Fréttablaðið - 10.01.2004, Síða 16
16 10. janúar 2004 LAUGARDAGUR
■ Andlát
■ Jarðarfarir
Fyrsti fundur allsherjarþingsSameinuðu þjóðanna, sem 51
þjóð tóku þátt í, var haldinn í aðal-
sal Westminster í Lundúnum þenn-
an dag árið 1946. Viku síðar kom
Öryggisráðið saman og lagði
línurnar að hlutverki þess. Þann
24. janúar sendi allsherjarþingið
frá sér fyrstu ályktunina, um frið-
samlega notkun á kjarnorku-
vopnum og fækkun kjarnorkuvop-
na og annarra gjöreyðingarvopna.
Árið 1944, á þingi í Dumbarton
Oaks í Washington, var grunnur
lagður að alþjóðlegri nefnd sem
ynni að því að trygga frið á eftir-
stríðsárunum. Nefndinni var ætlað
stærra og meira hlutverk en Þjóða-
bandalagið sem hafði mistekist að
koma í veg fyrir seinni heims-
styrjöldina.
Í apríl árið 1945, þegar sigri
var fagnað í Evrópu, komu full-
trúar frá 51 þjóð saman í San
Francisco til að leggja grunninn
að stofnskrá Sameinuðu þjóðanna.
Þann 26. júní skrifuðu fulltrúar
undir stofnskrána og í lok október
var hún formlega samþykkt með
undirritun fimm fastafulltrúa í
Öryggisráðinu og meirihluta ann-
arra fulltrúa. ■
Aldurinn færist ekki eins ogskuggi yfir Guðnýju Camillu
Aradóttur, útvarpsfréttakonu hjá
Ríkisútvarpinu. Hún er 29 ára í
dag og tekur því með stóískri ró.
Hún fagnar áfanganum frekar
eins og nýrri perlu á hálsfesti
sína og ber enga kvíðahnúta í
maganum yfir stórafmælinu á
næsta ári.
„Nei, ég hlakka til að verða
þrítug. Mér finnst það flottur ald-
ur,“ segir Guðný Camilla. „Mér
finnst skemmtilegt að þroskast
og það hlýtur einhver þroski að
fylgja því að komast á fertugs-
aldurinn. Það er líka miklu flott-
ari tala, að verða 30 en 29 ára.“
Þar sem þrítugsafmælið á
næsta ári ber upp á mánudegi
hlýtur það að kitla stuðtaugarnar
í Guðnýju að gera eitthvað spenn-
andi á jafn sérstöku laugardags-
kvöldi og er framundan. „Ég
hafði hugsað mér að halda stóra
veislu núna, í stað þess að gera
það á þrítugsafmælinu næst. En
þar sem það datt upp fyrir þá hef
ég ekkert skipulagt. Ég er nú vön
að halda alltaf upp á afmælið
mitt og ég er viss um að ég býð
einhverjum í mat, eða læt ein-
hvern bjóða mér.“
Reyndar segist Guðný vera
það skipulögð að hún vilji eigin-
lega hafa stjórn á þessu öllu sam-
an. Þess vegna er hún ekki
svekkt yfir því að það hafi aldrei
verið haldin óvænt afmælis-
veisla. Henni finnst eiginlega
skemmtilegast að halda utan um
veislurnar sjálf. Hún er staðráðin
í því að láta rætast úr deginum.
„Það tala allir um að gamanið sé
búið eftir jólin. Ég sé enga
ástæðu til þess að vera í ein-
hverri fýlu í janúar. Það eru tíu
dagar frá gamlárskvöldi og kom-
inn tími til að gera eitthvað,“ seg-
ir Guðný.
Heppnin var með Guðnýju að
því leyti að hún slapp við helgar-
vakt í dag. Hún kann nú greini-
lega að sjá góða hluti í flestu og
hefði greinilega ekki látið það
draga sig niður ef vaktaplanið
hefði verið öðruvísi. „Ég missi af
því að láta stimpilklukkuna spila
fyrir afmælissönginn,“ segir hún
og hlær. ■
Afmæli
GUÐNÝ CAMILLA ARADÓTTIR
■ fagnar 29 ára afmæli sínu í dag.
Finnst hálf leiðinlegt að vera ekki á
fréttavakt því hún missir af því að stimp-
ilklukkan leiki afmælislagið fyrir hana.
GEORGE FOREMAN
Fyrrverandi heimsmeistari í þungavigt er
53 ára í dag.
10. janúar
■ Þetta gerðist
1863 Gladstone forsætisráðherra opnar
breska lestarkerfið á Paddington-
stöðinni við Farringdon Street.
1870 John D. Rockerfeller stofnar
Standard Oil.
1920 Þjóðabandalagið heldur fyrsta
fund sinn í Genúa.
1926 Kvikmyndin Metropolis eftir Fritz
Lang er frumsýnd í Berlín.
1949 Vinylplöturnar eru kynntar; RCA-
fyrirtækið kynnir 45 snúninga
plötur en Columbia 33 snún-
inga.
1950 Ben Hogan tekur þátt í golfmóti í
fyrsta sinn frá því hann lenti í
bílslysi fyrr á árinu.
1969 Síðasta tölublað af The Saturday
Evening Post kemur út eftir 147
ára útgáfutíma.
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR
Aðalstöðvar Sameinuðu þjóðanna eru í
New York.
Fyrsti fundur Sameinuðu þjóðanna
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR
■ Fyrsti fundur Sameinuðu þjóðanna var
haldinn í Westminster í Lundúnum.
10. janúar
1946
Skemmtilegt að þroskast
Myndvinnsla og vefsmíðar
Myndvinnsla í Photoshop (FSH112) með áherslu á myndvinnslu fyrir vefinn.
Vefsmíðar (FSH122) með áherslu á hagnýt verkefni með flaggskipinu Dreamweaver.
með áherslu á starfstengt nám
Fjarnám
IÐNSKÓLINN Í REYKJAVÍKSkólavörðuholti • 101 Reykjavík • Sími 522 6500 • www.ir.is • ir@ir.is
Skoðaðu möguleikana og smelltu þér
á vefslóðina: http://fjarnam.ir.is
G
Ú
ST
A
200 kíló hurfu
S.l. vetur grenntust konurnar á Body&Mind
námskeiðinu hjá Önnu Haralds alls um 200 kg
með frábærum æfingum. Enginn hávaði og
engin hopp, aðeins góðar æfingar, teygjur og
slökun.
Kennt er hjá Technosport í Hafnarfirði.
Nánar í síma hjá Önnu: 899 79 09 og á ShopUSA.is
11.00 Ólöf Óskarsdóttir, verður jarð-
sungin frá Djúpavogskirkju.
11.00 Málfríður Baldvinsdóttir, Garða-
braut 84, Garði, verður jarðsungin
frá Útskálakirkju.
13.00 Þórunn Eiríksdóttir, Kaðalsstöð-
um, Stafholtstungum, verður jarð-
sungin frá Reykholtskirkju.
Rútuferð frá BSÍ kl. 10.30.
13.30 Áki Már Sigurðsson, Brúsastöð-
um, Vatnsdal, verður jarðsunginn
frá Blönduóskirkju.
13.30 María Sigurðardóttir frá Hlíð,
verður jarðsungin frá Ólafsfjarðar-
kirkju.
13.30 Unnur S. Auðunsdóttir, Smáratúni
17, Selfossi, verður jarðsungin frá
Selfosskirkju.
13.30 Hildur Jóhannsdóttir, Dalbæ, Dal-
vík, verður jarðsungin frá Dalvíkur-
kirkju.
14.00 Ingibjörg Kristófersdóttir, verður
jarðsungin frá Seyðisfjarðarkirkju.
14.00 Jón Gíslason frá Hnappavöllum í
Öræfum, verður jarðsunginn frá
Hofskirkju í Öræfum.
14.00 Elísabet Guðnadóttir, Hulduhlíð,
Eskifirði, verður jarðsungin frá
Eskifjarðarkirkju.
14.00 Álfheiður Ákadóttir, Hátúni,
Djúpavogi, verður jarðsungin frá
Djúpavogskirkju.
14.00 Ásgeir Bjarnason í Ásgarði, verður
jarðsunginn frá Hvammskirkju í
Dalasýslu. Sætaferðir frá BSÍ kl. 10.
14.00 Sveinn Hjörleifsson, Höfðavegi 2,
Vestmannaeyjum, verður jarðsung-
inn frá Landakirkju.
14.00 Hjónin Guðgeir Guðmundsson og
Katrín Sigrún Brynjólfsdóttir
verða jarðsungin frá Víkurkirkju.
14.00 Kristín Þórðardóttir, Hveragerði,
verður jarðsungin frá Hveragerðis-
kirkju.
15.00 Hjörleifur Gíslason, Kirkjuhvoli,
Hvolsvelli, verður jarðsunginn frá
Breiðabólstaðarkirkju í Fljótshlíð.
Kristín Elísabet Benediktsdóttir Waage,
Gnoðarvogi 64, lést miðvikudaginn 7. janúar.
Sigurður B. Guðnason frá Sandgerði, til heim-
ilis í Hörðalandi 10, Reykjavík, lést fimmtudag-
inn 8. janúar.
Sigurlaug Sigurbjörnsdóttir, Tunguvegi 82,
Reykjavík, lést mánudaginn 22. desember.
Útförin fór fram í kyrrþey.
Hulda Emelía Jónsdóttir, lést miðvikudaginn
7. janúar.
Magnús Jón Þorvaldsson frá Sveinseyri við
Dýrafjörð, Drangavöllum 4, Keflavík, lést
þriðjudaginn 6. janúar.
Steingrímur Már Eggertsson, Smárahlíð 14D,
Akureyri, lést mánudaginn 5. janúar.
Guðmunda Guðmundsdóttir frá Búðum í
Grindavík, lést mánudaginn 22. desember.
Útförin fór fram í kyrrþey.
Jón Þorvarðarson, Vindási, Rangárvöllum, lést
miðvikudaginn 7. janúar.
GUÐNÝ CAMILLA
Guðný á einn son, tæplega fjögurra ára, sem heitir Felix Flóki. Maðurinn hennar Arnar er sjómaður. „Það hlýtur eitthvað að vera gert fyrir
mig, fyrst maðurinn er í landi,“ segir Guðný. „Ég trúi ekki öðru en hann komi mér skemmtilega á óvart.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T