Fréttablaðið - 14.12.2003, Blaðsíða 33
Jólin fylgja alltaf einhverjumákveðnum hefðum. Guðrún
Ásmundsdóttir missti móður
sína þegar hún var þriggja ára
og hélt jólin alltaf heima með
föður sínum og bróður.
„Kannski voru ekkert merkileg
jól hjá okkur þegar pabbi var
einn með okkur systkinin,“ seg-
ir Guðrún. Hún bætir við að þau
hafi þó verið stórkostleg á sinn
hátt, þótt þau hafi kannski ekki
þótt neitt sérstaklega glæsileg.
Faðir hennar veiktist þegar
hún var unglingur og í veikindum
hans eyddi fjölskyldan í fyrsta
skipti aðfangadagskvöldi að
heiman. Guðrún segir jólin hafa
verið með allt öðru sniði þetta
árið, „Þá man ég eftir undarleg-
um tómleika,“ segir hún. Þau
komu heim til sín eftir kirkju og
þá voru jólapakkarnir þeirra
heima í stofunni. „Við vorum nú
ekkert að fara að druslast með
pakkana yfir á önnur heimili,“
segir hún en þau ákváðu að opna
þá áður en farið var í jólaboðið.
„Ég man alltaf eftir að það var
eitthvað svo skrítið að rífa upp
einhverja pakka,“ segir hún en
það helgaðist af því hversu und-
arlegt það var að fylgja ekki
venjulegum hefðum.
Eftir þetta fóru þau í matinn
en að sögn Guðrúnar var hann
áreiðanlega mikið betri en þau
höfðu nokkurn tímann haft. Hún
segir að þar hafi einnig verið
mikið meira um dýrðir en hún
var vön en samt vantaði eitt-
hvað. „Dýrðin var einhvers stað-
ar þarna í þessum gömlu jólum
sem pabbi útbjó fyrir okkur.“ ■
33SUNNUDAGUR 14. desember 2003
THE SECRET OF A WOMAN
A NEW FRAGRANCE
w
w
w
.n
a
o
m
i-
c
a
m
p
b
e
ll
-p
e
r
fu
m
e
s
.c
o
m
Naomi Campell
ilmvötnin fást í snyrtivöru-
verslunum og apótekum
um land allt
MARKAÐSTORG
KRINGLUNAR
3.HÆÐ
Flauels jakkar fyrir konur 2.990.-
Síð flauelspils 1.500.-
Síðar ullarkápur st.12-20 12.990.-
Úrval af svörtum og teinóttum buxum
Verið velkomin.
Markaðstorg Kringlunar
s: 588 6565
Dýrðin í gömlu jólunum:
Stórkostleg á sinn hátt
GUÐRÚN ÁSMUNDSDÓTTIR
Dýrðin var í gömlu jólunum sem faðir
hennar útbjó.
Mynd: Gunnar Karlsson fyrir Jólahefti Rauða krossins.
Vísurnar eru eftir Jóhannes úr Kötlum og teknar upp úr
bókinni Jólin koma sem gefin var út af Máli og menningu.
Sstúfur hét sá þriðji,
stubburinn sá.
Hann krækti sér í pönnu,
þegar kostur var á.
Hann hljóp með hana í burtu
og hirti agnirnar,
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar.
Til byggða í nóttAðventustund:
Unglinga-
kórar í aðal-
hlutverki
Aðventuhátíð verður í Digra-neskirkju í
kvöld og hefst
kl. 20.30. Ung-
lingakór Digra-
neskirkju og
kór Snælands-
skóla sjá um
tónlistarflutn-
ing undir stjórn
Heiðrúnar Há-
k o n a r d ó t t u r.
Einsöng syngur
Kristján Jó-
hannsson. Ræðumaður kvölds-
ins er Rannveig Guðmundsdótt-
ir alþingismaður.
Fé sem safnast við kaffið á
eftir rennur óskipt til Mæðra-
styrksnefndar Kópavogs.
Stjórnun og undirbúningur er í
höndum foreldrafélags ung-
lingakórsins. ■
Foreldrar - Sýnum ábyrgð
Áfengi má ekki selja, veita eða afhenda
ungmennum undir 20 ára aldri.