Fréttablaðið - 14.12.2003, Side 46

Fréttablaðið - 14.12.2003, Side 46
46 14. desember 2003 SUNNUDAGUR Ég beið mjög spennt eftir þess-ari helgi því komandi vika verður alveg rosalega brjáluð,“ segir Auður Lilja úr Djúpu laug- inni. Það er ekki bara jólastússið sem verður stressandi í komandi viku því síðasti þátturinn af Djúpu lauginni fer í loftið á föstu- dag og verður hann með all sér- stöku sniði. „Þetta verður jólaþáttur og undirbúningurinn hefst strax á mánudag. Við ætlum að vera með ofsalega mikið af góðu og skemmtilegu fólki. Ég vinn sem söluráðgjafi í Aco Tæknival og eyði meirihluta dagsins þar. Í því starfi bíður mín líka mjög anna- söm vika, það er ótrúlega mikið í gangi. Svo þarf ég að sinna jóla- stússinu, koma jólagjöfunum út á land og út úr landi, skrifa jólakort og fleira.“ Auður segist vera búin að kaupa flestallar jólagjafirnar og að hún eigi aðeins eftir að pakka þeim inn. Vinnan á Skjá einum verður líka óhefðbundin þar sem lokaþátturinn verður með allt öðru sniði en venju- lega. Til dæmis verður enginn stefnumótaleikur í honum og þrjár hljómsveitir koma og spila. „Við ætl- um að vera með uppákomur og sýna úr gömlum þáttum vetrar- ins. Ætlum að at- huga hvort við finnum einhver mistök eða önn- ur atriði sem er ekki æskilegt að komi í beinni út- sendingu en hef- ur kannski runnið upp úr manni,“ segir Auður Lilja sem kveður sjón- varpsskjáinn í bili á föstudag. ■ Vikan sem verður AUÐUR LILJA ■ Undirbýr að tæma vatnið úr Djúpu lauginni og sinna jólaundirbúningnum. Tekur tappann úr Djúpu lauginni Á mánudögum: Auglýsendur, hafið samband við Petrínu í síma 515 7584 eða Ester í síma 515 7517 og tryggið ykkur pláss. Föðursvipting = barnamisnotkun F é l a g á b y r g r a f e ð r a F e ð r a h e i l l Samkvæmt samningum semStöð 2 gerði við keppendur í Idol mega þeir ekki tjá sig við aðra fjölmiðla. Þetta ákvæði gildir þrátt fyrir að keppend- urnir séu fallnir úr keppni og þar til henni lýkur. Rannveig Káradóttir, sem féll úr keppni á föstudag, neitaði því að tala við Fréttablaðið. „Hún má ekki tala við þig vegna þess að hún er samnings- bundin í ákveðinn tíma,“ útskýr- ir Vigdís Jóhannsdóttir, fjöl- miðlafulltrúi Idol. „Það erum við sem gefum grænt ljós á það hvernig umfjöllun er út á við. Öll fjölmiðlaumfjöllun fer í gegnum okkur og við stýrum umfjölluninni sem þau fara í. Það á við viðtöl og annað.“ Vigdís segir stöðina þó ekki vera að reyna að stjórna því hvernig dagblöðin fjalli um keppnina. Hún segir reglurnar vera gerðar til þess að vernda hag keppendanna, bæði þeirra sem eru enn eftir og þeirra sem hafa fallið úr. „Við erum ekki að reyna að stýra því hvað stendur í viðtölunum eða greinunum. Þetta er gert af tveimur ástæð- um. Til þess að verja þeirra hag. Við getum aðstoðað þau því þau eru svo ný í því að vera í sam- skiptum við fjölmiðla. Þau eru ekki vön því að fjölmiðlar sæk- ist eftir því að tala við þau. Svo er þetta gert til þess að vernda þá keppendur sem eru enn eftir í keppninni.“ Í síðustu viku talaði Jóhanna Vala, sem datt úr keppninni þar- síðast, við Fréttablaðið og tjáði sig um þátttöku sína. Vigdís segir það hafa valdið fjaðrafoki innan stöðvarinnar. Jóhannaa Vala hafði þó ekkert slæmt um keppnina að segja. „Úti hefur það komið fyrir að þeir kepp- endur sem hafa dottið út hafa talað illa um þá sem eru eftir. Við erum bara að reyna að koma í veg fyrir það. Þau sem eru í keppninni verða öll að fá jafna umfjöllun. Þau sem detta úr eru því samningsbundin áfram svo að það sé hægt að passa upp á það að það fari ekki af stað nei- kvæð umfjöllun. Svona geta þeir sem eru dottnir út ekki skaðað þá sem eru áfram í keppninni,“ segir Vigdís að lok- um. biggi@frettabladid.is PAVAROTTI GIFTIR SIG Það var gleði dagur í lífi tenórsins Lucianos Pavarottis í gær þegar hann giftist kærustu sinni til langs tíma. Hún heitir Nicoletta Mantovani og er framleiðandi. Hér sést óperu- söngvarinn mæta í kirkjuna en athöfnin var víst full af söng og gleði. Hjónin eiga saman eins árs gamla dóttur. Pavarotti er 68 ára og er því akkúrat helmingi eldri en eiginkonan. AUÐUR LILJA Lokaþáttur Djúpu laugarinnar verður jólaþáttur, það verða þó engir jóla- sveinar í biðilssæt- unum. „Við ætlum ekki að reyna að koma Stekkjarstaur út,“ segir Auður og hlær. „Við leyfum þeim bara að vera einhleypum.“ Idol RANNVEIG KÁRADOTTIR DATT ÚT ■ Þeir keppendur sem falla úr Idol eru áfram í fjölmiðlabanni, þar til keppninni lýkur. Talsmenn Stöðvar 2 segja þetta gert til þess að vernda þátttakendur. RANNVEIG KÁRADÓTTIR Datt úr keppni á föstudag. Kaus að virða samning sinn við Stöð 2 og tjá sig ekki við Fréttablaðið. Fallnir keppendur áfram í fjölmiðlabanni Vefritið Kreml.is á þriggja áraafmæli um þessar mundir. At- hygli hefur vakið að aðstandendur þess munu ekki halda afmælis- hátíð eins og gert hefur verið und- anfarin ár. Gárungarnir segja að það sé vegna þess að Jón Baldvin Hannibalsson, verndari Kremlar, er ekki staddur á landinu, en hann hefur alltaf verið heiðursgestur á þessum samkomum. Það sé því ekki hægt að halda afmælishátíð án hans. Ritstjórnin vill þó meina að hátíðarhöldum hafi verið frestað um stutta stund því miklar breytingar séu í vændum og eðli- legra sé að bjóða til veislu þegar hið nýja vefrit verði kynnt. Þá á bara eftir að sjá hvort Jón Baldvin haldi áfram sem guðfaðir vefrits- ins eða hvort einhver nýr taki við með breyttum áherslum. Fréttiraf fólki

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.