Fréttablaðið - 16.01.2004, Blaðsíða 12
12 16. janúar 2004 FÖSTUDAGUR
ELSKU KARLINN
Fornir fjendur, þeir Mohammad Khatami,
forseti Írans, og Abdel-Aziz al-Hakim, sem
situr í íraska framkvæmdaráðinu, föðmuð-
ust innilega með tilheyrandi kossum þegar
þeir hittust á fundi í Teheran í Íran í gær.
Skólastjóri ökuskóla æfur vegna áformaðra breytinga:
Segir meirapróf
verða tvöfalt dýrara
ÖKUKENNSLA Umferðarstofa hefur
sent ökuskólum lokatillögu vegna
breytinga sem áformað er að gera
vegna meiraprófs. Í tillögunni,
sem er til umsagnar ökukennara
er gert ráð fyrir að bókleg hlið
próftaka til meiraprófs verði fært
frá almennum ökuskólum og til
Frumherja. Þá er áformað að
fjölga ökutímum til undirbúnings
prófs á vörubifreiðar úr fimm
stundum í 12. Ökutímum vegna
langferðabíla á að fjölga úr fimm
í átta til tólf.
Sigurður Gíslason, eigandi
Ökuskóla SG, hefur rekið skóla
sinn í 11 ár. Hann segir að verði
þetta að veruleika muni kostnaður
vegna meiraprófs stórhækka.
„Það er ljóst að nái þessar
breytingar fram að ganga þá mun
kostnaður við meiraprófið hækka
um 80 til 100 prósent,“ segir hann.
Sigurður segir að það kosti í
dag um 200 þúsund krónur að taka
meirapróf en með breytingum
hækki það í 350–400 þúsund.
„Það felur í sér hreina aðför að
skólanum að taka af okkur bók-
legu prófin. Gangi þetta eftir mun
ég skoða það hvort ég hætti ekki
þessum rekstri,“ segir Sigurður
sem kennir allt að 400 nemendum
á ári til meiraprófs. ■
Fallinn þingmaður
ráðinn á Hagstofu
Guðjón Guðmundsson, fyrrverandi alþingismaður Sjálfstæðisflokks, var ráðinn á Hagstofu Ís-
lands án auglýsingar. Hagstofustjóri segir að myndast hafi „framboð á fyrrverandi þingmanni“.
VINNUMARKAÐUR Guðjón Guð-
mundsson, fyrrverandi alþingis-
maður Sjálfstæðisflokksins á
Vesturlandi, sem féll í seinustu
kosningum eftir að hafa setið þrjú
kjörtímabil á þingi hefur verið
ráðinn í sérverkefni á Hagstofuna.
H a l l g r í m u r
Snorrason hag-
stofustjóri stað-
festi að Guðjón
hefði verið ráð-
inn tímabundið
til starfa á at-
vinnurekstrar-
deild. Aðspurður
staðfesti hann að
starfið hefði
ekki verið aug-
lýst. Hann segir að Guðjón hafi
byrjað um áramótin og ráðningin
sé til eins árs.
„Við höfðum þörf fyrir starfs-
kraft í tímabundið verkefni og þá
var það niðurstaðan að þetta gæti
gengið saman,“ segir Hallgrímur.
Guðjón hefur mikla reynslu
sem alþingismaður allt frá því
árið 1991. Hann varð gagnfræð-
ingur á Akranesi árið 1959 en hef-
ur síðan sótt nokkur stjórnunar-
námskeið. Áður en hann var kjör-
inn á þing starfaði hann sem skrif-
stofustjóri hjá skipasmíðastöð.
„Hann starfar í sambandi við
birgðaskýrslur. Við höfum verið
að byggja upp þessa skýrslugerð
og viljum styrkja það,“ segir Hall-
grímur. Innan Hagstofunnar eru
raddir uppi um að engin þörf hafi
verið fyrir Guðjón í starfið sem
um ræðir. Hallgrímur segist ekki
hafa orðið var við urg meðal sinna
starfsmanna. Starfsmaður sem
fyrir var verði færður til.
„Við ætlum að taka hana í ann-
að, nánast og Guðjón kemur inn
og fyllir þá það skarð,“ segir Hall-
grímur.
Hann segir að í rekstraráætl-
unum Hagstofunnar sé gert ráð
fyrir kostnaði vegna nýs starfs-
manns þótt ráðningu hans hafi
borið brátt að eða fyrir áramót.
Hann segir nokkra góða kosti
vera við ráðningu Guðjóns því þar
með losni sá starfsmaður sem fyr-
ir var.
„Þarna var framboð á þessum
fyrrverandi þingmanni sem í
sjálfu sér er alls góðs maklegur,“
segir hann.
Hagstofan er ráðuneyti með
sinn eigin ráðherra. Um margra
ára skeið hefur það verið Davíð
Oddsson forsætisráðherra. Hall-
grímur segir starf sitt vera ígildi
ráðuneytisstjóra og hann hafi því
náið samráð við ráðherra. Að-
spurður um það hvort Davíð hafi
eitthvað haft að gera með ráðn-
ingu flokksbróður síns vildi Hall-
grímur ekkert um það segja.
„Er ekki best að spyrja hann að
því? Hann hefur samráð við sinn
ráðuneytisstjóra og ég við minn
ráðherra,“ segir Hallgrímur.
Ekki náðist í Davíð Oddsson,
ráðherra Hagstofu, vegna þessa
máls.
rt@frettabladid.is
Sígarettuframleiðandi í
Finnlandi:
Íþróttavörur
í stað tóbaks
HELSINKI, AP Amer, stærsti
sígarettuframleiðandi í Finnlandi,
áformar að hætta framleiðslu
tóbaks og einbeita sér þess í stað að
íþróttavörum. Fyrirtækið ætlar að
segja upp 250 starfsmönnum vegna
breytinganna.
Amer, sem á einkaleyfi á fram-
leiðslu og dreifingu Philip Morris
sígaretta í Finnlandi, stefnir að því
að hætta að tóbaksframleiðslu í
mars. Viðræður eru hafnar við
Philip Morris um endursölu á
einkaleyfinu.
Amer á íþróttavörumerkin Wil-
son, Atomic, Suunto og Precor. ■
„Við höfum
verið að
byggja upp
þessa
skýrslugerð
og viljum
styrkja það.
MÚSLIMAKONA
Múslimaklerkurinn Mohamed Kamal
Mustafa var fundinn sekur um að hafa hvatt
trúbræður sína til að beita konur ofbeldi.
Múslimaklerkur
dæmdur:
Hvatti
menn til að
berja konur
MADRÍD, AP Dómstólar á Spáni hafa
dæmt múslimaklerkinn Mohamed
Kamal Mustafa í fimmtán mánaða
fangelsi fyrir að skrifa bók með
leiðbeiningum um það hvernig
menn geti lamið eiginkonur sínar
án þess að þær hljóti sjáanlega
áverka. Dómurinn er skilorðs-
bundinn þar sem þetta er fyrsta
brot klerksins.
Kviðdómur í Barcelona fann
Mustafa sekan um að hafa hvatt
karlmenn til að beita konur
ofbeldi. Auk fangelsisdómsins var
honum gert að greiða sem svarar
um 190.000 íslenskum krónum í
sekt. Í bókinni „Konur í íslam“,
sem gefin var út fyrir þremur
árum, lýsir Mustafa því hvernig
hægt sé að refsa konum án þess
að það sjái á þeim. ■
Vinnumarkaðsrannsókn:
Fleiri án
atvinnu
ATVINNA Atvinnuleysi jókst frá
þriðja fjórðungi síðasta árs til
þess fjórða samkvæmt vinnu-
markaðsrannsókn Hagstofunnar.
4.500 manns voru atvinnulausir,
að meðaltali, þrjá síðustu mánuði
síðasta árs. Atvinnuleysi mældist
því 2,9% og var nokkuð meira hjá
körlum, þrjú prósent, en konum,
2,7%. Á þriðja ársfjórðungi mæld-
ist atvinnuleysið 2,6%
Vinnuvika var að meðaltali
41,5 klukkustund. Karlar unnu að
meðaltali 46,8 tíma á viku en kon-
ur 35,4. ■
GUÐJÓN GUÐMUNDSSON
Missti vinnuna í seinustu kosningum. Því hefur nú verið kippt í liðinn.
Allir 41,5 klst.
Karlar 46,8 klst.
Konur 35,4 klst.
MEÐALVINNUVIKAN
SIGURÐUR GÍSLASON
Segir að tillögur um breytt fyrirkomulag
ökuprófs geti leitt til allt að
100 prósenta hækkunar.
HALLGRÍMUR SNORRASON
Nýtti sér að fyrrverandi þingmaður var á
lausu.
Þríhnúkagígur:
Aðgengilegur
almenningi
BORGARRÁÐ Borgarráð hefur falið
Höfuðborgarstofu að leita eftir
samstarfi við nágrannasveitarfé-
lögin og Bláfjallanefnd um að gera
Þríhnúkagíg aðgengilegan almenn-
ingi, en Þríhnúkar eru austur af
Stóra-Kóngsgili á mörkum Reykja-
víkur, Garðabæjar og Kópavogs.
Í því skyni verður meðal annars
stefnt að samstarfi við ferðaþjón-
ustuna, náttúruverndarsamtök og
umhverfisráðuneytið. Þríhnúkagíg-
ur þykir einstætt náttúruundur
sem flestum hefur verið hulið.
Borgaryfirvöld vilja með ákvörðun
sinni standa vörð um svæðið. ■
GASABORG, AP Ísraelsk yfirvöld lok-
uðu landamærum Ísraels og her-
numdu svæða Palestínu á Gasa-
ströndinni í kjölfar sjálfs-
morðsárásarinnar á miðvikudag.
Þúsundir Palestínumanna komust
ekki til vinnu af þessum sökum.
Fjórir Ísraelar létust þegar ung
tveggja barna móðir sprengdi sig í
loft upp á landamærunum. Konan
var liðsmaður Hamas og þótti árás-
in sýna að samtökin væru að leita
nýrra aðferða til að snúa á öryggis-
kerfi Ísraela. Ísraelski herinn hef-
ur hingað til beint athygli sinni að
ungum karlmönnum og látið palest-
ínskar konur að mestu afskiptar.
„Andspyrnan mun halda áfram þar
til fáni íslam hefur verið dreginn að
húni, ekki aðeins á bænaturnum
Jerúsalem heldur um allan heim,“
sagði Mahmoud Zahar, leiðtogi
Hamas-samtakanna í Gasaborg
þegar fregnir bárust af árásinni.
Shaul Mofaz, varnarmálaráð-
herra Ísraels, fyrirskipaði að
landamærunum á Gasa skyldi lok-
að í einn dag vegna árásarinnar. ■
JARÐARFÖR
Þúsundir Palestínumanna fylgdu Reem Rai-
yshi til grafar í Gasaborg. Raiyshi sprengdi
sig í loft upp á landamærum Ísraels og her-
numdu svæða Palestínu á Gasaströndinni.
Ísraelar lokuðu landamærunum að Gasa:
Þúsundir Palestínumanna
komust ekki til vinnu