Fréttablaðið - 14.12.2003, Page 40

Fréttablaðið - 14.12.2003, Page 40
FÓTBOLTI Manchester United komst í efsta sæti ensku úrvalsdeildar- innar með 3-1 sigri á nágrönnum sínum í Manchester City í hádeg- inu í gær. Chelsea tókst ekki að ná efsta sætinu á ný en Arsenal, sem leikur við Blackburn í dag, getur skotist upp fyrir bæði félögin. Paul Scholes skoraði tvö mörk með skalla fyrir United, það fyrra strax á sjöundu mínútu eftir send- ingu frá Gary Neville af hægri kanti og það seinna á 73. mínútu eftir sendingu frá Kleberson, einnig af hægri kantinum. Ruud van Nistelrooy skoraði annað mark United með skalla á 34. mín- útu eftir sendingu frá Ryan Giggs. Shaun Wright-Phillips skoraði mark City snemma í seinni hálfleik eftir einleik í gegn- um vörn United. Bolton vann Chelsea á Stam- ford Bridge í fyrsta sinn í rúman aldarfjórðung. Hernan Crespo skoraði fyrir Chelsea um miðjan fyrri hálfleik en Bruno N’Gotty jafnaði fyrir gestina skömmu fyr- ir hlé með skalla eftir aukaspyrnu Youri Djorkaeff. Bolton skoraði sigurmarkið á lokamínútunni þeg- ar varnarmaðurinn John Terry sendi boltann í eigið mark eftir fasta sendingu Henrik Pedersen inn í markteiginn. Brett Ormerod skoraði strax á annarri mínútu fyrir South- ampton á Anfield Road eftir stungusendingu Claus Lunde- kvam. Michael Svensson setti annað mark gestanna um miðjan seinni hálfleik með hörkuskalla úr miðjum teig en Emile Heskey minnkaði muninn fyrir Liverpool korteri fyrir leikslok. Sigurmark Wayne Rooney gegn Portsmouth færði Everton fyrsta útisigurinn á leiktíðinni. Rooney skoraði síðast í 2-2 jafn- tefli gegn Charlton í lok ágúst. Laurent Robert og Alan Shearer skoruðu tvö mörk hvor þegar Newcastle vann Tottenham 4-0. Fyrra mark Shearers var 100. mark hans á St. James’ Park. Her- mann Hreiðarsson lék allan leik- inn með Charlton, sem gerði markalaust jafntefli við Middles- brough. Hermann fékk gult spjald skömmu fyrir leikslok. 40 14. desember 2003 SUNNUDAGUR Á FLUGI Eistlendingurinn Jens Salumae keppti í skíðastökki í Titisee-Neustadt í suðurhluta Þýskalands. Skíðastökk FÓTBOLTI Mark frá Hollendingnum Roy Makaay færði meisturum Bayern München sigur á Stutt- gart í gær. Makaay skoraði eina mark leiksins korteri fyrir leiks- lok eftir langa markspyrnu frá Oliver Kahn. Stuttgart féll niður í annað sæti eftir tapið en Bayern er komið í fjórða sætið. Werder Bremen komst í efsta sætið með góðum útisigri á Bayer Leverkusen. Ailton og Mladen Krstajic skoruðu fyrir gestina skömmu fyrir leikhlé. Um miðjan seinni hálfleik var Jo- han Micoud hjá Werder rekinn af velli og stuttu síðar minnkaði Jens Nowotny muninn fyrir Leverkusen. Nowotny var rekinn af velli á lokamínútunni fyrir að brjóta á Grikkjanum Angelos Charisteas í vítateignum og skor- aði Krisztian Lisztes úr vítinu sem brotið gaf. Bochum vann Eintracht Frank- furt 1-0 með marki Vahid Heshemian um miðjan fyrri hálf- leik. Þórður Guðjónsson var með- al varamanna Bochum en kom ekki við sögu í leiknum. ■ United efst eftir sigur á City Manchester United vann Manchester City 3-1 á Old Trafford en Chelsea tapaði 2-1 á heimavelli fyrir Bolton. Uppboð til styrktar krabbameinssjúkum börnum Sunnudaginn 14. desember kl. 16 verður haldið uppboð í Nikebúðinni Laugavegi 6 á árituðum íþróttatreyjum. Allur ágóði af uppboðinu mun renna til Félags krabbameinssjúkra barna. Þeir íþróttamenn sem m.a. hafa gefið áritaða treyju eru: Jóhannes K. Guðjónsson, Jay Jay Okocha, Þórður Guðjónsson, Youri Djorkaeff, Ólafur Ingi Skúlason, Ólafur Stefánsson o.m.f. Laugavegi 6 • S: 562 3811 ÚRSLIT GÆRDAGSINS Bayer Leverkusen - Werder Bremen 1-3 Nowotny (72.) - Ailton (42.), Krstajic (44.), Lisztes, vsp. (90.) Bayern München - Stuttgart 1-0 Makaay (75.) Hamborg - Freiburg 4-1 Reihardt (7.), Barbarez (18.), Maltritz (66.), Rahn (88.) - Antar (51.) Hansa Rostock - Köln 1-1 Prica (64.) - Podolski (35.) Hertha Berlin - 1860 München 1-1 A. Friedrich (53.) - Lauth (57.) Kaiserslautern - Schalke 0-2 Asamoah (7.), Agali (85.) Bochum - Eintracht Frankfurt 1-0 Heshemian (21.) LEIKIR DAGSINS: Wolfsburg - Hannover Bor. Mönchengladbach - Borussia Dortmund Þýska Búndeslígan: Bayern stöðvaði Stuttgart MAKAAY OG HILDEBRAND Roy Makaay (Bayern München) í baráttu við Timo Hildebrand, markvörð Stuttgart. ÚRSLITIN Í GÆR: Chelsea - Bolton 1-2 Crespo (22.) - N’Gotty (38.), Terry, sjálfsm. (90.) Leicester - Birmingham 0-2 Morrison (42.), Forssell (66.) Liverpool - Southampton 1-2 Heskey (75.), Ormerod (2.), Svensson (62.) Man. United - Man. City 3-1 Scholes (7., 73.), van Nistelrooy (34.) - Wright-Phillips (52.) Middlesbrough - Charlton 0-0 Newcastle - Tottenham 4-0 Robert (35., 55.), Shearer (59., 65.) Portsmouth - Everton 1-2 Roberts (15.) - Carsley (27.), Rooney (42.) LEIKIR DAGSINS Arsenal - Blackburn Aston Villa - Wolves Leeds - Fulham STAÐAN Í ÚRVALSDEILDINNI Man. United 16 12 1 3 32:10 37 Chelsea 16 11 3 2 30:12 36 Arsenal 15 10 5 0 29:11 35 Fulham 15 7 4 4 26:19 25 Newcastle 16 6 6 4 25:20 24 Southampton 16 6 5 5 15:12 23 Charlton 16 6 5 5 22:20 23 Birmingham 16 6 5 5 14:18 23 Liverpool 16 6 4 6 23:18 22 Bolton 16 5 6 5 16:22 21 Middlesbrough 16 5 5 6 12:15 20 Man. City 16 5 4 7 23:22 19 Tottenham 16 5 3 8 18:24 18 Blackburn 15 5 2 8 23:24 17 Everton 16 4 5 7 17:20 17 Leicester 16 4 4 8 23:25 16 Portsmouth 16 4 4 8 18:22 16 Aston Villa 15 3 5 7 11:21 14 Leeds 15 3 3 9 13:34 12 Wolves 15 2 5 8 11:32 11 PAUL SCHOLES Skoraði tvisvar í 3-1 sigri Manchester United á Manchester City.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.