Fréttablaðið - 10.01.2004, Page 41
41LAUGARDAGUR 10. janúar 2004
hvað?hvar?hvenær?
7 8 9 10 11 12 13
JANÚAR
Laugardagur
HANDBOLTI Íslenska landsliðið í
handbolta hóf lokaundirbúning
sinn fyrir Evrópumótið í Slóveníu
ekki vel þegar liðið tapaði með sjö
mörkum, 25-32, gegn Sviss að
Varmá í gærkvöldi. Íslenska liðið
var fimm mörkum undir í hálfleik,
11-16, en Sviss hafði mikla yfir-
burði í leiknum og komst mest níu
mörkum yfir í byrjun seinni hálf-
leiks. Það var helst sóknarleikur-
inn og þá skelfileg færanýting ís-
lenska landsliðsins sem varð þess
valdandi að hið unga lið Svisslend-
inga lék við hvern sinn fingur. Ís-
lensku strákarnir misnotuðu alls
37 skot í leiknum og mörg þeirra
úr dauðafærum. Markvörður
Svisslendinga, Antonie Ebinger
varði 28 skot í leiknum (54%) og
varamarkvörðurinn Pascal
Stauber náði einnig 50% mark-
vörslu en hann varði annað af
tveimur vítum sem hann reyndi
við í leiknum. Þá fór fyrirliðinn
Robbie Kostadinovich mikinn í
sókninni og skoraði 11 mörk.
Skyttur íslenska liðsins fundu
enga leið fram hjá Eginger eða
svissnesku vörninni sem varði
alls sjö skot og íslenska liðið
skoraði aðeins fimm mörk úr
lang-skotum (úr 32 tilraunum).
Ólafur Stefánsson misnotaði níu
af 12 skotum sínum utan af velli
en spilaði að venju félaga sína
uppi og átti ellefu stoðsendingar í
leiknum. Bestu menn íslenska
liðsins voru markverðirnir, Guð-
mundur Hrafnkelsson og Reynir
Þór Reynisson sem báðir vörðu
11 skot og svo átti Gylfi Gylfason
góða innkomu í seinni hálfleik er
hann gerði fjögur mörk úr fimm
skotum. Þetta er fyrsti leikurinn
af þremur gegn Sviss en íslensku
strákarnir fá tækifæri til að
hefna ófaranna í gær í Laugar-
dalshöllinni í dag klukkan 16.30
og á morgun sunnudag klukkan
19.30. ■
ÓLAFUR MARKAHÆSTUR
Ólafur Stefánsson var markahæsti maður íslenska liðsins gegn Sviss í gær ásamt Jaliesky
Garcia en báðir skoruðu þeir fimm mörk. Ólafur sést hér senda eina af 11 stoðsendingum
sínum í leiknum.
Fyrsti landsleikur Íslands og Sviss að Varmá í Mosfellsbæ:
Sjö marka tap gegn Sviss
■ ■ LEIKIR
13.30 Þór Ak. og Keflavík keppa í
Höllinni á Akureyri í bikarkeppni
KKÍ&Lýsingar í kvennaflokki.
13.30 Þróttur og HK leika á Nes-
kaupstað í 1. deild kvenna í blaki.
14.00 Valur mætir Víkingi í Laugar-
dalshöll í RE/MAX-deild kvenna í hand-
bolta.
15.15 KS og Höttur leika í Power-
ade-mótinu í Boganum á Akureyri.
16.00 Stakkvíkurliðið og ESSO-
liðið mætast í Seljaskóla í Stjörnuleik
KKÍ.
16.00 KA/Þór keppir við FH í KA-
heimilinu í RE/MAX-deild kvenna í
handbolta.
16.30 Handboltalandsleikur Íslend-
inga leika við Svisslendinga í Laugar-
dalshöll.
17.00 SA og SR keppa á Akureyri á
Íslandsmóti karla í íshokkí.
■ ■ SJÓNVARP
13.50 Íslandsmótið í handbolta á
RÚV. Bein útsending frá leik Vals og Vík-
ings í RE/MAX-deild kvenna í hand-
bolta.
14.00 US Champions Tour 2004 á
Sýn. Fréttaþáttur sem fjallar um banda-
rísku mótaröðina í golfi.
14.30 Trans World Sport (Íþróttir
um allan heim) á Sýn.
14.45 Enski boltinn á Stöð 2. Bein
útsending frá leik Liverpool og Aston
Villa í ensku úrvalsdeildinni.
15.30 Íþróttamenn ársins á RÚV.
15.30 Supercross (Edison
International Field) á Sýn. Nýjustu fréttir
frá heimsmeistaramótinu í supercrossi.
16.10 Handboltakvöld á RÚV.
16.25 Landsleikur í handbolta á
RÚV. Bein útsending frá leik Íslendinga
og Svisslendinga í Laugardalshöll.
16.30 Fastrax (Vélasport) á Sýn.
Hraðskreiður þáttur þar sem ökutæki af
öllum stærðum og gerðum koma við
sögu.
17.00 Enski boltinn á Sýn. Útsend-
ing frá leik Liverpool og Aston Villa í
ensku úrvalsdeildinni.
19.00 NFL-tilþrif á Sýn. Svipmyndir
úr leikjum helgarinnar í ameríska fót-
boltanum.
19.30 2004 Links to Paradise á
Sýn. Bandaríska mótaröðin í golfi hefst
ár hvert á Havaí. Í þættinum verður
hugað að mótinu á Havaí en einnig litið
um öxl og rifjuð upp eftirminnileg atvik
á liðnum árum.
20.20 Spænski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Real Sociedad og
Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni.
22.35 NFL á Sýn. Bein útsending
frá leik St Louis Rams og Carolina
Panthers í úrslitakeppni ameríska fót-
boltans.
00.45 Hnefaleikar á Sýn. Útsend-
ing frá bardaga Wladimir Klitscko og
Danell Nicholson.
71 milljón til afreksmanna
Um 350 íþróttamenn njóta góðs af styrkveitingu Íþrótta- og ólympíusambands Íslands.
Íþrótta- og ólympíusamband Ís-lands tilkynnti í gær um styrk-
veitingar til sérsambanda ÍSÍ.
Heildarupphæð er 71 milljón
króna er þetta er hæsta upphæð
sem ÍSÍ hefur úthlutað í styrki til
afreksstarfs frá upphafi. Upp-
hæðinni er skipt á milli 71 íþrótta-
manns og 25 landsliðsverkefna.
Áætlaður heildarfjöldi íþrótta-
manna sem nýtur góðs af styrk-
veitingum nú er um 350.
Styrkveitingum til afreksstarfs
hefur fjölgað mikið á undanförnum
árum, verkefnum sérsambanda
hefur fjölgað, verkefnin eru fyrir
breiðari aldurshóp og fjárþörf
íþróttahreyfingarinnar eykst. Út-
hlutanir afrekssjóðs nema að þessu
sinni 52,5 milljónum króna. Úthlut-
anir úr ólympíufjölskyldu nema 5,7
milljónum króna og úthlutanir úr
sjóði ungra og efnilegra nema 11,6
milljónum króna. Kostnaðaráætlun
verkefna sérsambandanna vegna
sjóðanna þriggja nam 414 milljónir
króna.
Á fundi framkvæmdastjórnar
ÍSÍ í vikunni var samþykkt reglu-
gerðarbreyting á starfsreglum
afrekssjóðs ÍSÍ sem hefur það í för
með sér að styrkir til einstaklinga
hækka. A-styrkur sem var 120.000
krónur á mánuði var hækkaður í
160.000 krónur, B-styrkur hækkaði
úr 60.000 krónum á mánuði í 80.000
krónur og C-styrkur hækkaði úr
30.000 krónum á mánuði í 40.000
krónur. Úthlutanir sjóðsins ná að
þessu sinni til níu mánaða tímabils,
eða fram yfir Ólympíuleikana. ■
HEILDARSTYRKIR
TIL SÉRSAMBANDA
Blaksamband 540.000
Badmintonsamband 3.513.000
Borðtennissamband 1.190.000
Dansíþróttasamband 1.500.000
Frjálsíþróttasamband 8.550.000
Fimleikasamband 3.080.000
Golfsamband 1.700.000
Handknattleikssamband 20.500.000
Íþróttasamband fatlaðra 1.000.000
Skautasamband 600.000
Júdósamband 2.700.000
Körfuknattleikssamband 4.300.000
Keilusamband 440.000
Knattspyrnusamband 5.000.000
Siglingasamband 470.000
Skvassnefnd 100.000
Skylminganefnd 300.000
Skíðasamband 4.140.000
Sundsamband 7.726.000
Skotsamband 440.000
Taekwondósamband 1.390.000
Tennissamband 770.000
Fagteymi og tryggingar 1.050.000
Samtals 70.999.000
ÚTHLUTUN AFREKSSTRYKJA
Frá vinstri: Örn Andrésson, Stefán
Konráðsson, Ellert B. Schram, Lárus
Blöndal og Benedikt Geirsson.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
A
LÓ
A