Fréttablaðið - 14.12.2003, Page 17

Fréttablaðið - 14.12.2003, Page 17
17SUNNUDAGUR 7. desember 2003 er eftir flugleiðinni leggur við- komandi flugfélag í þá fjárfest- ingu að bæta við vélum til að sinna verkefninu. Hafþór segir að með þessu minnki þau áhættu sína. Ef leiðin gangi ekki sé hún einfaldlega lögð niður. Atlanta hefur verið í slíkum verkefnum frá upphafi. Hafþór segir form- ið hafa breyst og starfsemin orðið fjölþættari. „Stundum erum við að bjóða vélar með fullri áhöfn, en stundum eru flugfélögin með sínar eigin flug- freyjur.“ Hann segir það hafa færst í aukana síðustu ár, eink- um eftir atburðina 11. septem- ber. Sá örlagadagur hafði miklar breytingar í för með sér. Fáir geirar viðskiptalífsins fundu meira fyrir atburðunum en flug- reksturinn. „Við sáum ákveðin tækifæri í því eftir 11. septem- ber að leigja fraktflugvélar á hagstæðum kjörum. Markaður- inn var í lægð og við fórum út í það að taka áhættu með eigend- um vélanna sem við leigðum. Við náðum að byggja það upp á síðasta ári með þeim árangri að við náðum langtímasamningi í Malasíu í kjölfarið.“ Nú eru fjórar vélar í fraktflugi í Malasíu og Hafþór segir Atlanta munu bæta við þeirri fimmtu í mars. Alls eru fraktvélarnar sjö talsins og fer hratt fjölgandi. Hafþór segir að hryðjuverkin 11. september hafi verið högg fyrir félagið eins og alla aðra. „Það skipti máli að bregðast hratt við. Við gátum lagt níu flugvélum á skömmum tíma, vegna þess að við vorum með svo sveigjanlega samninga um leigu á vélunum. Við gátum fækkað fólki mjög hratt þar sem við vorum með stórann hluta af mannskapnum í gegnum áhafn- arleigur. Öðruvísi hefðum við ekki getað gert það og róðurinn hefði orðið okkur mjög þungur, jafnvel ómögulegur.“ Umræða á villigötum Starfsmannaleigur hafa verið í umræðunni hér á landi og Atlanta fengið sinn skerf af gagnrýni á þær. „Það hafa allir rétt á að gagnrýna,“ segir Haf- þór en bætir því við að umræð- an sem tengist félaginu sé á villigötum. Félagið skipti við fjórar áhafnaleigur sem allar starfi í Evrópu. Félagið fari að öllum lögum. „Ég vil gagnrýna á móti að Félag íslenskra atvinnu- flugmanna noti tækifærið þegar umræða kemur upp um verk- takafyrirtækið Impregilo. Þetta er á engan hátt sambærilegt. Við erum að borga laun miðað við það sem gerist og gengur á þeim markaðssvæðum sem við störfum á. Þar sem við erum með starfsemi allan ársins hring, eins og í Bretlandi, erum við að ráða fólk til starfa eftir þeim samningum sem eru í gildi. Það eru ekki jafn góð laun og á Íslandi, en í fullu samræmi við það sem önnur flugfélög eru að borga.“ Hann segir að félagið væri að öðrum kosti ekki samkeppnishæft. Hafþór segir annan anga umræðunnar á villi- götum. Það sé krafan um að íslenskt loftfar sé íslensk grund. Að þeir sem þar starfi greiði skatta og skyldur hér á landi. „Hvernig í ósköpunum á það að virka þegar við erum að fljúga fyrir Virgin-flugfélagið með þeirra flugfreyjur um borð? Hvernig ætti það að ganga ef allt þetta fólk þyrfti að sækja um atvinnu- og dvalarleyfi á - Íslandi?“ Hann segir að við eigum að horfa til nágranna- landanna til þess að leita að fyrirmyndum. „Írar, sem eru fullgildir aðilar að Evrópusam- bandinu, eru með miklu sveigj- anlegra og opnara umhverfi en við í þessum efnum, þó ég sé ekkert að fara fram á það að við förum að opna það meira.“ Hann nefnir að skattareglur refsi þeim íslensku starfsmönnum fé- lagsins sem starfi á þeirra veg- um lengur en 21 dag í útlöndum. „Þarna ættu stjórnvöld að horfa til hinna Norðurlandanna, þar sem er tekið mið af svona starfsemi.“ Hann segir félagið vilja gera sem best við sitt fólk. „Við erum ekki fylgjandi því að greidd séu laun undir viðmiðunum þess svæðis sem við vinnum á og erum þar af leiðandi andvíg því að fólki sem starfar hér á landi sé borgað undir þeim samningum sem hér eru í gildi.“ Atlanta rekur dótturfélög í Bretlandi. Annað er flugfélag með flugrekstrar- leyfi þar í landi. „Íslenska leyfið takmarkaði möguleika okkar á ákveðnum flugleiðum eins og milli Bretlands og Banda- ríkjanna. Við stofnuðum því dótturfélag sem er með fullt flugrekstrarleyfi í Bretlandi.“ Í Bretlandi á og rekur Atlanta viðhaldsþjónustu og verkstæði til viðgerðar á flugvélahlutum. „Upphaflega þjónaði verkstæðið okkar vélum, en starfsemin hefur vaxið og nú eru um 40% af starfseminni fyrir önnur félög.“ Samstarf við Íslandsflug Magnús Þorsteinsson eigandi Atlanta varð stjórnarformaður annars flugfélags á dögunum, Íslandsflugs. „Íslandsflug er í nákvæmlega sömu starfsemi og við. Hins vegar er flugfloti þeirra öðruvísi en okkar. Þeir eru með Airbus-vélar og smærri vélar, en við erum bara með Boeing og stærri vélar. Það er ekkert leyndarmál að við kom- um til með og erum farin að vinna mjög náið saman að mark- aðsmálum. Við kynnum okkar viðskiptavinum allan þennan flota.“ Hafþór leggur áherslu á að hluthafar séu ekki þeir sömu í félögunum og þau rekin aðskil- in. Hins vegar sjái menn fyrir sér hagræðingu í viðskiptum við birgja og fleiri þáttum starf- seminnar. Flugrekstur er áhættusamur rekstur. Hafþór segir að þrátt fyrir það séu flug- félög í heiminum sem hafi verið í góðum rekstri um langt skeið og skilað eigendum sínum góðri arðsemi. Flugfargjöld fara lækkandi og ferðalangar njóta góðs af. Það þýðir hins vegar að þeir sem reka félögin þurfa sí- fellt að leita leiða til hagræðing- ar í rekstri. „Það er hægt að ná góðum árangri í þessum rekstri haldi maður vel á spöðunum,“ segir Hafþór Hafsteinsson, for- stjóri Air Atlanta. haflidi@frettabladid.is Eig›u dásamleg jól á Kanaríeyjum. Ekkert jólastress heldur endalaust gó›vi›ri, lífsins lystisemdir og fullkomin afslöppun. Sta›greitt á mann m.v. tvo í íbú› á Teneguia í 10 nætur. 77.730 kr.*Ver›: Sta›greitt á mann m.v. tvo í íbú› á Camelias í 11 nætur. Sta›greitt á mann m.v. tvo í íbú› á Carolina í 14 nætur. 82.430 kr.*Ver›: 123.830 kr.*Ver›: * Innifali›: Flug, flugvallarskattar, gisting samkvæmt ofangreindu, akstur til og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn. Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100 Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600 Selfossi: 482 1666 www.urvalutsyn.is Úrval-Úts‡n ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U RV 2 31 60 12 /2 00 3 HRAÐI VIÐSKIPTANNA „Hlutirnir breytast hratt og sífellt hraðar en áður. Það gildir um öll viðskipti. Það er mikilvægt fyrir okkur að vera sveigjanleg, því við erum svo háð því hvernig viðskipta- vinum okkar gengur og höfum sjálf ekki allt of mikla stjórn á því.“

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.