Fréttablaðið - 16.01.2004, Page 46
Hrósið 46 16. janúar 2004 FÖSTUDAGUR
Samkvæmt upplýsingum semHagstofa Íslands birtir á vef sín-
um hefur hlutfall Íslendinga skráð-
um í þjóðkirkjuna lækkað verulega
á undanförnum áratug. Árið 1993
voru um 92% landsmanna skráðir í
þjóðkirkjuna, en nú eru það einung-
is 86%. Mesta aukningin hefur ver-
ið hjá þeim sem tilheyra öðrum ótil-
greindum trúarbrögðum.
Ásta Kjeldahl Þórsdóttir á mann-
fjöldadeild Hagstofunnar segir að
sú aukning skýrist á auknum fjölda
innflytjenda sem tilgreini ekki
hvaða trúarbrögðum þeir lúti. Það
má þó einnig gera ráð fyrir að tísku-
sveiflur ráði einhverju um þetta og
sjálfsagt eru einhverjir utan trú-
félaga sem beina sjónum sínum að
þeim í neðra en lítið fer fyrir
safnaðarstarfi á þeim bænum.
Þá eru þeir líklega nokkrir sem
telja sig vera Jedi-riddara en þau
trúarbrögð eiga rætur sínar að
rekja til Stjörnustríðsmyndanna og
hafa notið vaxandi fylgis erlendis á
undanförnum árum.
Þeim sem telja sig utan allra trú-
félaga hefur fjölgað á síðasta ára-
tug og eru þeir nú eitt prósent þjóð-
arinnar og fjöldi skráðra trúfélaga
utan þjóðkirkju og fríkirkjusafnaða
hefur tæplega tvöfaldast, úr 11 í 21.
Flest þessara trúfélaga eru mjög fá-
menn með innan við eitt prósent af
landsmönnum, utan kaþólsku kirkj-
unnar en í henni eru 1,8% lands-
manna. ■
Trú
ÍSLENDINGUM
■ sem tilheyra ótilgreindum trúarbrögð-
um fer fjölgandi. Aukin fjöldi innflytjenda
er talinn megin skýringin á þessu en lík-
lega hafa tískustraumar og bíómenning
einnig sitt að segja.
... fær Jóhanna Kristjónsdóttir
fyrir að auka skilning Íslendinga
á íslam og menningarheimi
araba með námskeiðum sínum
og hópferðum.
Hræringar í trúmálum þjóðarinnar
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Howard Dean.
Garðar Garðarsson
hæstaréttarlögmaður.
David Seaman.
1
5 6
7 8
13 14
16 17
15
18
2 3
11
9
1210
4
í dag
Ljóskur í
kvikmyndum
Þjóðminjasafnið
– botnlausar
tafir og 100
millur framúr
Vaktstjórinn
nauðgaði
henni
Geðshrær-
ing í beinni
Þátturinn Idol Extra hefur gef-ið hörðustu aðdáendum Ídol
stjörnuleitar tækifæri á að fylgj-
ast með því sem gerist bak við
tjöldin hjá keppendunum. Þátt-
urinn verður í beinni útsendingu
í kvöld á meðan þjóðaratkvæða-
greiðslan fer fram þegar
stjörnuefnin þrjú, sem eftir eru,
hafa lokið sér af á sviðinu.
Heiðar Austmann, stjórnandi
þáttarins, ætlar að hafa auga með
keppendunum á meðan þeir bíða í
ofvæni eftir stóradómi áhorf-
enda, sem ráða úrslitum um val
ídolsins. Hann reiknar með
æsispennandi lokaþætti fyrir þá
sem tíma að sleppa Svínasúpunni
og skipta yfir á Popptíví. ■
Leitin að
gulldrengnum
Það þótti saga til næsta bæjarað safnplata með ítalska
söngvaranum Robertino skyldi
seljast í tæplega 7.000 eintökum
í fyrra. Robertino hefur ekki
borist mikið á síðan hann kom
fram sem undrabarn í söng á
sínum tíma. Robertino rekur
hestabúgarð og krá í Róm.
Tónlistarmaðurinn Hörður
Torfa hefur verið í góðu sam-
bandi við Robertino og lét hann
vita af útgáfu plötunnar hér á Ís-
landi í fyrra. Robertino hefur þó
ekki enn frétt af þessum góðu
viðtökum og hefur því ekki hug-
mynd um að hann er að slá í
gegn á Íslandi. Platan var ein sú
söluhæsta síðustu dagana fyrir
jól, seldist í 1.500 eintökum frá
21. desember til jóla og náði
gullplötusölu.
Óttar Felix Hauksson í Sonet gaf plötuna út og honum finnst
ómögulegt að Robertino skuli
ekki fá að njóta ávaxta hennar í
einhverju formi. „Ég hef aldrei
hitt hann en við verðum að láta
hann vita af þessu góða gengi.
Ætli maður verði ekki að skella
sér til Rómar á dögunum til þess
að afhenda honum gullplötu?“
spyr Óttar sjálfan sig og mun
líklega láta verða af þessu með
vorinu. ■
Pældu í því að maður er búinn að hlakka til í
marga mánuði að veðrið verði passlegt, kaupa
grillgræjur, eyða klukkutíma í að undirbúa allt
draslið, og hvað fær maður út úr því?
Viðbrennda lufsu sem gæti eins verið sótugt,
gamalt og seigt beikon með einhverju
hálfvitalegu jurtakryddi!
Lárétt:
1 ílát, 5 efni, 6 píla, 7 sólarguð, 8 hjúp, 9
loftferðalag, 10 tveir eins, 12 þræta, 13
stefna, 15 lofttegund mínus s, 16 stúlka,
18 fjöri.
Lóðrétt:
1 auðmenn, 2 fæða, 3 tveir eins, 4 öl-
gerðarmaður, 6 klár, 8 sunda, 11 ennþá,
14 veiðarfæri, 17 tangi.
Lausn:
Lárétt:1bali,5ull,6ör, 7ra,8áru,9
flug,10ee,12agg,13inn,15ga,16
snót,18tápi.
Lóðrétt: 1burgeisa,2ala,3ll,4brugg-
ari,6örugg,8ála,11enn,14nót,17tá.
YODA
Geimvitringurinn úr Stjörnustríði er andleg-
ur leiðtogi þeirra sem telja sig til Jedi-ridd-
ara en líklega eru nokkrir slíkir á Íslandi.
Rocky
ROBERTINO
Íslenskur útgefandi þessa fornfræga undra-
barns stefnir að því að fara til Rómar í vor
og afhenda honum gullplötu fyrir hörku-
góða sölu fyrir jólin.
Gull
ROBERTINO
■ kom skemmtilega á óvart í jólaplötu-
flóðinu og landaði gullplötu. Hann hefur
hins vegar ekki hugmynd um það enn.
Útgefandi hans ætlar að ráða bót á því í
vor og telur sig geta gengið að honum
vísum á krá í Róm.