Fréttablaðið - 16.01.2004, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
GUÐMUNDAR
STEINGRÍMSSONAR
Bush til Mars
R A F T Æ K J A V E R S L U N
HEKLUHÚSINU • LAUGAVEGI 172 • 105 REYKJAVÍK • S ÍMI 590 5090
199.0
00.-
með
stáli
að fr
aman
t li
f
Ein áhugaverðustu tíðindin í lið-inni viku voru fréttir þess efn-
is að Bandaríkjamenn ætli að kýla
á metnaðarfulla geimferðaáætlun
með auknum fjárveitingum, þar
sem planið er meðal annars að
setja upp miðstöð á tunglinu og
senda mannað geimskip til Mars.
Það eru líklega um þrír áratugir
þangað til að geimskipið verður
sent til Mars, en það er sama. Það
er gaman að þessu.
Í LJÓSI viðburða í alþjóðamálum
undanfarið vilja margir að Bush
fari sjálfur til Mars, sem fyrst, og
verði þar. Kannski er olía á Mars.
Og eins og einn frambjóðandi í for-
vali Demókrataflokksins benti á í
vikunni þá gæti vel verið að Bush
myndi finna á Mars það sem hann
hefur leitað að lengi í Írak en ekki
fundið, nefnilega gereyðingarvopn.
FERÐIN til Mars kostar auðvitað
einhverjar skrilljónir bandaríkja-
dala, en menn eru ekki að horfa í
aurinn, svosem, þegar svona metn-
aðarfull verkefni eru annars veg-
ar. Áður fyrr þegar farið var í
svona geimferðir fyrir mikið fé
voru einhverjir sem bentu á að
nær væri að gefa hungruðum
heimi mat og svoleiðis. Útrýma
AIDS í Afríku. Það myndi kosta
minna og auka almenna velsæld,
og kannski minnka líkur á hryðju-
verkum og annarri óáran í leiðinni.
Fyrst bæri að gera þetta (að taka
til í herberginu sínu) og svo gætu
menn skroppið út í geim (farið út
að leika).
EN MÖNNUM fannst sú hug-
mynd almennt ekki sniðug. Og sú
rökræða er eiginlega dauð nú orðið.
Rauða stjarnan kallar. Áður fyrr
voru jarðarbúar skíthræddir við
Marsbúana; að þeir myndu herja á
jörðina, grænir og ófrýnilegir.
Þetta hefur snúist við. Nú mega
Marsbúarnir vara sig. Bush er að
koma. Og kannski Rumsfeld líka.
SJÁLFUR hefði ég reyndar ekk-
ert á móti því að skreppa yfir nótt.
Það er alltaf gott að komast aðeins
burt frá öllum vandamálunum og
erfiðleikunum sem herja á mann í
daglega lífinu. Komast í smá frí.
Slappa af. Mig grunar að það sé
einmitt þess vegna – nákvæmlega
eins og sumir fara í heimsreisu
eða siglingu um karabíska – að
leiðtoga hins frjálsa heims langar
til Mars. Það gæti verið gott, og
jafnvel komið sér vel, að komast
burt af jörðinni um stundarsakir.
www. .is
Taktu þátt
í spjallinu á
...