Fréttablaðið - 16.01.2004, Page 41
41FÖSTUDAGUR 16. janúar 2004
MÖRK ÍSLANDS
Ólafur Stefánsson 9
Guðjón Valur Sigurðsson 6
Sigfús Sigurðsson 5
Snorri Steinn Guðjónsson 4
Einar Örn Jónsson 3
Patrekur Jóhannesson 3
Róbert Gunnarsson 2
Jaliesky Garcia 1
VARIN SKOT
Reynir Þór Reynisson 11
Guðmundur Hrafnkelsson 7
Intersport-deildin í körfuknattleik:
KR vann Njarðvík
KÖRFUBOLTI Þrír leikir fóru fram í
Intersport-deild karla í körfu-
knattleik í kvöld. KR lagði
Njarðvík, 94-89, í DHL-höllinni
og var þetta fyrsti sigur KR á
Njarðvík í átta leikjum. KR-ing-
ar voru komnir með 22 stiga for-
ystu, 88-66, þegar rúmar fjórar
mínútur voru til leiksloka en
voru næstum búnir að missa sig-
urinn úr höndunum.
Josh Murray átti stórleik í
liði KR, skoraði 44 stig og tók 18
fráköst, Trevor Diggs skoraði 14
stig og Ólafur Már Ægisson
skoraði 10 stig og gaf 6
stoðsendingar. Brandon
Woudstra var stigahæstur hjá
Njarðvík með 24 stig og gaf 9
stoðsendingar, Friðrik Stefáns-
son skoraði 20 stig og tók 11
fráköst, Páll Kristinsson skoraði
16 stig og tók 10 fráköst og
Brenton Birmingham skoraði 14
stig.
Haukar unnu góðan sigur á
Hamarsmönnum, 84-78, í Hvera-
gerði. Chris Sade var stigahæst-
ur hjá Hamri og skoraði 18 stig,
Faheem Nelson skoraði 16 stig
og Marvin Valdimarsson gerði
14 stig. Michael Manciel skoraði
31 stig fyrir Hauka og Sigurður
Einarsson skoraði 16 stig.
Keflvíkingar rúlluðu yfir ÍR-
inga, 111-79, í Keflavík. Derrick
Allen var stigahæstur hjá Kefla-
vík með 20 stig, Gunnar Einarsson
skoraði 18 stig, Nick Bradford
skoraði 14 stig og Fannar Ólafs-
son skoraði 14 stig. Eugene
Christopher var atkvæðamestur
ÍR-inga með 22 stig og Eiríkur
Önundarson skoraði 12 stig. ■
Íslenska handknattleikslandsliðið:
Góður sigur á Dönum
HANDBOLTI Íslenska landsliðið í
handknattleik fékk flugstart á
fjögurra leikja æfingamóti sem
fram fer í Danmörku og Svíþjóð.
Liðið spilaði sinn fyrsta leik í
gær gegn Dönum. Fyrri hálf-
leikur einkenndist af leiftrandi
sóknarleik beggja liða en lítið
var um góðan varnarleik. Þegar
flautað var til leikhlés höfðu
Danir eins marks forystu, 18-17.
Í síðari hálfleik small vörnin
saman hjá íslenska liðinu og
Reynir Þór Reynisson, sem
leysti Guðmund Hrafnkelsson
af hólmi í síðari hálfleiknum,
var í miklum ham á milli stang-
anna. Íslendingar náðu fyrir
vikið fljótlega fjögurra marka
forystu en mest náðu þeir átta
marka forystu. Danir klóruðu
örlítið í bakkann en Íslendingar
fóru með öruggan sigur af
hólmi, 33-28.
Sigfús Sigurðsson hristi af
sér meiðslin og skoraði fimm
mörk í fyrri hálfleik en lék ekk-
ert í þeim síðari þar sem hann
fékk rautt spjald í fyrri hálfleik
vegna þriggja brottvísanna.
Hann kenndi sér einskis meins í
bakinu og verður með í kvöld er
Ísland mætir Svíum. Sextán
leikmenn voru á leikskýrslu að
þessu sinni og því hvíldu tveir
leikmenn en það kom í hlut Dags
Sigurðssonar og Björgvins Páls
Gústavssonar. ■
Foreldrar
Stöndum saman
Styðjum börnin okkar í að
afþakka áfengi og önnur vímuefni