Fréttablaðið - 13.01.2004, Qupperneq 26
■ ■ KVIKMYNDIR
19.30 Bíó Reykjavík heldur nú
Opið Bíó í húsakynnum MÍR við Vatns-
stíg 10a. Sýndar verða myndir frá Frakk-
landi, Bandaríkjunum, Japan, Make-
dóníu, Spáni, Rúmeníu og Íslandi.
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 Þriðjudagur 13. janúar kl. 20
Leikur að læra. Tónleikaröð kennara
Tónlistarskóla Kópavogs í Salnum,
Kópavogi.
■ ■ LEIKLIST
20.00 Vegna fjölda áskorana verður
aukasýning á verki Hávars Sigurjónsson-
ar, Pabbastrák, á litla sviði Þjóðleik-
hússins. Leikstjóri er Hilmar Jónsson
■ ■ FYRIRLESTRAR
11.00 Myndlistarmaðurinn Cel
Crabeels frá Antwerpen flytur fyrirlestur
í Listaháskóla Íslands, Laugarnesi, stofu
024. Fyrirlesturinn nefnist “In The Line of
work” og er þar brugðið upp sýnishorn-
um úr myndbandsverkum, innsetning-
um og performönsum sem Cel hefur
unnið á síðustu árum.
16.30 Kanadíski lögfræðingurinn
Rachael Johnstone leitar svara við
spurningunni “Gagnast mannréttindi
konum?” á Lögfræðitorgi Háskólans á
Akureyri, sem haldið verður í Þingvalla-
stræti 23, stofu 24
20.00 Broddi Sigurðarson, upplýs-
ingafulltrúi í Alþjóðahúsi, flytur erindi í
húsakynnum ReykjavíkurAkademíunn-
ar að Hringbraut 121 um átökin á Norð-
ur Írlandi. Fyrirlesturinn er á vegum
Mannfræðifélags Íslands.
■ ■ FUNDIR
20.00 Biblíuskólinn við Holtaveg
stendur fyrir kynningarkvöldi á Alfa-
námskeiðinu og framhaldsnámskeiðinu
Alfa III í húsi KFUM og KFUK á horni
Holtavegar og Sunnuvegar.
20.00 Öryggisráð Femínista-
félagsins sér um fyrsta Hitt ársins sem
verður haldið á 2. hæð á Kaffi Sólon,
Bankastræti 7a. Þórólfur Árnason borg-
arstjóri mætir.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð-
ar en sólarhring fyrir birtingu.
26 13. janúar 2004 ÞRIÐJUDAGURhvað?hvar?hvenær?
10 11 12 13 14 15 16
JANÚAR
Þriðjudagur
Tónlistarskóli Kópavogs býr viðþá einstæðu aðstöðu að vera í
sambúð við glæsilegasta tónlist-
arhús landsins,“ segir Guðrún S.
Birgisdóttir flautuleikari.
Hún á þar við Salinn í Kópa-
vogi, og þetta nábýli nýtist skólan-
um vel því reglulega halda kenn-
arar hans þar tónleika þar sem
frítt er inn fyrir nemendur skól-
ans.
„Einn aðaltilgangurinn með
þessari röð er að gefa nemendum
tækifæri til að koma og hlusta á
kennara sína og aðra starfsmenn
skólans. Þetta á að vera partur af
tónlistaruppeldi þeirra.“
Í kvöld kemur Guðrún fram á
tónleikum í þessari röð í Salnum
ásamt Kristni H. Árnasyni gítar-
leikara sem eins og hún er kenn-
ari við Tónlistarskóla Kópavogs.
Efnisvalið á þessum tónleikum
verður svolítið óvenjulegt, að
minnsta kosti fyrir hlé, því þá
leika þau eingöngu verk sem nem-
endur skólans hafa verið að fást
við. Þetta eru allt frekar einföld
og lítil verk eftir Gossec, Atla
Heimi Sveinsson, Hjálmar H.
Ragnarsson, Sor, Fauré o.fl.
„Við ætlum að spila falleg lög
úr námsefni krakkanna og þau
koma til liðs við okkur í síðasta
númerinu og spila með. Þá verða
tíu gítarar og tíu flautur á sviðinu.
Þessi verk eru hugsuð fyrir nem-
endur og eru á því þyngdarstigi
sem þau eru að fást við. Eftir hlé
verður þetta hins vegar venju-
legra.“
Þá ætla þau Guðrún og Krist-
inn að glíma við erfiðari verkefni
og flytja sónötu efir Guiliani og
tvö stutt verk eftir Svein Lúðvík
Björnsson, en í öðru þeirra leikur
Guðrún á altflautu og bassaflautu,
hljóðfæri sem skólanum áskot-
naðist nýlega.
„Sveinn Lúðvík Björnsson er
ungur maður sem býr í Grafar-
voginum,“ segir Guðrún. „Hann
er hugkvæmt og mjög næmt tón-
skáld og hefur samið fullt af verk-
um. Við ætlum að flytja tvö mjög
hnyttin smáverk eftir hann fyrir
flautu og gítar.“
Tónleikarnir bera yfirskriftina
„Það er leikur að læra“ og eru
opnir hverjum sem er. ■
■ FUNDUR
Tíu gítarar og tíu flautur
KJARTAN ÓLAFSSON
Hljóðfærið mitt er fiðlubassisem heitir Teisco sem ég eign-
aðist þegar ég var mjög mikill
unglingur. Ég er búinn að eiga
hann í eitthvað um þrjátíu ár.
Hann hljómar betur en Hoffner-
bassi Pauls McCartney en er ekki
eins frægur. Ég spila á hann enn-
þá með Pjetri og úlfunum þegar
okkar gömlu kunningjar úr MH
kalla okkur saman. Ég spila á
hann eitt lag frá Bítlatímanum á
plötunni Dokaðu við. Annars er
hann aðallega hér í vinnuherberg-
inu mínu mér til halds og trausts
við tónsmíðar.“
Hljóðfæriðmitt
TRÚÐUR EÐA PABBI
Valdimar Örn Flygenring í hlutverki sínu í
Pabbastrák.
Hommar og
ekki hommar
LEIKSÝNING Vegna fjölda áskorana
verður aukasýning í kvöld á leik-
riti Hávars Sigurjónssonar,
Pabbastrák, á Litla sviði Þjóðleik-
hússins. Þegar hafa verið sýndar
rúmlega 20 sýningar fyrir fullu
húsi á Pabbastrák sem er ögrandi
og óvenjulegt verk um fjölskyld-
ur, fordóma og ást.
Einkasonurinn fer aðra leið í
lífi sínu en foreldrarnir höfðu séð
fyrir sér. Hann elskar annan karl-
mann, vill búa með honum og
njóta hans.
Hvernig á að taka þessu? Af
opnum huga, auðvitað! Sýna um-
burðarlyndi og samkennd. Samt
spyrja foreldrarnir bæði upphátt
og í hljóði: Af hverju þarf sonur
minn endilega að vera hommi? Er
þetta kannski mér að kenna? Og
hvað er ég þá? Hver er ég?
Leikstjóri er Hilmar Jónsson,
sem einnig leikstýrði fyrsta
frumsamda leikriti Hávars fyrir
svið, Englabörnum, sem Hafnar-
fjarðarleikhúsið frumsýndi
haustið 2001.
Hilmar er einnig leikstjóri
Meistarans og Margarítu sem
frumsýnt var í Hafnarfjarðar-
leikhúsinu í síðustu viku. ■
Þeir Þórólfur Árnason borgar-stjóri og Jónas Hallsson að-
stoðaryfirlögregluþjónn ætla að
mæta í kvöld á fundi hjá
Femínistafélagi Íslands, á svo-
nefndu Hitti, eins og félagið nefn-
ir mánaðarlega umræðufundi sína
á Sólon.
„Við ætlum að láta þá standa
fyrir máli sínu,“ segir Hildur
Fjóla Antonsdóttir. Hún er ráðs-
kona öryggisráðs Femínista-
félagsins, sem er ofbeldisvarnar-
hópur félagsins og berst gegn
vændi, mansali, klámi og ofbeldi
gegn konum og börnum. Starfs-
hópar félagsins skiptast á um að
sjá um Hittin á Sólon, og að þessu
sinni kemur það í hlut öryggis-
ráðsins.
„Tilefnið er tvennt. Annars
vegar yfirlýsingar eiganda Gold-
finger fyrir jól um að hann ætli að
opna nýjan stað í Reykjavík og
vera þar með „peep show“. Við
höfum áhyggjur af því að með
þessu sé verið að fara í kringum
lögreglusamþykkt Reykjavíkur.
Hins vegar skýrslan „Kynlífs-
markaður í mótun“ þar sem fram
kemur að viðskiptavinum nektar-
dansstaða í Reykjavík standi enn
einkadans til boða.“
Hildur Fjóla tekur samt fram
að það sé mikill misskilningur að
barátta femínista gegn kláminu
byggist á teprulegum siðferðis-
hugmyndum um kynlíf.
„Við erum engir siðferðis-
postular sem vilja skipta sér af
kynlífi heima hjá fólki eða hafa
skoðanir á því hvað fólki finnst
sexí. Í kláminu kemur fram hug-
mynd um konuna sem viljalaust
verkfæri sem alltaf er til staðar
að þjóna karlinum kynferðislega,
alltaf brosandi og alltaf ung. Það
er þessi hugmynd sem okkur
finnst ganga gegn hugmyndum
um jafnrétti kynjanna.“ ■
GUÐRÚN S. BIRGISDÓTTIR OG KRISTINN H. ÁRNASON
Þau kenna bæði við Tónlistarskóla Kópavogs og verða með tónleika í Salnum í kvöld þar sem þau flytja meðal annars úrval úr námsefni
nemenda sinna.
Engir siðapostular
ÞÓRÓLFUR ÁRNASON
Borgarstjórinn mætir ásamt aðstoðaryfirlögregluþjóni á mánaðarlegt Hitt Femínistafélags
Íslands á Kaffi Sólon í kvöld.
■ TÓNLEIKAR
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
A
LÓ
A