Fréttablaðið - 18.01.2004, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 18.01.2004, Blaðsíða 8
8 18. janúar 2004 SUNNUDAGUR ÞETTA GRUNAÐI OKKUR LÍKA „Einmitt það. Ég er ekki í elít- unni. Satt best að segja hafði mig innst inni grunað þetta. Nú hefur hinn ógurlegi grunur verið staðfestur. Ég er ekki í elítunni.“ Eiður Guðnason í Lesbók Mbl. 17. janúar. ...OG DAPUR, JAFNVEL ÞUNGLYNDUR „Nei , það er ekki erfitt að vera skidsofren í þessu landslagi. Við vitum alveg að það er nóg til af peningum, það er bara spurning um forgangsröðun, ekki satt?“ Elísabet Brekkan um niðurskurð á Landspítala- háskólasjúkrahúsi í DV. 17. janúar. EKKERT RÉTTLÆTI „Líklega er þetta einn mesti harmleikur samtímans, dæmið um hvernig einstaklingar og þjóðir læra ekki af reynslunni. Þær sjá ekki það sem augað sér, heyra ekki það sem eyrað heyr- ir, kröfu um hlutlaust réttlæti.“ Guðbergur Bergsson um Ísrael og Palestínu í Fréttablaðinu 17. janúar. Orðrétt VÍSINDI Yfirvofandi loftslagsbreyt- ingar eru mun stærri ógn við íbúa jarðarinnar en hryðjuverk, segir aðalvísindaráðgjafi bresku ríkis- stjórnarinnar. Í viðtali við tímaritið Science sakar Sir David King Bandaríkja- menn um að hafa brugðist heims- byggðinni með því að neita að taka þátt í sameiginlegu átaki sem mið- ar að því að draga úr losun eitur- efna. Þó aðeins um 4% mannskyns búi í Bandaríkjunum ber landið ábyrgð á yfir 20% af heildar- útstreymi gróðurhúsalofttegunda í heiminum. Bandaríkin hafa neitað að stað- festa Kyoto-bókunina um tak- mörkun á losun gróðurhúsaloft- tegunda. George W. Bush Bandaríkjaforseti segist ekki vera tilbúinn að setja kvóta á iðnfyrir- tæki fyrr en gerðar hafa verið frekari rannsóknir. „Við getum aðeins unnið bug á þessum vanda ef við stöndum saman. Við viljum að Bandaríkin taki að sér forystuhlutverk í þessu máli,“ segir King. Hann varar við því að ef ekki verið brugðist við nú þegar eigi flóð, þurrkar, hung- ursneyð og sjúkdómar eftir að herja á milljónir manna um heim allan á næstu áratugum. ■ VÍSINDI Hlýnandi loftslag gæti orðið þess valdandi að milljónir dýra- og plöntutegunda dæju út á næstu áratugum, samkvæmt nýrri rannsókn sem fjallað er um í tímaritinu Nature. Vísindamennirnir sem standa á bak við rannsóknina segja að hugsanlegt sé að fjórðungur allra landdýra og plantna á jörð- inni verði útdauður fyrir árið 2050. Þeir benda á að eina leiðin til að koma í veg fyrir þessa ógn- vænlegu þróun sé að draga úr útblæstri gróðurhúsaloft- tegunda sem geti valdið óæski- legum loftslagsbreytingum. Vísindamennirnir tóku mið af spám Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar en rann- sóknin náði til 1.103 dýra- og plöntutegunda á sex svæðum í heiminum. Niðurstaðan var sú að allt að 37% þessara tegunda ættu ekki eftir að geta aðlagast breyttum aðstæðum eða fært sig um set og yrðu því útdauð innan fimmtíu ára ef svartsýnustu spár rættust. Af þessu var dreg- in sú ályktun að á að minnsta kosti ein milljón tegunda væri í útrýmingarhættu um heim allan. Vísindamennirnir segja að með því að draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda í heiminum verði hægt að bjarga fjölda dýra og plantna. Þeir ítreka þó að engin leið sé að koma í veg fyrir að einhverjar tegundir deyi út og tala í því sambandi um fimmtán prósent lífríkisins. Klaus Töpfer, yfirmaður Um- hverfisstofnunar Sameinuðu þjóð- anna, bendir á að þessi þróun muni einnig hafa umtalsverð áhrif á mannfólkið. „Ef ein millj- ón tegunda deyr út þá er það ekki bara plöntu- og dýraríkið sem mun láta á sjá,“ segir Töpfer. „Stór hluti mannkyns mun þjást, einkum í þróunarlöndunum þar sem maðurinn er háður náttúr- unni um nauðsynjar á borð við mat, húsaskjól og lyf.“ ■ STÁTINN STEGGUR Það er einkum fuglar sem eiga möguleika á því að færa sig um set þegar skilyrði verða þeim óhagstæð í þeirra upprunalegu heimkynnum. Loftslagsbreytingar hér á landi: Stórbætt lífsskilyrði VÍSINDI Snorri Baldursson, líffræð- ingur og aðstoðarforstjóri Nátt- úrufræðistofnunar, segir að reiknað sé með því að meðalhiti vetra á Íslandi muni hækka um tvær til þrjár gráður á næstu fimmtíu árum en sumarhitinn heldur minna. „Þetta mun stór- bæta skilyrði hér á landi fyrir margar lífverutegundir. Það eru þó helst þau kvikindi sem geta flogið hingað sjálf sem eiga mögu- leika á að setjast hér að,“ segir Snorri. Hann bendir á að aðrar tegundir geti borist hingað óvart með mönnum eða vörum. Að- spurður segir Snorri að ekki hafi verið rætt um það af neinni alvöru að flytja hingað tegundir sem ekki geti lengur lifað í sínum uppruna- legu heimkynnum. ■ Milljónir dýra og plant- na í útrýmingarhættu Hópur vísindamanna víðs vegar að úr heiminum hefur komist að þeirri niðurstöðu að allt að fjórð- ungur allra dýra- og plöntutegunda á jörðinni muni deyja út á næstu fimmtíu árum vegna hlýn- andi loftslags. Vísindamennirnir krefjast þess að dregið verði úr losun gróðurhúsalofttegunda. SAMSPIL Í BLÓMA Dýra- og plöntutegundir jarðar eiga misauðvelt með að aðlagast breyttum aðstæðum eða flytja sig um set. Bandaríkin neita að draga úr losun gróðurhúsaloftegunda: Loftslagsbreytingar mesta ógn heimsins SEMENTSVERKSMIÐJAN Íslendingar eru aðilar að Kyoto-bókuninni um takmörkun á losun gróðurhúsalofttegunda.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.