Fréttablaðið - 10.01.2004, Blaðsíða 10
10 10. janúar 2004 LAUGARDAGUR
Dollarinn á lægstu slóðum sínum í fimm ár:
Krónan hækkar líklega áfram
EFNAHAGSMÁL Gengi krónunnar
gagnvart dollara hefur hækkað um
tíu krónur á fjögurra mánaða tíma-
bili og um rúmar 40 krónur ef miðað
er við nóvember 2001 þegar krónan
var hvað veikust gagnvart dollara.
Líklegra er að krónan styrkist á
næstunni en að hún veikist.
Afleiðingar þessa eru margvís-
legar. Skuldir í dollurum lækka, inn-
flutningsverð vöru sem greitt er
fyrir í dollurum er lægra og ódýr-
ara er að fjárfesta í Bandaríkjun-
um. Fyrri fjárfesting verðfellur
hins vegar og útflytjendur sem fá
greitt í dollurum verða fyrir búsifj-
um.
„Ég held að þetta sé leiðrétting
ef við lítum aftur til þess
tíma þegar dollarinn fór í
110 krónur í lok árs 2001.
Það var klárlega yfirskot,
dollarinn of sterkur og
krónan of veik,“ segir
Ingólfur Bender, for-
stöðumaður Greiningar
Íslandsbanka, og kveður
stóran hluta gengisbreyt-
ingarinnar vera leiðrétt-
ingu. „Að vissu leyti er
komin upp öfug staða nú
ef maður lítur á stöðu
krónunnar gagnvart öðrum mynt-
um. Það er okkar mat að hún sé of-
metin og komi til með að lækka.“
Ingólfur segir að það gerist þó ekki
á næstu vikum og mánuðum heldur
sé líklegt að krónan styrki sig á
tímabili stóriðjuframkvæmda en
lækki í kjölfarið. ■
Hér er bannað að hafa eiturlyfum hönd og við höfum aldrei
selt áfengi. Þetta er bara fjölskyldu-
klúbbur,“ segir Sverrir Þór Einars-
son, húðflúrari og forseti vélhjóla-
klúbbsins Ýmis í Kópavogi, sem
bendlaður hefur verið við glæpa-
samtökin Bandidos.
Fréttablaðið heimsótti Sverri í
klúbb hans á Skemmuvegi 22 í
Kópavogi. Sverrir, sem reyndar er
betur þekktur sem Sverrir Tattú,
var á staðnum ásamt syni sínum
Daða Geir, 20 ára, og Diljá Finn-
bogadóttur, 18 ára sambýliskonu.
Sverrir, sem er 43 ára, segir fjöl-
skylduna einstak-
lega samrýnda.
Daði samsinnir
því og segist
kalla Diljá
mömmu.
Sverrir segist
sjálfur búa í
H a f n a r f i r ð i
ásamt sambýliskonunni en Daði
Geir býr í klúbbnum, sem jafnframt
er húðflúrstofa og vinnustaður
Sverris. Bar er á staðnum og svið
fyrir uppákomur auk billjardborðs.
Lítið verkstæði er þiljað af en þar
eru tvö Harley Davidson-mótorhjól
í eigu Sverris.
Miklum sögum fer af samkvæm-
um á staðnum seinasta árið og hefur
lögreglan í Kópavogi haft staðinn
undir eftirliti þar sem grunur er um
að sala og neysla á eiturlyfjum hafi
átt sér stað þar.
Sverrir Tattú er þekktur fyrir að
hafa verið dæmdur í tveggja ára
fangelsi fyrir manndráp ásamt öðr-
um á sínum tíma þegar maður lést
eftir átök á veitingastaðnum Vegas.
„Þetta mál fór seinna fyrir
Mannréttindadómstólinn í Strass-
burg þar sem í ljós kom að framið
hafði verið á okkur réttarmorð og
maðurinn dó úr sjúkdómi. Okkur
voru dæmdar bætur,“ segir Sverrir.
Hann segist hafa verið í óreglu á
þeim tíma en nú snerti hann ekki
eiturlyf og lifi heilbrigðu lífi.
Félagi í Fáfni
Sverrir var áður félagi í mótor-
hjólaklúbbnum Fáfni, sem sótt hef-
ur um inngöngu í Hells Angels, en
hætti þar, til að stofna sinn eigin
klúbb. Á sínum tíma þegar Hells
Angels komu til Íslands, að sögn til
að skoða Gullfoss og Geysi, var
Sverrir Þór til andsvara í fjölmiðl-
um ásamt Brynjólfi Þór Jónssyni,
forseta Fáfnis. Sverrir segist enn
vera á þeirri skoðun að ekki eigi að
banna Englunum að koma til lands-
ins sem ferðamenn. Leiðir hans og
Fáfnis skildu nokkru síðar þegar
hann stofnaði Ými.
„Ég var til reynslu í nokkra mán-
uði en leist ekki á þetta og fór,“ seg-
ir Sverrir Tattú.
Hann segist ekki eiga önnur
fjárhagsleg samskipti við vél-
hjólaklíkuna Bandidos en að hafa
keypt af þeim mótor í Harley
Davidson-hjól sitt.
„Ég þekki sáralítið til Bandidos
eða Hells Angels,“ segir Sverrir og
bætir við að þar sé að finna menn
sem stundi glæpi. Sverrir segist að-
eins hafa kynnst einum félaga í
Bandidos, Hjalta Kárasyni, sem
komið hafi til Íslands á dögunum í
frómum tilgangi.
„Hann kom til landsins til að
mæta í barnaafmæli og skoðaði
hvernig Harley-menningin er á Ís-
landi og fannst það mikið fyndið í
samanburði við það sem gerist á
Norðurlöndunum,“ segir Sverrir en
það er skilyrði fyrir inngöngu fé-
laga að þeir eigi Harley Davidson-
mótorhjól. Sverrir segist vera eini
fullgildi félaginn í Ými og að félags-
skapurinn sé í raun óvirkur þar sem
tveir félagar sem þar voru hafi hætt
vegna þess að þeir gátu ekki komið
sér upp hjólum.
Víkingasveit á staðinn
Lögreglan hefur fylgst grannt
með klúbbnum að undanförnu.
Sverrir segir að þeir hafi ekkert
fundið þrátt fyrir að Víkingasveitin
hafi verið kölluð út eftir að „nær-
sýnn“ lögreglumaður hafi talið sig
sjá byssuskefti í bifreið Daða.
„Það kom fjöldi lögreglumanna
að en niðurstaðan var sú að það
sem lögreglumaðurinn sá var rúðu-
skafa,“ segir Sverrir.
Miklum sögum hefur farið af því
að um jólin hafi verið standandi
eiturlyfjapartí í klúbbi Sverris.
Tölvupóstur sem inniheldur svæsn-
ar lýsingar á því að „vélhjólaklíka“
hafi þar misnotað 14 ára stúlku hef-
ur farið um sem logi yfir akur.
Sverrir er nafngreindur þar og vís-
að er til móður stúlkunnar í frásögn
af því að stúlkan hafi verið misnot-
uð. Meðal annars hefur tölvuskeytið
komið inn á allar lögreglustöðvar á
landinu. Sverrir segir að tölvupóst-
urinn eigi uppruna sinn á spjallvef
femin.is. Þetta sé gróf aðför að
mannorði sínu því hann hafi öll jól-
in verið heima hjá sér í Hafnarfirði.
Daði sonur hans tekur í sama streng
og segist hafa verið einn á staðnum
um alla hátíðina.
„Á annan í jólum vorum við í
matarboði hjá mömmu. Ég kom
hingað á aðfangadag en síðan ekki
fyrr en á gamlárskvöld þegar ég
skaut hér upp flugeldum ásamt
börnunum mínum,“ segir Sverrir.
Hann segir að eftir að hann hafi
skotið upp flugeldum hafi hann far-
ið í klúbb Fáfnis í Hafnarfirði til að
skemmta sér í góðum félagsskap.
„Það er af og frá að ég standi fyr-
ir einhverju eiturlyfjasukki eða
misnoti ungar stúlkur. Þetta er
rakalaus óhróður í skjóli nafnleynd-
ar,“ segir Sverrir, sem í gær kærði
femin.is til lögreglunnar í Kópavogi
og óskaði eftir rannsókn á sjálfum
sér og klúbbnum. ■
Kröfur sérfræðilækna:
Fari fyrir
Alþingi
HEILBRIGÐISMÁL „Einungis Alþingi get-
ur tekið afstöðu til sumra krafna sér-
fræðilækna því þær snúast um
breytingu á grundvallarreglunni um
jafnan aðgang allra að heilbrigðis-
kerfinu, án tillits til efnahags. Þess
vegna hefur Tryggingastofnun í
reynd enga heimild til að semja um
þær kröfur,“ segir Össur Skarphéð-
insson um stöðuna í kjaradeilu sér-
fræðilækna.
Össur segir kröfurnar ekki síst
snúast um það grundvallaratriði
hvort menn geti borgað sig fram fyr-
ir á biðlistum. Verið sé að búa til eitt
kerfi fyrir þá efnameiri sem eiga
peninga og annað fyrir hina. ■
„Á annan í
jólum vorum
við í matar-
boði hjá
mömmu.
Hugo Þórisson
sálfræðingur
Wilhelm Norðfjörð
sálfræðingur
Nýtt námskeið að hefjast
Upplýsingar og skráning í
s: 562 1132 og 562 6632
eftir kl. 16 og um helgar
Á námskeiðinu verður
m.a. fjallað um:
• Þroska barna, sjálfsmynd
og samskipti.
• Vandamál sem geta komið upp
í samskiptum innan
fjölskyldunnar.
• Aðferð til þess að kenna
börnum að taka ábyrgð.
• Hvernig hægt er að tala við börn
og tryggja að þau vilji hlusta.
• Aðferðir til þess að kenna
börnum tillitsemi og sjálfsaga.
• Aðferðir til að komast út úr
samskiptum þar sem eru
sigurvegarar og taparar.
• Hugmyndir um hvernig er hægt
að hafa jákvæð áhrif á gildismat
barna.
www.samskipti.org
Voðaskot:
Komin af
gjörgæslu
SLYS Stúlkan sem varð fyrir voða-
skoti á Hallormsstað á Héraði á
mánudagskvöld er á batavegi. Að
sögn vakthafandi læknis á gjör-
gæsludeild Landspítala við Hring-
braut var stúlkan flutt yfir á Barna-
spítala Hringsins í fyrradag.
Slysið varð þegar stúlkan, sem
er níu ára, og þrettán ára systir
hennar voru að leika sér með riffil.
Skot hljóp úr honum og fór í stúlk-
una. Stúlkan var flutt alvarlega
slösuð á heilsugæslustöðina á Egils-
stöðum og þaðan með sjúkraflugi til
Reykjavíkur. ■
GJAFMILDUR
Silvio Berlusconi gaf undirmönnum sínum
geisladisk með ljóðum eftir hann sjálfan.
Óvænt nýársgjöf:
Enn deilt á
Berlusconi
ÍTALÍA Silvio Berlusconi, forsætis-
ráðherra Ítalíu, ákvað að gleðja
2.000 konur, sem starfa á skrifstof-
um hins opinbera, með óvæntri
nýársgjöf.
Þegar konurnar mættu til vinnu
eftir jólafrí lá pakki á borði þeirra
með kveðju frá forsætisráðherran-
um. Í pakkanum var geisladiskur
tónlistarmannsins Mariano Apicella
þar sem hann syngur frumsamin
lög við ljóð eftir Berlusconi sjálfan.
Uppátæki forsætisráðherrans
hefur mælst misvel fyrir. Margir
velta því fyrir sér hvers vegna karl-
menn sem starfa hjá hinu opinbera
fengu engar gjafir en aðrir vilja fá
að vita hver borgaði brúsann. ■
68,55
01/1997
68,47
10/1998
87,38
11/2000
104,61
06/2001
85,56
07/2002
72,96
05/2003
79,83
09/2003
69,91
01/2004
107,30
11/2001
98,48
08/2001
72,90
01/1998
74,50
07/1999
ÞRÓUN KRÓNU GAGNVART DOLLARA
Miðgildi á verðmæti krónu gagnvart dollar miðað við meðalgengi í mánuði.
FJÖLSKYLDAN
Klúbbur sem kenndur hefur verið við vélhjólaklúbbinn Ými í Kópavogi hefur verið undir smásjá lögreglunnar. Eigandinn Sverrir Þór Jóns-
son er hér ásamt sambýliskonunni Diljá Finnbogadóttur og syninum Daða Geir Sverrissyni.
Fréttaskýring
REYNIR TRAUSTASON
■ heimsótti höfuðstöðvar vélhjóla-
klúbbsins Ýmis, sem bendlaður er við
vélhjólaklíkuna Bandidos.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Svonaerum við
HLUTFALL ÍSLENDINGA
Í ÞJÓÐKIRKJUNNI
1996 80,48%
1997 89,94%
1998 89,37%
1999 88,71%
2000 87,83%
2001 87,08%
2002 86,56%
2003 86,08%
HEIMILD: HAGSTOFAN.
Forseti Ýmis segist
reka fjölskylduklúbb
Sverrir Þór Einarsson er eigandi umdeilds næturklúbbs í Kópavogi sem lögreglan vaktar. Hann
er sakaður um það á Netinu að hafa misnotað unglingsstúlku og gefið henni eiturlyf. Hann segir
það óhróður og hefur kært femin.is til lögreglu. Sver af sér tengsl við Bandidos.