Fréttablaðið - 15.01.2004, Qupperneq 1
VEÐUR Snjórinn náði sums staðar
upp í rjáfur húsa á Dalvík þar sem
snjórinn hefur hrúgast upp í of-
viðrinu sem hefur geisað á norð-
anverðu landinu síðustu daga.
Ljósastaurar máttu sín einnig lít-
ils og við eina götu bæjarins voru
þeir svo gott sem komnir á kaf.
Íbúum reyndist því allt annað en
auðvelt að komast út.
„Það er allt á kafi í snjó og
björgunarsveitin hefur nóg að
gera að keyra fólk til vinnu og
hefur hreinlega þurft að moka
fólk út úr húsum,“ segir Sævar
Ingason lögreglumaður.
Tvær trillur sukku í höfninni
á Skagaströnd. Þær þoldu ekki
ágang sjávar og snjó sem hlaðist
hafði upp á þeim. Björgunar-
sveitarmönnum tókst að bjarga
tveimur öðrum trillum frá því að
sökkva. Vindmælir við höfnina
sýndi mest vindhraða upp á 44
metra á sekúndu og bilaði í
þeirri hviðu. Því er óvíst hvort
það hafi verið hvassasta hviðan í
gær.
Á Siglufirði gerði vöruskortur
vart við sig eftir að ófært hafði
verið til bæjarins um tveggja
daga skeið vegna veðurs.
Sjá síðu 4
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 38
Leikhús 38
Myndlist 38
Íþróttir 36
Sjónvarp 40
FIMMTUDAGUR
TVEIR KONTRABASSAR Bassaleik-
ararnir Hávarður Tryggvason og Valur
Pálsson frumflytja konsert fyrir tvo
kontrabassa eftir Hauk Tómasson á tón-
leikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Há-
skólabíói í kvöld.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
● uppáhaldsflík móeiðar
Vinnustofan opin
almenningi
tíska o.fl.
Ragna Fróðadóttir:
▲
SÍÐUR 24 til 25
15. janúar 2004 – 14. tölublað – 4. árgangur
● á antigua ● út í heim
Námskeið um
fegurstu staði heims
ferðir o.fl.
Ingólfur Guðbrandsson:
▲
SÍÐUR 26 & 27
HLUPU ÚT Á NÁTTFÖTUNUM
Mæðgur forðuðu sér út úr brennandi húsi
á Suðureyri í fyrrinótt. „Það var snælduvit-
laust veður en ég fann ekki fyrir kuldan-
um,“ segir móðirin, sem varð vör við eldinn
og vakti dóttur sína. Sjá síðu 10
UM 20 Á GÖTUNNI Einstaklingar með
geðröskun fá ekki þá aðstoð sem þeir
þurfa á að halda, segir framkvæmdastjóri
Geðhjálpar. Þeir geta verið hættulegri en
geðsjúkir einstaklingar en heilbrigðiskerfið
tekur ekki tillit til þess. Sjá síðu 8
RÉTTARHÖLDIN HAFIN Svíar fylgdust
ákafir með fyrsta degi réttarhaldanna yfir
Mijailo Mijailovic, sem hefur játað að hafa
orðið Önnu Lindh, utanríkisráðherra
Svíþjóðar, að bana. Hann segir enn að til-
viljun hafi ráðið því að hann banaði henni
en saksóknarar trúa því ekki. Sjá síðu 12
NÝTT UPPHAF Formaður samninga-
nefndar Tryggingastofnunar ríkisins segir
nýjan samning við sérfræðilækna geta
markað nýtt upphaf í samskiptum stofnun-
arinnar og sérfræðinga. Sjá síðu 8
KÓLNANDI OG STÖKU ÉL Nú sér
fyrir endann á óveðrinu sem geisað hefur.
Það lægir stöðugt eftir því sem á daginn
líður. Víðast stöku él en úrkomulítið í
borginni. Ískalt fram undan. Sjá síðu 6.
ÍSLENSKU TÓNLISTARVERÐLAUNIN Þrátt fyrir fimm tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna hlaut hljómsveitin Mínus aðeins
ein verðlaun. Plata hennar, Halldór Laxness, var valin besta plata ársins í flokki popptónlistar. Eivör Pálsdóttir var valin söngkona ársins
og flytjandi ársins ásamt hljómsveit sinni Krákunni. Ást í flutningi Ragnheiðar Gröndal var lag ársins. Sjá síðu 28
Sprengjurnar í Írak:
Líklega ekki
efnavopn
ÍRAK, AP Rannsóknir danskra og
bandarískra sérfræðinga benda
til þess að sprengjukúlurnar sem
sprengjusérfræðingar Landhelg-
isgæslunnar fundu í suðurhluta
Íraks um helgina innihaldi ekki
eiturefni. Að sögn danska hersins
er þó ekki hægt að útiloka neitt að
svo stöddu.
Fyrsta greining breskra sér-
fræðinga benti til þess að kúlurn-
ar innihéldu sinnepsgas en nú eru
þessar niðurstöður dregnar í efa.
Sprengjukúlurnar hafa verið
sendar á rannsóknarstofu í Idaho í
Bandaríkjunum og er búist við því
að endanlegar niðurstöður liggi
fyrir eftir tvo til fjóra daga. ■
Hyggur ekki á
breytingar
Guðmundur Kristjánsson segist ekki stefna að grundvallarbreytingum á
Útgerðarfélagi Akureyringa. Heimamenn eru ósáttir við söluna og segir
bæjarstjórinn að félagið sé selt á upplausnarverði.
VIÐSKIPTI Guðmundur Kristjáns-
son útgerðarmaður, sem ásamt
föður sínum og bróður hefur
keypt Útgerðarfélag Akureyr-
inga, segist ekki stefna að neinum
grundvallarbreytingum á rekstri
félagsins. „Þetta er gott félag.
Þarna er gott fólk, vélar, tæki og
mikil þekking,“ segir Guðmund-
ur. Verðið sem greitt var fyrir
félagið er níu milljarðar, sem
Guðmundur segir hátt verð.
„Þetta er dýrt. Þetta er okkar líf
og yndi og það koma ekki oft
svona tækifæri. Þessir hörðustu
fjárfestar sem eru að ávaxta pen-
inga hafa kannski ekki mikinn
áhuga á þessu.“
Guðmundur hefur lifað og
hrærst í sjávarútvegi um langt
skeið, en ytri aðstæður greinar-
innar hafa oft verið betri en nú.
„Þetta lítur ekkert ofsalega vel út
í dag, en maður verður alltaf að
vera bjartsýnn. Ég er með mitt
fyrirtæki og finnst það passa vel
við ÚA. Ég vil styrkja félagið.“
Guðmundur segist vera á leiðinni
að heimsækja félagið. „Það er
bara ekki flogið.“
Norðanmenn eru sumir hverjir
uggandi eftir að ljóst varð að að-
komumenn keyptu félagið en ekki
fjárfestar úr röðum heimamanna.
Þar rifja menn upp að eignir Bása-
fells á Ísafirði hafi verið seldar
burt í bútum þegar Guðmundur og
félagar áttu það.
Kristján Þór Júlíusson, bæjar-
stjóri á Akureyri, telur söluverðið
allt of hátt og að ganga þurfi á
eigur Útgerðarfélagsins ef það
eigi að standa undir lánunum.
„Ef núverandi rekstur ræður
ekki við þetta kaupverð, hvernig
á Tjaldur þá að standa skil á því?
Landsbankinn lánar sex millj-
arða til kaupanna og skilaboð
bankans til nýs eiganda eru
væntanlega þau að hann geti far-
ið með þetta fyrirtæki eins og
hann lystir. Skilaboðin eru með
öðrum orðum þau að að öllu
óbreyttu þurfi kaupandinn í
rauninni að ganga með einhverj-
um hætti á eigur þess.“
haflidi@frettabladid.is
trausti@frettabladid.is
Sjá síður 2 og 6
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Aftakaveður á norðanverðu landinu:
Fólk fennti inni og bátar sukku
F
í
t
o
n
F
I
0
0
8
6
2
5
GUÐMUNDUR KRISTJÁNSSON
Einn nýrra eigenda ÚA segir ekki stefnt að
neinum grundvallarbreytingum á rekstri
félagins. Verðið hafi verið hátt, en svona
tækifæri gefist ekki oft.
Kjarasamningar og ríkið:
Lífeyrismálin
ekki auðveld
KJARAMÁL „Þetta er afskaplega
stórt og þungt mál sem getur síð-
an, ef við leysum einn áfanga þess,
opnað stærri sár
annars staðar.
Þetta er ekkert
sem ég sé fyrir
mér að við get-
um endilega
klárað. En við
munum svo
sannarlega taka
þátt í viðræðum
við Alþýðusam-
band Íslands um
þessi atriði,“
sagði Davíð
Oddsson for-
sætisráðherra
um samræmingu lífeyrisréttinda
landsmanna, að loknum fundi með
fulltrúum ASÍ í gær.
Rædd var aðkoma ríkisstjórn-
arinnar að kjarasamningum en
samræming lífeyrisréttinda er
meðal áhersluatriða ASÍ. Forseti
sambandsins segir ögurstund í líf-
eyrismálinu, það verði að leysa
það í tengslum við gerð næstu
kjarasamninga.
Sjá nánar á bls. 14
DAVÍÐ ODDSSON
Forsætisráðherra
segir samræmingu
lífeyrisréttinda varla
verða leysta í einum
áfanga.