Fréttablaðið - 16.01.2004, Blaðsíða 22
22 16. janúar 2004 FÖSTUDAGUR
■ Afmæli
■ Andlát
■ Jarðarfarir
Áþessum degi fyrir 12 árum, árið1991, tilkynntu talsmenn Hvíta
hússins að aðgerðin Operation Des-
ert Storm væri hafin með áætlun
um að flæma hersveitir Íraka frá
Kúvaít. Bandaríkjaher hóf síðan
öflugar sprengjuárásir á „úrvals-
sveitir“ Saddams Hussein í Kúvaít
og skotmörk í Írak.
Persóflóastríðið hafði verið yfir-
vofandi um nokkurt skeið og vonir
manna um friðsamlega lausn á deil-
unni urðu að engu þegar Eyðimerk-
urstormurinn byrjaði að blása.
Nafn tomahawk-stýriflauganna
stimplaðist í kjölfarið inn í sameig-
inlegan orðaforða heimsbyggðar-
innar en Bandaríkjamenn beittu
þeim óspart áður en þeir stigu á
land í Kúvaít.
Hernaðarsérfræðingar efuðust
aldrei um sigur Bandaríkjamanna í
átökunum en Hussein var hvergi
banginn og lýsti því ítrekað yfir að
milljón manna her sinn væri reiðu-
búinn til að berjast til síðasta blóð-
dropa. Hann væri búinn undir mik-
ið mannfall en gæti barist árum
saman.
George Bush eldri var forseti
Bandaríkjanna þegar átökin brut-
ust út en hann hét þjóð sinni því að
hörmungar Víetnamstríðsins
endurtækju sig ekki við Persaflóa.
Árásirnar yrðu þungar og snöggar
og Bandaríkin beittu fullum her-
styrk sínum. ■
10.30 Halldór Sigurgeirsson lögfræð-
ingur, dalarheimilinu Grund, verð-
ur jarðsunginn frá Grensáskirkju.
13.30 Finnbogi Gunnar Jónsson,
Drápuhlíð 33, Reykjavík, verður
jarðsunginn frá Háteigskirkju.
13.30 Hilmar Pálsson frá Hjálmsstöð-
um, Laugarnesvegi 94, verður
jarðsunginn frá Dómkirkjunni.
13.30 Kristín Elísabet Benediktsdóttir
Waage, Gnoðarvogi 64, verður
jarðsungin frá Langholtskirkju.
13.30 Sigurður Ágúst Hafsteinn Jóns-
son, hjúkrunarheimilinu Skógar-
bæ, verður jarðsunginn frá Bú-
staðakirkju.
14.00 Ása Gunnlaugsdóttir frá Syðra-
Kolugili, dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi, verður jarðsungin frá
Akraneskirkju.
14.00 Jón Þorvarðarson, Vindási,
Rangárvöllum, verður jarðsunginn
frá Oddakirkju á Rangárvöllum.
15.00 Guðjón Ásberg Jónsson mynd-
skeri, Núpalind 6, Kópavogi, verð-
ur jarðsunginn frá Digraneskirkju.
15.00 Steingrímur Arason verkfræðing-
ur, Kópavogsbraut 1c, Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kapellu.
15.00 Valgeir Matthías Pálsson,
Brekkubyggð 7, Blönduósi, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju í
Reykjavík.
Það hefur oft komið fyrir í 25 árasögu verslunarinnar að við höf-
um fengið mikið af bókum og ritum
gefins eða fyrir lítinn pening og
ætli það megi ekki bara segja að
við séum að þakka fyrir okkur með
því að koma þessu áfram,“ segir
Ari Gísli Bragason fornbókasali en
hann og félagar hans ætla að gefa
viðskiptavinum sínum eitthvað í
kringum 10.000 bækur um helgina.
Bókavarðan hefur verið með
bókamarkað við Hlemmtorg frá
því skömmu fyrir jól. Markaðinum
lýkur á sunnudaginn og þar sem
ekki er pláss fyrir bókalagerinn
þar í höfðustöðvunum við Vestur-
götu hefur verið ákveðið að gefa
allt heila galleríið.
„Íslandsbanki er búinn að selja
húsnæðið þannig að þessu er að
ljúka hjá okkur en við erum að spá
í að leyfa hverjum og einum að
taka á bilinu 15 til 20 bækur svo
þetta dreifist svolítið,“ segir Ari
Gísli sem á allt eins von á að
„búlla“ verði opnuð í húsinu þegar
bækurnar eru farnar. „Það hefur
safnast upp gríðarlegt magn bóka
hjá okkur í gegnum árin og þessir
350 fermetrar á Vesturgötunni eru
yfirfullir þannig að bækurnar fara
ekki þangað en það er bara gott ef
þetta gleður einhvern.“
Á Hlemmi má finna bækur úr
nánast öllum greinum skáldskapar
og fræða, ævisögur og rit um and-
leg málefni, guðspeki og andatrú.
Þá er vitaskuld gott úrval af ljóða-
bókum á markaðnum og bunkar af
gömlum íslenskum tímaritum
þannig að það gæti borgað sig að
kíkja á Ara Gísla og félaga um
helgina en þeir byrja að gefa bæk-
ur strax í dag. ■
Fornbækur
FORNBÓKAMARKAÐUR
BÓKAVÖRÐUNNAR
■ hættir á sunnudaginn. Það er hvergi
pláss fyrir lagerinn þannig að gestir og
gangandi sem koma við á Hlemmi mega
hirða bækur í tugavís um helgina.
Gefur tíu þúsund bækur
Ég verð að moka snjó,“ segirGuðjón Rúdolf Guðmunds-
son, tónlistarmaður sem er 45
ára í dag. Guðjón er búsettur í
Árósum í Danmörku og þar er
veturinn mættur. „Það lítur út
fyrir að það komi lægð inn og
gusi einhverju hvítu á okkur. Þar
sem ég vinn á elliheimili þarf ég
að halda snjófríu fyrir gamla
fólkið.“
Snjómoksturinn kemur þó
ekki alveg í veg fyrir að haldin
verði veisla. „Ég ætla að fresta
afmælinu um hálft ár og halda
veislu í júlí. Ég nenni ekki að
standa í vetrarveislum. Þar fyrir
utan er ég svolítið bundin af
vinnunni minni og get ekki leyft
mér neitt nema rósir núna.“
Eftirminnilegasta afmæli
Guðjóns var árið sem hann ætl-
aði ekki að halda upp á afmælið
sitt. „Það var búið að skipuleggja
óvænta veislu á 22. Ég ætlaði
ekki að fást til að fara út úr húsi,
en konan fékk mömmu til að
koma yfir og draga mig í föt.
Maður hlýðir alltaf mömmu
sinni. Það var svo mamma sem
dró mig niður á 22 þar sem voru
blöðrur og kokteilar og mikil
veisla í gangi.“
Guðjón gerði hér allt vitlaust
á síðasta ári með laginu sínu
Húfan sem hann sagði vera
framlag til bindindisbaráttunnar
á Íslandi. Nú er hann að leggja
síðustu hönd á nýja plötu með
dönsku félögunum sínum í
hljómsveitinni Krauka sem er
væntanleg um miðjan febrúar.
Þetta er önnur plata þeirra fé-
laga sem hafa spilað saman í
fjögur ár. „Við spilum á endur-
gerð hljóðfæri frá víkingatíma-
bilinu. Vinkona mín, Ingibjörg
Gísladóttir sögukona, fékk þá
hugmynd að hafa tónlist undir
með sögum. Þegar við heyrðum
hvernig þetta hljómaði má segja
að við höfum ánetjast tónlistinni.
Eftir að við smíðuðum hljóðfær-
in höfum við leyft þeim svolítið
að ráða ferð vegna þess að þau
eru svo takmörkuð. Það er samt
merkilegt hvað er hægt að spila
þessi gömlu þjóðlög á þau.“
Að sjálfsögðu var ekki hægt
að sleppa Guðjóni án þess að
spyrja hvort hann væri búinn að
finna húfuna sína. „Ég er alltaf
að týna þessum húfum,“ svaraði
hann. Vonandi finnur hann ein-
hverjar þeirra aftur í snjónum í
Danmörku. ■
Afmæli
GUÐJÓN RÚDOLF
GUÐMUNDSSON
■ er 45 ára. Mokar snjó í dag
á elliheimilinu.
AALIYAH
Þessi efnilega R&B söngkona
fæddist á þessum degi árið 1979
en hún lést í flugslysi árið 2001.
16. janúar
■ Þetta gerðist
1547 Ívan grimmi er krýndur Rúss-
landskeisari.
1759 The British Museum opnar.
1920 Charlie Chaplin frumsýnir
myndina The Kid.
1925 Leon Trotsky var rekinn úr
formannsstóli Rússneska
byltingarráðsins.
1944 Dwight D. Eisenhower, hers-
höfðingi og síðar forseti Banda-
ríkjanna, tók við yfirstjórn herja
Bandamanna.
1970 Muammar el-Quaddafi verður
forseti Líbíu.
1992 Yfirvöld í El Salvadaor og upp-
reisnarmenn undirrita friðarsátt-
mála í Mexíkó og 12 ára borg-
arastríði lýkur.
EYÐIMERKURSTORMUR
■ Bandaríkjamenn tilkynntu að aðgerðin
Desert Storm væri komin í gagnið og í
kjölfarið beittu þeir herafla sínum af
fullum þunga til að koma herliði Íraka
frá Kúvaít.
16. janúar
1991
Ég er alltaf að týna
þessum húfum
Aðalheiður Eyjólfsdóttir frá Stokkseyri
lést þriðjudaginn 13. janúar.
Friðrik Ingólfsson, Laugarhvammi,
Tungusveit, lést sunnudaginn 11. janúar.
Guðbjörg María Sigfúsdóttir frá Stóru-
Hvalsá, Hrútafirði, lést þriðjudaginn
13. janúar.
Guðmundur Gíslason brúarsmiður lést
þriðjudaginn 13. janúar.
Guðrún Jónsdóttir, Akurgerði 17, lést
mánudaginn 12. janúar.
Jónína G. Baldvinsdóttir, Bræðraborg-
arstíg 23A, Reykjavík, lést mánudaginn
12. janúar.
Sigríður Árnadóttir frá Burstafelli í Vest-
mannaeyjum lést mánudaginn
12. janúar.
Þórhildur Þórðardóttir lést mánudag-
inn 5. janúar. Útförin hefur farið fram í
kyrrþey.
B Ó K A B Ú Ð S T E I N A R S
Ú T S A L A
M Ö R G H U N D R U Ð E R L E N D I R T I T L A R
O p i ð l a u g a r d a g f r á k l . 1 2 - 1 8
o g s u n n u d a g f r á k l . 1 3 - 1 7
M I K I L L A F S L Á T T U R
B e r g s t a ð a s t r æ t i 7 S í m i 5 5 1 2 0 3 0 F a x 5 6 2 6 4 3 0 s t e i n b o o k @ h e i m s n e t . i s
O p i ð v i r k a d a g a 1 3 - 1 8
1
0
1
0
.5
GUÐJÓN RÚDOLF GUÐMUNDSSON
Sló í gegn með laginu Húfan en er nú að spila á endurgerð hljóðfæri frá víkingaöld.
Gunnar Kvaran, sellóleikari er
60 ára í dag.
EIVÖR PÁLSDÓTTIR
Hún kom, sá og sigraði
á Íslensku tónlistarverðlaununum
og fer heim til Færeyja með verðlaun
sem besta söngkonan og besti flytjandi
í popptónlist 2003.
??? Hver?
Ég er tónlistarkona. Ég hef gaman af
tónlist og list og búin að vinna í því
síðan ég var 16 ára.
??? Hvar?
Ég er í Danmörku, á leiðinni heim til
Færeyja þar sem ég verð í smá stund.
??? Hvaðan?
Úr Götu, sveit í Færeyjum.
??? Hvað?
Ég hef verið í Færeyjum að vinna í ýmsu
varðandi tónlist.
??? Hvers vegna?
Ég þarf á tónlist að halda.
??? Hvernig?
Því þegar ég sem lag, sem ég er ánægð
með og spila og það gengur vel, gerir
það mig glaða.
??? Hvenær?
Eiginlega alltaf. Núna þarf ég smá tíma
til að semja nýja tónlist og æfa mig.
ÓVINUR BUSH FEÐGA NÚMER EITT
Saddam Hussein storkaði örlögunum og
Bandaríkjamönnum með því að senda
herlið inn í Kúvaít. George Bush eldri, þá-
verandi forseti Bandaríkjanna, svaraði með
sprengjuárás en það var ekki fyrr en 12
árum seinna að útsendarar sonar hans
höfðu hendur í hári kauða.
Bush eldri hjólar í Saddam
■ Persónan
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
ARI GÍSLI BRAGASON
Rekur Bókavörðuna á Vesturgötu ásamt
föður sínum, Braga Kristjónssyni.