Fréttablaðið - 16.01.2004, Blaðsíða 40
16. janúar 2004 FÖSTUDAGUR
Íslandsmótið í glímu
GLÍMA Önnur umferð Íslandsmótsins í
glímu fer fram í Reykjahlíð á morg-
un. Keppni hefst kl. 12 og er gert ráð
fyrir að keppni ljúki um kl. 15. Alls
eru 23 glímumenn frá fimm félögum
skráðir til leiks.
Allir bestu glímumenn landsins
eru skráðir til leiks og má búast við
spennandi keppni í öllum flokkum. Í
opnum flokki karla er Ólafur Oddur
Sigurðsson sigurstranglegastur en
búist er við að Stefán Geirsson og
Pétur Eyþórsson veiti honum mestu
keppnina. Einnig verður spennandi
að fylgjast með Snæ Seljan Þórodds-
syni og Guðmundi Þór Valssyni en
þeir eru efnilegustu glímumenn
landsins og hafa æft mjög vel í vetur.
Í opnum flokki kvenna verður
keppnin á milli Ingu Gerðu Péturs-
dóttur og Svönu H. Jóhannsdóttur.
Inga Gerða hafði betur í fyrstu um-
ferðinni en búast má við spennandi
keppni þeirra á milli um helgina.
Fyrsta umferð Íslandsmótsins fór
fram að Laugarvatni 13. nóvember en
þriðja og síðasta umferðin fer fram í
Reykjavík 14. febrúar og þá verða Ís-
landsmeistararnir krýndir. ■
Draumur-
inn lifir enn
Karl Gunnlaugsson fylgist grannt með Bretan-
um Stephen Hague í París-Dakar rallinu. Sjálf-
an dreymir hann um að taka þátt í keppninni.
RALL „Við Hague kynntumst í
Bretlandi árið 1995 þegar við
kepptum í Wales. Við höfum
keppt þar árlega síðan,“ sagði
Karl Gunnlaugsson hjá KTM Ís-
land. Bretinn Stephen Hague
keppir í París-Dakar rallinu
með stuðningi Karls undir nafni
KTM Iceland.
„Við kepptum einnig í Dubai
árin 1998 og 1999. Það er sam-
bærileg keppni við París-Dakar
nema hvað hún tekur aðeins
fjóra daga og þar eru eknir um
tvö þúsund kílómetrar. París-
Dakar rallið tekur átján daga
og þar eru eknir rúmlega tíu
þúsund kílómetrar. Aðstæður í
París-Dakar rallinu eru líka
fjölbreyttari. Keppnistímabilið
hefst með París-Dakar rallinu
og því lýkur með rallinu í
Dubai.“
„Stephen keppti í Dakar árið
1999 með stuðningi frá KTM
Iceland og við ætluðum að taka
þátt í keppninni árið 2000 en
ekkert varð af því.“ Hague
bauðst að taka þátt í keppninni í
ár vegna forfalla í breskum
hópi. „Ég var staddur hjá KTM
í Austurríki og gat fengið full-
búið keppnishjól fyrir hann,“
sagði Karl.
Karl sagði að þetta rall væri
talið erfiðara en fyrri keppnir.
Nýjar leiðir gera það erfirðara
en einnig hafa rigningar og rok
breytt aðstæðum frá því leiðin
var ákveðin fyrir þremur til
fjórum mánuðum. Karl sagði að
meðalhraðinn hafi verið 78 kíló-
metrar á miðvikudag en 95 til
100 kílómetrar teljist eðlilegur
hraði í rallinu.
„Síðustu dagar hafa verið
strembnir og aðstoðarmennirn-
ar höfðu ekki við keppendum.
Fyrir hléið um síðustu helgi
hafði Stephen ekki séð aðstoð-
arliðið í þrjá daga. Hann þurfti
að gera við hjólið sjálfur eftir
að hafa ekið um þúsund kíló-
metra yfir daginn.“
„Í svona liði eru þrír aðstoð-
armenn auk pallbíls en ég hef
samning við KTM um að hann
fái aðstoð frá keppnisliðinu og
hafi aðgang að varahlutum hjá
því.“
KTM á nokkur lið í keppn-
inni, til dæmis Gauloise-liðið
sem Richard Sainct keppir fyr-
ir og Repsol-liðið sem Nai
Roma keppir fyrir. „Þarna er
líka skandinavískt lið. Í því er
Svíinn Per-Gunnar Lundmark
sem keppti í þolakstri á Kirkju-
bæjarklaustri í maí í fyrra.
Hann er í fimmta sæti. Norð-
maðurinn Pal Anders Ulleval-
seter er í sjötta sæti. Það eina
sem vantar í skandinavíska lið-
ið er íslenskur keppandi,“ sagði
Karl. Og skyldi hann hafa
áhuga á að fylla þann hóp?
„Draumurinn lifir enn,“ svaraði
Karl. ■
!
"
#
$
"
!
"
"
%
$
"
"
$
"
& '
()*
& +
"$
$
,
"$ -
& '
""
& +
.)/ (*)
"
// &
& %
!
"
& 0
"
*)12
$
"
"
"
// & 3
""
%
$
4
"
$
5
6
$
!
"
!
# $
%
&' (
) ! !
!
# !
$
*
!
%#
)'
! +
! %
,
%# ! -
"
"
KARL GUNNLAUGSSON
Bretinn Stephen Hague keppir í París-Dakar rallinu með stuðningi Karls undir nafni KTM
Iceland.
INGA GERÐA PÉTURSDÓTTIR
Keppir í annarri umferð Íslandsmótsins í
glímu í dag. Hún sigraði í fyrstu umferð-
inni sem fram fór í nóvember.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA