Fréttablaðið - 14.12.2003, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 14.12.2003, Blaðsíða 41
SUNNUDAGUR 14. desember 2003 hvað?hvar?hvenær? 11 12 13 14 15 16 17 DESEMBER Sunnudagur EM í körfubolta: Í riðli með Aserum KÖRFUBOLTI Íslendingar leika í riðli með Rúmenum, Dönum og Aserum í A-riðli B-deildar Evr- ópukeppninnar í körfuknattleik. Leikið verður heima og heiman og hefja Íslendingar keppni með útileik gegn Dönum 11. septem- ber 2004. Íslendingar leika við Asera á heimavelli 14. september og við Rúmena á heimavelli 18. september. Síðari umferðin fer fram í september 2005. Sigurveg- ari A-riðils mætir sigurvegara B- riðils í leikjum um laust sæti í A- deildinni. Í B-riðli leika Írar, Svisslendingar, Slóvakar og Möltumenn. ■ ■ ■ LEIKIR  14.00 KFÍ og Njarðvík keppa á Ísa- firði í bikarkeppni KKÍ&Lýsingar í kvennaflokki.  16.00 Reynir S. mætir Hamri í Sandgerði í bikarkeppni KKÍ&Lýsingar í karlaflokki.  16.30 Höttur leikur við Njarðvík á Egilsstöðum í bikarkeppni KKÍ&Lýsingar í karlaflokki.  19.15 Fjölnir mætir HK í Grafarvogi í bikarkeppni KKÍ&Lýsingar í karlaflokki.  19.15 KFÍ keppir við Hauka á Ísa- firði í bikarkeppni KKÍ&Lýsingar í karla- flokki.  19.15 ÍR fær Grindavík í heim- sókn í Seljaskóla í bikarkeppni KKÍ&Lýs- ingar í karlaflokki.  19.15 Þór Þorl. og Keflavík keppa í Þorlákshöfn í bikarkeppni KKÍ&Lýsingar í karlaflokki. ■ ■ SJÓNVARP  12.30 Boltinn með Guðna Bergs á Sýn. Enski boltinn frá ýmsum hliðum.  13.45 Enski boltinn á Sýn. Bein útsending frá leik Arsenal og Blackburn Rovers.  15.50 Enski boltinn á Sýn. Bein útsending frá leik Leeds United og Ful- ham.  17.00 Markaregn á RÚV. Sýndir verða valdir kaflar úr leikjum 16. um- ferðar í þýska fótboltanum.  17.50 Spænski boltinn á Sýn. Bein útsending frá leik Real Madrid og Deportivo La Coruna.  20.05 European PGA Tour 2003 á Sýn. Þáttur um Volvo Masters mótið.  21.00 Boltinn með Guðna Bergs á Sýn. Enski boltinn frá ýmsum hliðum.  21.45 Helgarsportið á RÚV.  22.30 UEFA Champions League á Sýn. Fréttaþáttur um Meistaradeild Evr- ópu.  23.00 Hnefaleikar á Sýn. Útsend- ing frá boxkeppni í Atlantic City þar sem kepptu Ricardo Mayorga og Cory Spinks, Bernard Hopkins og William Joppy og Hasim Rahman og John Ruiz.  23.30 HM kvenna í handbolta á RÚV. Sýndur verður úrslitaleikurinn í heimsmeistarakeppni kvenna í hand- bolta. SUND Örn Arnarson fékk í gær fimmta besta tímann í undanúr- slitum í 100 metra baksundi á Evr- ópumótinu í 25 metra laug. Örn synti á 52,70 sekúndum og bætti árangur sinn um 0,07 sekúndur frá undarásunum. Þjóðverjinn Thomas Rupprath fékk besta tímann í undanúrslit- um og synti á tímanum 51,35 sek- úndum en landi hans Steffen Driesen (52.24) varð annar, Rúss- inn Arkady Vyatchanin (52.57) varð þriðji og Ungverjinn Laszlo Cseh (52,63) varð fjórði. Örn náði einnig fimmta besta tímanum í undarásum. Þá synti hann á 52,77 sekúndum en Þjó- verjinn Steffen Driesen náði besta timanum og synti á 51,97 sekúndum en Rupprath synti á 52,13. Bretinn Gregor Tait varð þriðji í undarásunum og Austur- ríkismaðurinn Markus Rogan fjórði en þeir keppa báðir í úr- slitasundinu í dag. ■ ÖRN ARNARSON Keppir í úrslitum í 100 metra baksundi í dag. EM í 25 metra laug: Örn í úrslit

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.