Fréttablaðið - 16.01.2004, Side 28
28 16. janúar 2004 FÖSTUDAGUR
Einstaka veitingastaðir hafa mót-að hefð með því að bjóða upp á
rétti sem hvergi fást annars staðar.
Á Café Óperu í Lækjargötu 2 er það
steinasteikin. Að sögn Ingva Rafns
framkvæmdastjóra hefur hún verið
á matseðlinum í sautján ár og tug-
þúsundir gesta velja hana árlega. En
hvers konar fyrirbæri er steina-
steik. Ingvi Rafn sýnir ofn sneisa-
fullan af graníthellum. „Þessir stein-
ar eru 380 gráðu heitir enda höfum
við þá sólarhring í ofninum milli
þess sem við notum þá. Þessvegna
erum við alltaf með hundrað í
gangi,“ segir hann. Síðan setur hann
upp stóran hanska, nær í einn stein-
inn og leggur hann á álfat ofan í tré-
bakka. „Þetta fær fólk inn á borð til
sín ásamt fati með völdu kjöti eða
fiski og fersku grænmeti sem það
steikir sjálft á steininum og borðar
beint af honum. Bökuð kartafla, kry-
ddsmjör og grillsósa fylgir með
ásamt salti og pipar. Máltíðin tekur
sinn tíma og það fylgir henni sérstök
stemning sem margir kunna að
meta.“
Ingvi Rafn kveðst hafa verið
heimsóttur af hressum dagskrár-
gerðarmönnum frá BBC á höttunum
eftir efni. „Þátturinn þeirra er þan-
nig byggður upp að einstaklingi er
boðið að borða einhvers staðar úti í
heimi og það verður að vera eitthvað
alveg sérstakt og einkennandi fyrir
svæðið. Hér á Íslandi voru þeir hug-
fangnir af hrauni og ís, þess vegna
varð steinasteik, „Hot rock“ fyrir
valinu og ís í eftirmat.“
Það var Bjarni Óskarsson veit-
ingamaður sem byrjaði með steina-
steikina um leið og hann innréttaði
staðinn í þeirri hlýlegu mynd sem
enn er í fullu gildi, sautján árum
síðar. Að sögn Ingva Rafns sló
steikin algerlega í gegn. „Mér er
minnisstæð röðin sem oft var hér út
úr dyrum og þótt margt sé á
boðstólum þá nýtur steinasteikin
enn vinsælda. Hún kom sterk inn
og hún kom til að vera.“ ■
Canepa-víngerðin í Chile varstofnuð af ítölskum innflytj-
endum fyrir 70 árum og hefur ver-
ið í eigu sömu fjölskyldunnar alla
tíð. Chile er langt og mjótt land
sem nær yfir margar breidd-
argráður með fjölbreyttu veður-
fari en vínræktarsvæðin eru norð-
an við miðju landsins. Hér á landi
fást fjölmörg vín frá Canepa.
Canepa Cabernet Sauvignon
Er úr vínlínu er nefnist Vari-
etals. Vínin eru búin til þannig að
ferskleiki og karakter þrúgunnar
njóti sín vel en einnig einkenni
svæðisins. Í þessu víni finnur mað-
ur hvað Cabernet Sauvignon þrúg-
an hefur sterk einkenni. Þægilegt
eftirbragð án þess að vera yfir-
gnæfandi. Vín sem hentar með
grilluðu eða ofnsteiktu kjöti.
Verð í vínbúðum 1.090 kr.
Canepa Private Reserve
Chardonnay
Er úr Private Reserve línunni.
Til að gefa víninu flókið og dulúð-
ugt bragð er það látið þroskast á
franskri eik í 8–12 mánuði og því
næst á flösku í kjöllurum í nokkra
mánuði. Vínlína sem býður upp á
mikla fyllingu. Þetta vandaða
Chardonnay er kröftugt, þurrt,
með eikar- og asparskeim og pass-
ar afar vel með fugla- og
svínakjöti.
Verð í vínbúðum
1.290 kr.
Canepa Merlot Pri-
vate Reserve
Rúbínrautt með tær-
um blæ, þétt vín. Í bragð-
inu má finna sæta vanillu
blandast súkkulaði og
kirsuberjum. Vín sem er
alveg frábært með lambi
hvort heldur sem er
grilluðu eða ofnsteiktu,
hentar einnig vel með
svínakjöti og kjúklingi.
Verð í vínbúðum
1.390 kr.
Fjölbreytt vín frá Chile
HÓTEL LOFLEIÐIR
Um aðra helgi standa Vínþjónasamtök Ís-
lands fyrir vínsýningu í Þingsölum hótels-
ins.
Vínsýning á Hótel Loft-
leiðum 24. – 25. janúar:
Samspil mat-
ar og víns
Vínþjónasamtök Íslands standafyrir vínsýningu í Þingsölum
Hótel Loftleiða helgina 24.–25.
janúar. Haldnir verða fyrirlestrar
um vín auk þess sem gestir geta
smakkað á öllum helstu nýjungum
í vínheiminum. Vínþjónar keppa í
Ruinart-keppninni sem kennd er
við samnefndan kampavínsfram-
leiðanda og fer sigurvegarinn í
alþjóðlega Ruinart-keppni.
Sýningin er opin báða dagana
kl. 14–18. Vínþjónakeppnin hefst á
laugardeginum kl. 14 og er um-
sjónarmaðurinn Michelle Chanto-
ne frá Ruinart. Fyrirlestrarnir
verða frá kl. 14.30 á sunnudegin-
um og ríður Einar Thoroddsen á
vaðið. Í kjölfarið fylgja Skúli
Magnússon frá ÁTVR, Stephane
Oudar frá Bouchard ainé & fils í
Frakklandi og Þorri Hringsson
vínrýnir sem einnig verður kynn-
ir á sýningunni.
Sýningin er haldin í samvinnu
við alla helstu innflytjendur vína
og er mikil áhersla lögð á samspil
víns og matar en Osta- og smjör-
salan, Ostabúðin við Skólavörðu-
stíg og Sandholt bakarí taka ein-
nig þátt í sýningunni. Miðaverð er
kr. 1000 og Riedelglas fylgir á
meðan birgðir endast. Aldurs-
takmark er 20 ár. ■
HRÁEFNIÐ
Filet úr nauti, lambi og grís, ásamt fersku
grænmeti bíður þess að vera brugðið á
hellu.
Steinasteikin á Café Óperu:
Hver og einn er sinn eigin kokkur
INGVI RAFN
FRAMKVÆMDASTJÓRI
Er alltaf með fullan ofn af
heitum hellum og þegar
þær kólna á borðunum
koma þjónarnir þegar og
skipta.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
AL
Ó
A
Vín vikunnar Canepa
FYRIR KAFFIUNNENDUR ER
HÉR FRÍSKANDI KALDUR
KAFFIDRYKKUR.
3/4 bolli kalt vatn
2 tsk. Instant Neskaffi (French Roast
Gourmet)
1 bolli ísmolar
2 tsk. púðursykur
Setjið vatn og Neskaffi í blandarann,
hyljið. Blandið vel og bætið við ísmolum
og púðursykri. Drekkið strax.
■ Frískandi Kaffidrykkur
Ef þú hefur áhyggjur af kílóumsem settust á þig yfir jólin en
ert ekki tilbúin/n að breyta matar-
æði þínu mikið koma hér nokkur
ráð til að draga úr notkun fitu við
matargerð.
■ Mældu það magn olíu sem þú
notar í stað þess að hella
henni bara á pönnuna. Þá er
auðveldara að minnka magn-
ið.
■ Notaðu pönnur sem maturinn
festist ekki við. Þá þarftu
ekki jafn mikla feiti.
■ Ef þú notar soð er ágætt að
kæla það og fjarlægja fituna
sem sest ofan á áður en soðið
er notað.
■ Í réttum með grænmeti og
kjöti er hægt að minnka kjöt
um þriðjung og bæta við
grænmeti í staðinn.
■ Notaðu mjólk til að þykkja
sósur, ekki rjóma.
Holl húsráð:
Dregið úr fituneyslu