Fréttablaðið - 16.01.2004, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 16.01.2004, Blaðsíða 14
14 16. janúar 2004 FÖSTUDAGUR ■ Írak RABIN AFHJÚPAÐUR Yfir 1.000 manns voru viðstaddir þegar rúmenski þjóðernissinninn Corneliu Vadim Tudor afhjúpaði styttu af Yitzhak Rabin, fyrrum forsætisráðherra Ísraels, í Brasov í Rúmeníu. Tudor hefur verið sakaður um fordóma í garð gyðinga og hafði ísraelska sendiráðið í Búkarest gagnrýnt það harð- lega að hann skyldi vera valinn til að af- hjúpa styttuna. Ástand loðnustofnsins: Veiðibann í hálfan mánuð LOÐNUVEIÐAR Sjávarútvegsráð- herra hefur, að tillögu Hafrann- sóknastofnunarinnar, bannað all- ar loðnuveiðar næstu tvær vikur, til 29. janúar. Lokið er mælingum stofnunarinnar á stærð loðnu- stofnsins sem gerðar voru eftir að tíu loðnuskip höfðu kannað hugs- anlegt útbreiðslusvæði loðnunnar í samvinnu við Hafrannsókna- stofnunina dagana 3. til 5. janúar. Enda þótt víða yrði vart við loðnu úti af Norður- og Norðaust- urlandi var hún mjög dreifð. Nið- urstaða mælingarinnar var því sú að stofninum gæti stafað hætta af ef veiðunum yrði fram haldið. Hafrannsóknastofnunin lagði því til við sjávarútvegsráðherra að loðnuveiðar yrðu stöðvaðar í tvær vikur, þangað til stærð stofnsins hefði verið mæld á ný. Hafrannsóknastofnunin mun á grundvelli niðurstöðu væntan- legra mælinga, gera frekari til- lögur í þessum efnum. Í tilkynningu sjávarútvegs- ráðuneytisins segir, að hafi Haf- rannsóknastofnunin lokið endur- mati áður en veiðibanninu lýkur, verði ákvörðunin endurskoðuð. ■ Bitnar á fiskvinnslu en gagnast Flugleiðum Veiking dollara gagnvart evru og krónu kemur fiskvinnslunni illa. Útgerðin er gengisvarin með mikinn hluta kostnaðar í dollurum. Flugleiðir hagnast vegna tekna í evru og kostnaðar í dollurum. Almenningur fær ódýrari raftæki, bandaríska bíla og neysluvörur. GENGISÞRÓUN Bandaríkjadollari kostar nú tæpar 70 krónur og hefur lækkað ört að undanförnu. Fyrir ári kostaði dollarinn um 80 krónur og fyrir tveimur árum um 100 krónur. „Gildin voru öfgakennd á því tíma- bili þegar krónan var sem veikust og dollarinn var sem sterkastur. Það sama gæti verið uppi á teningnum nú í öfugum hlutföllum,“ segir Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningar Íslandsbanka. Hann seg- ir langtímahorfur benda til þess að dollarinn sé veikari en standist til lengri tíma og krónan sterkari. „Til skamms tíma er hins vegar allt eins líklegt að þessi þróun haldi áfram og dollar- inn lækki enn frekar en orðið er.“ Ingólfur tek- ur fram að mjög erfitt sé að spá fyrir um gengis- sveiflur til skamms tíma. „Ef maður lítur lengra aftur er gild- ið milli dollarans og krónunnar svipað nú og það var á árunum 1990 til 1996.“ Hann segir langvarandi viðskiptahalla í Bandaríkjunum helstu ástæðu gengisfallsins og framleiðniaukning þar hafi ekki náð að vega upp á móti hallanum. Ingólfur segir að þegar áhrifin séu skoðuð verði að gera greinar- mun á þróun dollarans gagnvart helstu myntum annars vegar og þróun krónunnar gagnvart helstu myntum hins vegar. „Ef við skoðum þróunina milli evru og dollara, þá er innflutningur frá Bandaríkjunum að lækka. Við sjáum auglýsingar með ódýrum bandarískum pickup- bifreiðum og sama á við um banda- rísk matvæli.“ Hann segir að samningar um kaup á fatnaði og raftækjum séu oft í dollurum þótt varan sé framleidd annars staðar. Sama gildi um útflutninginn. „Þetta er oft dá- lítið flókið, þar sem svokölluð þriðju landa áhrif koma inn. Það gildir þegar samningar eru í dollurum þótt við- skiptin séu á milli landa með aðrar myntir, jafnvel í Evrópu.“ Almennt hafi þróun gjaldmiðla að undanförnu fremur lítil áhrif á útgerð, þar sem kostnaður sé að miklu leyti í dollur- um, meðan hún hafi mjög neikvæð áhrif á fiskvinnsluna, sem hafi tekj- ur í dollurum en kostnað í krónum. Þróunin kemur líka mismunandi niður í ferðaþjónustu. „Flugleiðir eru klárlega dæmi um það að þróun evru og dollara að undanförnu er hagstæð. Þeir eru með mikinn kostnað í dollurum og mikið af tekj- um í evrum.“ Almennt talað bitnar þróunin á þeim sem hafa tekjur í dollurum en kostnað og skuldir í krónum eða evru. „Einnig þeim sem eiga miklar eignir í dollurum. Dæmi um það gætu verið lífeyrissjóðir, sem hafa verið að auka eign sína í dollurum.“ haflidi@frettabladid.is „Við sjáum auglýsingar með ódýrum bandarískum pickup-bif- reiðum og sama á við um bandarísk matvæli. Afleiðingar stríðsins í Írak: Aukin tíðni sjálfsvíga BANDARÍKIN Að sögn Williams Winkenwerder, yfirmanns heilsu- farssviðs bandaríska varnarmála- ráðuneytisins í Pentagon, er sjálfsmorðstíðni meðal banda- rískra hermanna í Írak nær þriðj- ungi hærri heldur en hún var á friðartímum fyrir stríðið. Auk þess bíði um 2.500 hermenn lækn- ismeðferðar eftir að hafa snúið heim frá Írak og fyrirséð að sú tala eigi eftir að hækka til muna þegar tugum þúsunda hermanna verði skipt út fyrir nýja í vor. Þetta kom fram á fréttamanna- fundi í Pentagon í gær og sagði Winkenwerder að vandamálið væri litið svo alvarlegum augum innan hersins að ákveðið hefði verið að senda hóp ráðgjafa til Íraks í lok síðasta árs til þess að meta hvort eitthvað væri hægt að gera til þess að koma í veg fyrir aukin sjálfsvíg. Aðstoð heima fyrir hafi einnig verið aukin eftir að nokkrir hermenn, ný- komnir heim frá Írak, höfðu myrt eiginkonur sínar áður en þeir frömdu sjálfsmorð. Winkenwerder sagði að á síð- asta ári hefði 21 bandarískur her- maður, sem þátt tóku í hernaðar- aðgerðunum í Írak, framið sjálfs- morð og hefðu átján þeirra verið úr bardagasveitum. Það þýðir að þrettán af hverjum 100.000 her- mönnum fremji sjálfsmorð. ■ FIMM FÓRUST Í SJÁLFSMORÐS- ÁRÁS Fimm íraskir borgarar létu lífið og 29 slösuðust þegar sjálfs- morðsliði sprengdi sig í bíl utan við lögreglustöð í bænum Baqouba í súnní-þríhyrningnum. Sjónarvottur segist hafa séð bíl- inn nálgast lögreglustöðina sek- úndum áður en hann sprakk í um 50 metra fjarlægð frá bygging- unni, sem skemmdist mikið í sprengingunni. ÁTTA SKOTNIR TIL BANA Banda- rískir hermenn skutu átta grun- aða skæruliða til bana vestur af borginni Samarra á þriðjudaginn eftir að skotið hafði verið á her- mennina úr átta bílum sem óku hjá. Hermennirnir svöruðu skot- hríðinni og eyðilögðust tveir bíl- anna en hinir sex voru eltir uppi. Alls 26 manns voru handteknir. FRÆNDUR AL-DOURIS HAND- TEKNIR Bandarískar hersveitir handtóku í fyrradag fjóra ætt- ingja Izzats Ibrahim al-Douri, fyrrum varaforseta Íraks, sem er háttsettastur eftirlýstra stuðn- ingsmanna Saddams, sem enn ganga lausir. Mennirnir voru handteknir við leit í tveimur hús- um í Samarra og eru tveir þeirra taldir nánir samstarfsmenn al- Douris við skipulagningu skæru- árása. FLOKKSLEIÐTOGI HANDTEKINN Bandaríska herstjórnin í Írak hefur tilkynnt að Khamis Sirhan al-Muhammad, sem var númer 54 á lista Bandaríkjamanna yfir eft- irlýsta stuðningsmenn Saddams Hussein, hafi verið handtekinn í bænum Ramadi á sunnudaginn. Al-Muhammad er fyrrum leiðtogi Baath-flokksins í Karbala og tal- inn aðalskipuleggjandi skæru- árása í Anbar-héraði á Fallujah- svæðinu. LOÐNUBANN Í BILI Sjávarútvegsráðherra bannaði í gær, að tillögu Hafrannsóknastofnunarinnar, veiðar á loðnu til 29. janúar. Sjómenn á Beiti og öðrum loðnuskipum mega því bíða enn um sinn. Á VARÐBERGI Bandarískir hermenn í Írak eru undir miklu álagi og er sjálfsmorðstíðni þriðjungi hærri en fyrir stríðið. ÁHRIF LÆKKANDI BANDA- RÍKJADOLLARA Innflutningur sem lækkar: fatnaður raftæki bandarískir bílar bandarískar neysluvörur Útflutningur sem lækkar: ál sjávarafurðir iðnaðarvörur Kostnaður sem lækkar: olía lán í dollurum aðföng í dollurum MISMUNANDI ÁHRIF Ingólfur Bender, for- stöðumaður grein- ingar Íslandsbanka, telur stöðu dollar- ans gagnvart krónu nú ekki standast til lengri tíma. Ólíklegt sé að þróunin snú- ist við í bráð. 14 .1 .2 0 0 2 15 .4 .2 0 0 2 14 .5 .2 0 0 2 14 .6 .2 0 0 2 15 .7 .2 0 0 2 16 .9 .2 0 0 2 14 .1 1 .2 0 0 2 15 .1 .2 0 0 3 14 .2 .2 0 0 3 14 .3 .2 0 0 3 14 .5 .2 0 0 3 14 .7 .2 0 0 3 14 .8 .2 0 0 3 14 .1 1 .2 0 0 3 12 .1 .2 0 0 4 101,9 97,35 91,74 89,4 85,3 87,56 85,37 80,01 77,42 78,11 72,96 77,29 79,68 75,48 69,11 ÞRÓUN DOLLARANS Gagnvart krónu unanfarin tvö ár. USD MIÐ Aðrir gjaldmiðlar Aðrir gjaldmiðlar DollarDollar Vægi dollara í utanríkisviðskiptum Innflutningur Útflutningur ELLEFU SLÖSUÐUST Að minnsta kosti ellefu manns slösuðust þeg- ar öflug sprengja sprakk nálægt kirkju í borginni Karachi í Pakistan í gær. Sprengjan sprakk stuttu eftir að óþekktur maður hringdi til lögreglunnar og til- kynnti að sprengju hefði verið komið fyrir við kirkjuna og er þetta fyrsta árásin í meira en ár sem beint er gegn minnihlutahópi kristinna í Pakistan. ■ Asía

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.