Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.12.2003, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 14.12.2003, Qupperneq 22
22 14. desember 2003 SUNNUDAGUR Heitasta deiluefni dagsins erfrumvarp um eftirlaun æðstu embættismanna ríkisins en það er vægast sagt afar um- deilt. Verkalýðshreyfingin hef- ur brugðist illa við og frestað kjaraviðræðum vegna málsins. Guðni Ágústsson, landbúnaðar- ráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins, styður frumvarpið. „Að þessu frum- varpi og þessari tillögu standa allir þingflokkarnir og formenn allra flokka urðu sammála um þetta svona. Þetta er ekki tillaga um að hækka laun þingmanna enda heyrir það undir kjara- dóm, aðeins að formenn stjórn- málaflokka fái álag, einn og hálfan hlut, hafa ekki skipstjór- ar til dæmis 2 hluti og jafnvel 3 í tilfelli loðnuskipstjóra? Svo snýr þetta mál mest að því að hækka iðgjöld á alþingismenn úr 2 prósentum í 3 prósent. Líf- eyrisréttur maka skerðist veru- lega, enginn ræðir um það, þannig að þetta er aðeins öðru- vísi en fram hefur komið. Ef við lítum á forystumenn í íslensku samfélagi, til dæmis bæjar- stjóra og forstjóra, þá hafa al- þingismenn og raunar einnig ráðherrar verið hálfdrættingar þessara manna. Kjör stjórn- málamanna verða að vera þannig að menn vilji taka að sér þessi störf,“ segir Guðni. „Ég vil segja við þá menn sem nú hafa hæst og eru að segja sig úr Sam- fylkingunni eða Vinstri grænum vegna þessa frumvarps: Spyrjið verkalýðsleiðtogana hvað þeir hafa í laun og spyrjið líka hvaða laun og ráðningarsamningar gilda við framkvæmdastjóra líf- eyrissjóða fólksins sem þeir bera ábyrgð á.“ Erum frjálsir í stjórnarsam- starfinu Guðni segir engan bilbug á Framsóknarflokknum í ríkis- stjórnarsamstarfinu og það sé fjarstæða að Framsóknarflokk- urinn sé þar undir hælnum á Sjálfstæðisflokknum. „Það er röng ályktun,“ segir Guðni. „Við framsóknarmenn höfum farið fyrir mjög erfiðum málaflokk- um á okkar forsendum. Við komum inn í ríkisstjórn fyrir níu árum með fyrirheit um að skapa 12.000 störf til aldamóta. Það ríkti mikið atvinnuleysi á Íslandi. Erfiðasti tíminn sem ég hef lifað í stjórnmálum var frá 1991-1995 þegar ég stóð frammi fyrir atvinnulausu fólki. Þetta var oft niðurbrotið fólk sem var búið að tapa vinnu sem það hafði haft í áratugi og var hrein- lega að tapa öllu sínu. Þetta var ungt fólk sem var að flytja úr landi. Við lofuðum þessu fólki atvinnu. Þess vegna var eðlilegt að Framsóknarflokkurinn, sem kom inn í þetta stjórnarsam- starf, tæki á sig erfiðustu ráð- herraembættin. Framsóknar- flokkurinn kom til að skapa at- vinnu, til að umbreyta Íslandi þannig að hér hæfust stórfram- kvæmdir og hjól atvinnulífsins færu að snúast. Þetta hefur allt gengið eftir og lífskjör hafa batnað um 30-35 prósent, sem eru óvéfengjanlegar tölur. Það eru ósanngjarnar ásak- anir stjórnarandstöðu að við séum undir hælnum á Sjálf- stæðisflokknum. Við erum frjálsir í þessu samstarfi, við höfum valið okkur það og höfum aldrei viljað sleppa þeim ráð- herraembættum sem hafa skap- að mest í samstarfinu. Við reyndum það ekki 1999 og við reyndum það ekki nú í vor. Við framsóknarmenn erum tilbúnir til að taka á okkur mikla erfið- leika til að halda áfram þessu sóknarstarfi fyrir íslenska þjóð. Við þorum. Var ekki til dæmis Valgerður Sverrisdóttir valin kona ársins? Það hefði einnig getað verið Siv Friðleifsdóttir fyrir að friða rjúpuna.“ Mun þetta stjórnarsamstarf ekki að lokum verða Framsókn- arflokknum of dýrkeypt? „Nú blasir við að Halldór Ás- grímsson mun eftir tæpt ár setj- ast í stól forsætisráðherra, sem er eðlilegt framhald af sam- starfinu við Sjálfstæðisflokkinn og sýnir jafnræðið á milli flokk- anna. Hann mun leiða ríkis- stjórn sem hefur lagt grundvöll fyrir því að hér á Íslandi verði mesti hagvöxtur í Evrópu. Við þurfum auðvitað að verja stöð- ugleika og passa að verðbólgu- hjólið fari ekki að snúast. Ég er bjartsýnn á framtíðina, bæði fyrir þjóðina og Framsóknar- flokkinn. Hins vegar búum við við stjórnarandstöðu sem oft fer mikinn og getur verið ómerki- leg og óbilgjörn. Það er eins og Samfylkingin hafi það fyrir sína pólitísku tækni að segja aftur og aftur að Framsóknarflokkurinn sé að svíkja og pretta. Sannar- lega er það svo að við getum far- ið yfir öll okkar fyrirheit frá 1995 og séð að við höfum staðið við þau lið fyrir lið. Það kemur alltaf í bakið á mönnum að tala með þessum hætti. Ég lærði það sem ungur drengur og hef reynt að fylgja því: „Þú átt að segja satt. Þú átt ekki að tala illa um fólk og þú átt að láta andstæð- inga þína njóta sannmælis“.“ Iðrast ekki ummæla Ýmis ummæli Guðna hafa vakið athygli og stundum harða gagnrýni. Það vakti mikla at- hygli þegar hann í ræðustól á Alþingi bað Guð að fyrirgefa forsvarsmönnum öryrkja því þeir vissu ekki hvað þeir væru að gera. Guðni segist ekki sjá eftir þeim ummælum. „Lífsmottó föður míns var: Hlífðu þér aldrei ef þú sérð ná- unga þinn beittan órétti. Hikaðu þá aldrei við að ganga fram fyr- ir skjöldu. Þessu hef ég reynt að fylgja. Mér fannst að Samfylk- ingunni væri að takast að ljúga því að þjóðinni að hér ríkti ein- tómur djöfulsskapur í garð ör- yrkja, ekkert nema eilífar skerðingar og svik. Mér ofbauð þegar ég sá hinn öfluga baráttu- mann Garðar Sverrisson halda því einnig fram að fjárlögin væru fjárlög skerðinga og svika. Þá gekk ég fram með sterkum hætti og greip til setn- ingar sem var stundum notuð á mig þegar ég var unglingur og fór mikinn. Þessi fjárlög, og það sam- komulag sem sá heiðarlegi og sannorði maður Jón Kristjáns- son heilbrigðisráðherra gerði á síðasta vetri, marka tímamót. Við erum að bæta kjör yngstu öryrkjanna, fólks sem ekki á rétt í lífeyrissjóðum og fólks sem er í námi og missir heils- una. Fjárlögin staðfesta líka að félagsmálaráðherrann, Árni Magnússon, hefur tekið að sér að gerast sérstakur baráttumað- ur í því að bæta kjör fatlaðs fólks. Þessi fjárlög eru þau bestu sem Alþingi hefur sett í garð þessa fólks og það er fagnaðarefni að öryrkjar á aldr- inum 18-29 ára fá 70-100 prósent hækkun á grunnlífeyri. Sem dæmi um hvað þessar hækkanir hafa þýtt vil ég nefna að 18 ára öryrki sem metinn er í dag 75 prósent öryrki mun fá frá með 1. janúar fá 126 þús krónur á mánuði en hafði um 98 þúsund á mánuði ef allt er talið, það er grunnlífeyrir, tekju- trygging, tekjutryggingarauki og heimilsuppbót. En þetta er ekki í fyrsta né síðasta sinn sem við bætum kjör öryrkja og ef við höldum áfram með sams konar dæmi voru kjörin árið 1995 krónur 54 þúsund á mánuði og árið 2000 var þetta 73 þúsund á mánuði. Kjörin hafa því hækk- að 74 prósent frá árinu 2000 á meðan verðlag samkvæmt vísi- tölu neysluverðs hefur hækkað um tæp 18 prósent. Hér er því um raunverulega kjarabót fyrir öryrkja að ræða. Og hugsið ykk- ur að það voru 27 stjórnarþing- menn á Alþingi í gær sem greiddu þessu atkvæði sitt, en stjórnarandstaðan sat öll hjá eins og henni væri nákvæmlega sama um málið. Nú er það tryggt að öryrkjar fengu 2,8 milljarða í fjárlögum þessa árs en fá 3,8 milljarða á næsta ári. Þetta er stór sigur fyrir Garðar Sverrisson og umbjóðendur hans.“ Garðar Sverrisson svaraði á Stöð 2 ummælum Guðna með orðunum: „Það er umhugsunar- efni að þessi mannvitsbrekka skuli vera varaformaður Fram- sóknarflokksins“. Þegar Guðni er spurður um viðbrögð sín við þeim ummælum segir hann: „Ég minnist þess að þegar ég var að byrja í pólitík sögðu margir lífs- reyndir menn mér að ég skyldi aldrei ráðast persónulega að ein- Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra vakti hörð viðbrögð öryrkja á dögunum vegna ummæla sinna. Það er ekki í fyrsta skipti sem Guðni vekur hörð viðbrögð. Í viðtali við Fréttablaðið talar hann um launakjör alþingismanna, öryrkjamálið, sinn stíl í pólitík og stjórnarsamstarfið. TEKUR STÖRF SÍN ALVARLEGA „Ég tek störf mín mjög alvarlega en leyfi mér líka að gera að gamni mínu. Sá maður sem leyfir sér að vera frjáls og lætur húmorinn leika um störf sín á yfirleitt góð samskipti við þá menn sem hann hittir.“ Ég vil segja við þá menn sem nú hafa hæst og eru að segja sig úr Samfylkingunni eða Vinstri grænum vegna þessa frum- varps: Spyrjið verkalýðsleið- togana hvað þeir hafa í laun og spyrjið líka hvaða laun og ráðningasamningar gilda við framkvæmdastjóra lífeyris- sjóða fólksins sem þeir bera ábyrgð á. ,, Við höfum staðið við öll okkar fyrirheit FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.