Fréttablaðið - 10.01.2004, Side 30

Fréttablaðið - 10.01.2004, Side 30
30 10. janúar 2004 LAUGARDAGUR BÓK VIKUNNAR Úrvalssögur eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson. Fáir íslenskir rithöfundar skrif- uðu betri smásögur á 20. öld en Ólafur Jóhann Sigurðsson. Hann var höfundur sem hafði fádæma gott vald á stíl, eins og úrval þessara sagna sannar. Þetta eru tólf smásögur frá árunum 1939- 1950. Þær eru fjölbreyttar að efni en hver um sig endurspeglar sér- lega vel þann húmanisma sem höfundurinn var fulltrúi fyrir. ■ Bækur METSÖLULISTI BÓKABÚÐA EYMUNDSSONAR ALLAR BÆKUR 1. Almanak Háskóla Íslands. Háskóli Íslands 2. Þú getur hætt að reykja. Guðjón Bergmann 3. Mýrin. Arnaldur Indriðason 4. Almanak Þjóðvinafélagsins. Sögufélagið 5. Í form á 10 vikum. Ágústa Johnson 6. Heilsudagbókin. Ritstjóri Ingvar Jónsson 7. Líkami fyrir lífið. Bill Philips 8. Hlutabréf og eignastýring. Sigurður B. Stefánsson 9. Supersex. Tracy Cox 10. Grafarþögn. Arnaldur Indriðason SKÁLDVERK 1. Mýrin. Arnaldur Indriðason 2. Grafarþögn. Arnaldur Indriðason 3. Hvíta kanínan. Árni Þórarinsson 4. Röddin. Arnaldur Indriðason 5. Synir duftsins. Arnaldur Indriðason 6. Hringadrottinssaga. J.R.R. Tolkien 7. Mávahlátur. Kristín Marja Baldursdóttir 8. Kaldaljós. Vigdís Grímsdóttir 9. Sjálfstætt fólk. Halldór Laxness 10. Hálfbróðirinn. Lars Saabye METSÖLUBÆKUR BÓKABÚÐA EYMUNDSSONAR 31. DESEMBER - 6. JANÚAR METSÖLULISTI BÓKABÚÐA MÁLS OG MENNINGAR ALLAR BÆKUR 1. Þú getur hætt að reykja. Guðjón Bergmann 2. Almanak Háskóla Íslands. Háskóli Íslands 3. Skattur á fyrirtæki. Ásmundur G. Vilhjálmsson 4. Sporin í sandinum. Kristín Snæfells 5. Almanak Þjóðvinafélagsins. Sögufélagið 6. Sjálfstætt fólk. Halldór Laxness 7. Mýrin. Arnaldur Indriðason 8. Fiskar og menn. Ragnar Hólm Ragn- arsson 9. Þúsund vísdóms spor. JPV 10. Saga Íslands VI. Hið íslenska bók- menntafélag SKÁLDVERK 1. Sjálfstætt fólk. Halldór Laxness 2. Mýrin. Arnaldur Indriðason 3. Röddin. Arnaldur Indriðason 4. Mávahlátur. Kristín Marja Baldursdóttir 5. Ár hérans. Arto Paasilinna 6. Napóleonsskjölin. Arnaldur Indriðason 7. Kaldaljós. Vigdís Grímsdóttir 8. Grafarþögn. Arnaldur Indriðason 9. Hobbitinn. J.R.R. Tolkien 10. Hrapandi jörð - Tyrkjaránið. Úlfar Þormóðsson METSÖLUBÆKUR BÓKABÚÐA MÁLS OG MENNINGAR 31. DESEMBER - 6. JANÚAR Nýlega kom út á Ítalíu bóksem geymir úrval mynda af Benito Mussolini sem á sínum tíma voru ekki taldar hæfar til opinberar birtingar. Ítalska ein- ræðisherranum var annt um ímynd sína og skoðaði persónu- lega allar myndir af sér áður en hann leyfði birtingu þeirra. Á valdatíma sínum lagði hann bann við birtingu rúmlega 2000 mynda af sér. Á sumum mynd- anna virtist hann meinleysisleg- ur en á öðrum leit hann út eins og geðsjúklingur. Höfundar hinnar nýju bókar eru tveir, sagnfræðingurinn Mimmo Franzinelli og Emanuele Valerio Marino, sem í tvo ára- tugi var safnvörður í áróðurs- ráðuneyti Mussolinis. Marino var einn fárra manna sem vissu af myndunum sem varðveittar voru í ráðuneytinu. Það hvarfl- aði ekki að Mussolini að láta eyðileggja myndirnar því hann hafði ekki hugmyndaflug til að ímynda sér að einhver myndi birta þær án leyfis. Með árunum varð Mussolini æ vandlátari á myndbirtingar. Árið 1934 bannaði hann einungis birt- ingu 78 mynda en fimm árum seinna voru þær 486. Blátt bann var lagt við því að birtar væru myndir af Mussolini með nunnum eða kirkjunnar mönnum því ein- ræðisherrann taldi að það myndi leiða til ógæfu. Meðal þeirra fjöl- mörgu mynda sem Mussolini bannaði birtingu á er ein sem sýn- ir hann í fáránlegum flugbúningi, önnur sýnir hann í Berlín árið 1937 þar sem hann horfir á Adolf Hitler með greinilegri blíðu og á þeirri þriðju er hann ber fyrir ofan mitti og rembist við að halda bumbunni inni meðan hann heilsar bændum. ■ Mikill áhugi hefur vaknað áævi Sylviu Plath í kjölfar kvikmyndar þar sem stórstjarnan Gwyneth Paltrow fer með hlut- verk skáldkonunnar og er sögð sýna stjörnuleik. Dóttir Sylviu, Frieda, sem var tveggja ára þegar móðir hennar fyrirfór sér, neitaði að veita aðstoð við gerð myndar- innar og sagðist ekki vilja rifja upp þennan hluta af æsku sinni. Hún segist aldrei ætla að sjá myndina og orti harðort ljóð gegn myndinni og framleiðendum sem birt var í tímaritinu Tatler. Vinkona Sylviu, skáldkonan Ruth Fainlight, skrifaði á dögun- um grein þar sem hún lýsti kynn- um þeirra. Þær hittust fyrst árið 1961 og Ruth segir að við fyrsta fund hafi þeim verið ljóst að þær væru sálufélagar. Þær voru á svipuðum aldri, bandarískar kon- ur í Bretlandi og giftar rithöfund- um. Ruth var eiginkona Alan Sillitoe og Sylvia var gift Ted Hughes. Þeir voru þekktir fyrir skáldskap sinn en eiginkonurnar voru enn nær óþekktar. Sylvia hafði þó gefið út eina ljóðabók, The Colossus, sem hafði verið vel tekið. Enn voru þrjú ár í að Ruth sendi frá sér ljóðabók. Vinátta skáldkvenna Ruth segir að Sylvia hafi kom- ið sér fyrir sjónir sem afar greind kona sem hefði brennandi metn- að. Hún hefði hins vegar reynt að gefa mynd af sér sem venjulegri, umhyggjusamri eiginkonu en það hefði henni ekki tekist fyllilega. Sylvia átti eitt barn, Friedu, og von var á öðru og Ruth var einnig barnshafandi en hafði þrisvar misst fóstur. Ruth fannst Sylvia mjög örugg í móðurhlutverkinu en segir að hugsanlega hafi hún látið blekkjast af þörf Sylviu fyrir að láta líta svo út að hún réði jafn vel við það hlutverk og allt annað sem hún tók sér fyrir hendur í líf- inu. Skáldkonurnar áttu í bréfa- skriftum og það tengdi þær sterk- um böndum að eiga báðar von á barni. Sylvia fæddi son sinn Nicholas og Ruth soninn David rúmum tveimur mánuðum seinna. Mánuði eftir fæðingu Davids hitt- ust þær í síðasta sinn þegar Ruth og eiginmaður hennar heimsóttu Sylviu og Ted á sveitabæ þeirra. Þangað höfðu hjónin flutt vegna þrábeiðni Teds en Sylvia vildi allra helst búa í London. Meðan Sylvia gaf syni sínum brjóst las hún ljóð sín fyrir Ruth. Ruth tók eftir því að Sylvia og Ted forðuð- ust að horfa hvort á annað og töl- uðu ekki saman nema um það allra nauðsynlegasta. Nokkrum mánuð- um síðar skrifaði Sylvia Ruth og sagði henni að þau Ted væru að skilja, skilnaðurinn gleddi sig og sér liði eins og verið væri að færa sér lífið á ný. Hún sagði Ruth að viku eftir að hún var næstum dáin úr inflúensu hefði Ted sagt henni að hann hefði aldrei viljað eignast börn og að heimili þeirra í sveit- inni væri í reynd ekki drauma- staðurinn hans. Dauði Sylviu og Assiu Síðasta bréf Sylviu til Ruthar var skrifað eftir jólin 1962. Þar sagði hún jólin hafa verið erfið og hvatti Ruth til að koma í heim- sókn. Ruth komst þó aldrei í þá heimsókn. Hún var á öðru ferða- lagi þegar hún las í bresku blaði að Sylvia hefði fyrirfarið sér með því að stinga höfði sínu inn í gasofn. Hún las fréttina þrisvar áður en hún skildi hana en brast þá í sáran grát. Hún hitti Ted Hughes nokkrum dögum seinna ásamt ástkonu hans, Assiu Wevill, en henni var kennt um skilnað Sylviu og Teds. Assia var gull- falleg en Ruth fylltist samstundis andúð á henni en fann til sam- blands af samúð og reiði í garð Teds. Ruth fann að Ted og Assisa voru þjökuð af sektarkennd vegna dauða Sylviu og segir að þau hafi minnt sig á Adam og Evu eftir að þau voru rekin úr Para- dís. Ted og Assia fluttu inn á heimili Sylviu til að sjá um börn hennar og Teds. Sonurinn, sem var rúmlega árs gamall, vældi vansældarlega og ung dóttir þeirra ríghélt í föður sinn og vildi ekki sleppa honum. Ruth dreymdi Sylviu í nokkra mánuði eftir dauða hennar. Nokkrir draumanna voru martraðir þar sem Sylvia reyndi að draga Ruth með sér niður í gröfina. Með tímanum vingaðist Ruth við Assiu og fór að þykja afar vænt um hana. Assia sagði henni seinna að Ruth hefði með vinsemd sinni komið í veg fyrir að hún fyrirfæri sér. Sjö árum eftir dauða Sylviu örvinglaðist Assia og svipti sig lífi á sama hátt. Ruth gefur í skyn að kaldlyndi Teds hafi þar átt stóran hlut að máli, þótt einhverjir vilji líta svo á að vofa Sylviu hafi ásótt Assiu. Assia gaf sjálfri sér og þriggja ára dótt- ur þeirra Teds róandi lyf og inn- siglaði dyr og glugga. Þær mæðg- ur lögðust síðan á eldhúsgólfið eftir að Assia hafði opnað fyrir gasið á eldavélinni. Seinna lýsti Ted Assiu sem konunni sem hefði tælt hann frá Sylviu. kolla@frettabladid.is BENITO MUSSOLINI Einræðisherrann er ekki beinlínis tignarlegur í flugbúningi. Það var honum sjálfum ljóst og hann bannaði því birtingu myndarinnar. Á sumum myndanna virtist hann meinleys- islegur en á öðrum leit hann út eins og geðsjúklingur. ,, Ný bók um Mussolini er komin út á Ítalíu. Hún geymir fjölda mynda sem einræðisherrann bannaði. Sá Mussolini sem ekki mátti sýna SYLVIA PLATH Hún var þrítug þegar hún fyrirfór sér en er hér á góðri stundu með börnum sínum Friedu og Nicholas. Skáldkonan Ruth Fainlight minnist þessa dagana vinkonu sinnar Sylviu Plath, en mikill áhugi hefur vaknað á ævi Plath í kjölfar kvikmyndar um hana, þar sem Gwyneth Paltrow fer með aðalhlutverkið. Minningar um skáldkonu Síðasta bréf Sylviu til Ruth var skrifað eftir jólin 1962. Þar sagði hún jól- in hafa verið erfið og hvatti Ruth til að koma í heimsókn. Ruth komst þó aldrei í þá heimsókn. Hún var á öðru ferðalagi þegar hún las í bresku blaði að Sylvia hefði fyrirfarið sér með því að stinga höfði sínu inn í gasofn. ,,

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.