Fréttablaðið - 14.12.2003, Síða 38
38 14. desember 2003 SUNNUDAGUR
VILJI
Ungverjinn Agnes Farkas sækir að marki
Suður-Kóreumanna í undanúrslitum
heimsmeistarakeppni kvenna í handbolta.
Seong-Ok Oh er til varnar. Ungverjar sigr-
uðu 40-38 og leika til úrslita í dag.
Handbolti
Haukar mæta Cretéil frá Frakklandi í dag:
Ætlum að keyra á þá
HANDBOLTI Haukar mæta franska
liðinu Cretéil í Frakklandi í dag í
fyrri leik liðanna í 16 liða úrslitum
Evrópukeppni bikarhafa í hand-
knattleik. Haukar komust í þessa
keppni þar sem þeir lentu í þriðja
sæti í sínum riðli í meistaradeild-
inni. Cretéil hefur verið eitt besta
lið Frakklands undanfarin ár og
með liðinu leikur meðal annnars
fyrrum lærisveinn Alfreðs Gísla-
sonar hjá Magdeburg, Gueric
Kervadec, en hann er einn öflug-
asti varnarmaður heims.
Fréttablaðið setti sig í sam-
band við Viggó Sigurðsson, þjálf-
ara Hauka, og spurði hann út í
leikinn. Viggó sagðist búast við
mjög erfiðum leik en því færi þó
fjarri að hann og hans menn væru
smeykir við verkefnið sem biði
þeirra. „Við erum búnir að spila
við lið eins og Magdeburg og
Barcelona í Meistaradeildinni
þannig að lið eins og Cretéil skýt-
ur okkur ekki skelk í bringu. Þetta
er þó mjög öflugt lið eins og
staðan í frönsku deildinni sýnir
þar sem liðið er í öðru sæti. Styrk-
leikur franska liðsins liggur í
sterkum varnarleik, þeir skora
ekki mikið af mörkum og því ætl-
um við að keyra upp hraðann í
leiknum, keyra á þá og keyra síð-
an yfir þá,“ sagði Viggó Sigurðs-
son í vígamóð.
Varðandi markmið Haukanna í
leiknum sagði Viggó að heimavöll-
ur franska liðsins væri mjög
sterkur. „Ég yrði mjög sáttur við
allt minna en fjögurra marka tap
en að sjálfsögðu munum við spila
til sigurs. Við gerum það alltaf –
hvar sem við spilum.“ ■
Stjarnan leikur í
úrvalsdeildinni
HANDBOLTI Stjarnan tryggði sér
sæti í úrvalsdeild með 29-23 sigri
á Breiðabliki í lokaumferð suður-
riðils RE/MAX-deildar karla í
handbolta. FH-ingar, sem kepptu
við Garðbæingana um sæti í úr-
valsdeildinni, töpuðu í gær 30-28
fyrir HK í Digranesi og leika því í
1. deild eftir áramót.
Möguleikar FH-inga á sæti í
úrvalsdeildinni fólust í sigri á HK
og því að Blikar næðu að minnsta
kosti jafntefli í Garðabænum.
Leikur HK og FH var jafn allan
tímann. HK byrjaði betur en FH-
ingar náðu frumkvæðinu þegar
leið á fyrri hálfleikinn og leiddu í
hléi. HK byrjaði seinni hálfleikinn
af krafti og komst yfir að nýju á
fyrstu tíu mínútunum. FH-ingar
náðu að jafna stöðuna og komast
yfir í tvígang en HK var sterkara
á lokasprettinum og sigraði 30-28.
Augustas Strazdas skoraði átta
mörk fyrir HK, Andrius Rac-
kauskas sjö og Haukur Sigurvins-
son fimm. Logi Geirsson skoraði
níu af mörkum FH-inga, horna-
maðurinn Guðmundur Pedersen
skoraði úr öllum fimm skotum
sínum og Brynjar Geirsson setti
fjögur mörk. Magnús Sigmunds-
son varði nítján skot í marki FH.
ÍR, Haukar, HK og Stjarnan
keppa í úrvalsdeildinni eftir ára-
mót en FH, ÍBV, Breiðablik og Sel-
foss keppa í 1. deild. Sex efstu fé-
lög úrvalsdeildar komast í úrslita-
keppnina og tvö félög úr 1. deild.
Valur vann Þór 35-29 að Hlíðar-
enda og varð efst í norðurriðli.
Markús Máni Michaelsson skor-
aði sjö mörk fyrir Val en Páll Við-
ar Gíslason var markahæstur
gestanna með níu mörk. KA,
Fram og Grótta/KR fylgja Val í
úrvalsdeildina en Víkingur, Aftur-
elding og Þór leika í 1. deild.
Hinar vinsælu stál- og
koparstyttur í miklu úrvali
HALLI
GULLSMIÐUR
Skólavörðustíg 8
s. 551 8600
Farartæki
Tónlist
ÍþróttirStarfsstéttir
Áletrun á flesta hluti
Póstsendum
VIGGÓ SIGURÐSSON
Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka, býst við mjög erfiðum leik gegn Cretéil.
ÚRSLIT Í NORÐURRIÐLI
RE/MAX-DEILDAR KARLA
Valur - Þór Ak. 35-29
LOKASTAÐAN Í NORÐURRIÐLI
Valur 12 8 2 2 331:287 18
KA 12 7 2 3 358:320 16
Fram 12 7 2 3 326:298 16
Grótta/KR 12 6 2 4 313:303 14
Víkingur 12 6 2 4 314:305 14
Afturelding 12 2 1 9 288:342 5
Þór 12 0 1 11 297:372 1
ÚRSLIT Í SUÐURRIÐLI
RE/MAX-DEILDAR KARLA
Stjarnan - Breiðablik 29-23
HK - FH 30-28
ÍBV - Selfoss 30-28
LOKASTAÐAN Í SUÐURRIÐLI
ÍR 14 11 2 1 417:348 24
Haukar 14 10 1 3 433:371 21
HK 14 10 1 3 403:367 21
Stjarnan 14 8 1 5 375:371 17
FH 14 7 0 7 403:380 14
ÍBV 14 4 1 9 414:421 9
Breiðablik 14 2 0 12 353:460 4
Selfoss 14 1 0 13 369:449 2
HK VANN FH
Brynjar Geirsson (FH) og Hörður Fannar Sigþórsson (HK) í leik félaganna í Digranesi í gær.
HEIÐAR SKORAÐI Heiðar Helgu-
son skoraði seinna mark Watford
sem gerði 2-2 jafntefli við Sheffi-
eld United á útivelli í ensku 1.
deildinni. Heiðar var í byrjunar-
liði Watford en var skipt út af
korteri fyrir leikslok.
FOREST TAPAÐI Brynjar Björn
Gunnarsson lék síðustu átján
mínúturnar þegar Nottingham
Forest tapaði 1-0 fyrir Crystal
Palace í ensku 1. deildinni.
STOKE VANN READING Hollend-
ingurinn Peter Hoekstra skoraði
öll mörk Stoke, sem vann Read-
ing 3-0 á heimavelli. Ívar Ingi-
marsson lék allan leikinn með
Reading.
JAFNT HJÁ BARNSLEY Barnsley
gerði jafntefli á heimavelli við
Sheffield Wednesday í ensku 2.
deildinni í gær. Barnsley er í
fjórða sæti deildarinnar.
■ Fótbolti