Fréttablaðið - 10.01.2004, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
LÝ
SI
NG
AS
TO
FA
N
EH
F/
SI
A.
IS
IK
E
23
12
4
12
.2
00
3
©
In
te
r
IK
EA
S
ys
te
m
s
B.
V.
2
00
3
Rýmum fyrir nýju ári 27/12 - 18/01
Útsala
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.ikea.is
Bakþankar
REYNIS TRAUSTASONAR
Smalinn
Maður gerir ekki mannamun ogþá heldur ekki flokkamun,“
sagði maður á miðjum aldri við
kunningja sem hann reyndi ákaft
að fá til þess að ganga til liðs við
Framsóknarflokkinn um stundar-
sakir til að bjarga stjórnmálamanni
frá falli. Kunninginn lét sannfærast
á þriðja bjór og gekk í Framsókn en
gegn loforði um að verða skrifaður
út strax eftir prófkjör.
MAÐURINN sem þarna kom til
bjargar flokknum með dreifbýlis-
ræturnar hafði fengið viðurnefnið
Smali þótt hann héti Guðmundur
eða eitthvað viðlíka látlaust. Um
árabil hafði hann fylgt jafnaðar-
mönnum að málum og var þá gjarn-
an að tjaldabaki og plottaði menn
inn og út af þingi eða sveitarstjórn.
Á endanum varð hann svo klókur að
eftir var tekið. Pólitískur frami var
rakinn beinlínis til Smala, sem
plægði sveitarfélög og kjördæmi í
þágu þeirra sem hann vildi setja á
stall. Framan af hafði Smali haldið
sig við sinn krataflokk en krafta-
verk hans í þessari grein smala-
mennsku spurðust út og aðrir
flokkar tóku að gera honum tilboð.
Fyrst gerðist hann verktaki hjá
Framsókn og orðstírinn óx eftir að
hann smalaði saman hjörð kjósenda
til bjargar umdeildum borgarfull-
trúa sem tekinn var að lifa sjálfan
sig í pólitík.
FYRIR KOSNINGARNAR í vor
var Smali ráðinn til Sjálfstæðis-
flokksins sem verktaki í kjördæmi
ráðherra sem átti undir högg að
sækja vegna asnaprika. Smali tók
að sér að bjarga þeim sem á eftir
ráðherranum komu á listanum.
Þrátt fyrir að bjargvætturinn segði
hlæjandi að hann væri smali með
asnaprik varð árangurinn góður
varnarsigur í kjördæminu. Næst
var komið að öðrum ráðherra sem
með sólarhringsfyrirvara kallaði
Smala til fundar. Þá fór hann í
spariföt og setti á sig bindi en varð
að gefast upp. Sólarhringur dugði
honum ekki til að koma öllu fólki
sínu úr Framsóknarflokknum og
inn í Sjálfstæðisflokkinn. Ráðherr-
ann féll.
Á KJÖRDAG var að vanda fagn-
aður hjá hinum ýmsu flokkum.
Smali var hálfringlaður á rápi sínu
á milli kosningaskrifstofa. Hann
átti alls staðar erindi vegna um-
bjóðenda sinna. Þennan dag fór fyr-
ir honum eins og fálkanum sem
skynjaði skyldleika sinn við rjúp-
una um það bil sem hann goggaði í
hjarta hennar. Smalinn hafði í verk-
töku sinni gengið svo vasklega
fram að gamli flokkurinn hans var
dæmdur til þess að sitja áfram í
stjórnarandstöðu. Hann fékk sér
vinnu á vörubíl. ■
www. .is
Taktu þátt
í spjallinu á
...