það eina sem þeir þurfa að gera er að hafna hugmyndum um lang- hlaupa bónusgreiðslur til þeirra sem eru orðnir leiðir á atinu. Þá komum við aftur að peningalög- málum fótboltans sem efla liðs- andann. Nýliðarnir vita nefnilega að þeir munu sjóast í leiknum og verða betri og betri og þá getur verið gott að vita af árangurs- tengdu bónusgreiðslunum. Getur það nokkurn tíma borgað sig að gera sjálfsmark? ■ 10 14. desember 2003 SUNNUDAGUR Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason og Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Rafpóstur auglýsingadeildar: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð- borgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands- byggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Sjálfsmark! Smáa letriðÞÓRARINN ÞÓRARINSSON ■ veltir fyrir sér liðsanda og peninga- málum á þingvellinum. Sunnudagsbréf GUNNAR SMÁRI EGILSSON ■ skrifar um meintan starfsloka- samning Davíðs Oddssonar og átökin vegna hans. Frumvarp um Davíð Oddsson

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.