Fréttablaðið - 18.01.2004, Qupperneq 23
SUNNUDAGUR 18. janúar 2004
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Glæsilegar páska- og vorfer›ir
Benidorm
51.540 kr. stgr.
Innifalið: Flug, gisting á íbúðahótelinu
Halley, ferðir til og frá flugvelli erlendis,
íslensk fararstjórn og flugvallarskattar.
Ef 2 ferðast saman: 70.930 kr. stgr.
Portúgal
53.567 kr. stgr.
Innifalið: Flug, gisting á íbúðahótelinu
Sol Doiro, ferðir til og frá flugvelli
erlendis, íslensk fararstjórn og
flugvallarskattar.
Ef 2 ferðast saman: 68.855 kr. stgr.
Kanarí
64.915 kr. stgr.
Innifalið: Flug, gisting á íbúðahótelinu
Aloe, ferðir til og frá flugvelli erlendis,
íslensk fararstjórn
og flugvallarskattar.
Ef 2 ferðast saman: 79.130 kr. stgr.
Mallorca
49.942 kr. strg.
Innifalið: Flug, gisting á íbúðahótelinu
Pil Lari Playa, ferðir til og frá flugvelli
erlendis, íslensk fararstjórn
og flugvallarskattar.
Ef 2 ferðast saman: 63.330 kr. stgr.
Dublin
44.280 kr. stgr.
Innifalið: Flug, gisting á Ormond Quay
í 4 nætur, morgunverður, íslensk
fararstjórn og flugvallarskattar.
Miðað er við 2 saman í herbergi.
* Verð m.v. að tveir fullorðnir og tvö börn, 2ja - 11 ára, ferðist saman.
*
* *
*
3. apríl - 17. apríl
4. - 16. apríl
2. - 15. apríl
8. - 12. apríl 3. - 14. apríl
Allt verð miðast við að bókað sé á netinu,
ef bókað í síma eða á skrifstofu bætist við 2.000 kr. þjónustugjald á mann.
Pá
sk
ar-
vor
Glæsilegar vorfer›ir:
Mallorca - ver› frá 56.530 kr. - gisting í stúdíói á Pil Lari Playa í 24 nætur.
Benidorm - ver› frá 69.930 kr. - gisting í íbú› á Halley í 24 nætur.
Krít - ver› frá 66.950 kr. - gisting í íbú› á Skala í 29 nætur.
Innifalið: Flug, gisting, flugvallarskattar og 20.000 kr afsláttur fyrir eldri borgara.
Miðað er við að tveir ferðist saman.
VERÐ
LÆKK
UN
Uppáhaldsborg
Hilmars Arnar:
Háður forn-
bókabúðum
í London
Uppáhaldsborg Hilmars Arnar
Hilmarssonar, tónlistarmanns og
allsherjargoða, er London. „Það er
allt af öllu þar. Svo er ég háður
fornbókaverslununum sem eru
þar,“ segir Hilmar Örn.
„Síðan eru þarna indverskir
veitingastaðir sem eru alveg æð-
islegir. Þó er ég í svolitlu sjokki
því það er búið að loka uppáhalds-
veitingastaðnum mínum og líka
einni af uppáhaldsbókabúðunum
mínum. Það er allt í heiminum
hverfult þannig að það getur ver-
ið að London sé á leiðinni út.“
Ef Hilmar myndi velja aðra
borg en London yrði það líklega
París, hinum megin við Erma-
sundið. Segist hann eiga sterkar
taugar til borgarinnar. London
hefur samt vinninginn enn sem
komið er, enda bjó hann þar á
tímabili og fór þangað þrisvar til
fjórum sinnum á ári. „Ég býst við
að fara þangað aftur mjög fljót-
lega. Ég var þar síðast í október
þannig að þessum ferðum er far-
ið að fjölga aft-
ur,“ segir hann
að lokum. ■
Farseðill gildir í eitt ár!
Verð á mann frá 19.500 kr.
All
taf
ód‡rast á netinu
Næturvörður í sænska Survivor:
Yfirvann fælnina við skorkvikindi
HILMAR ÖRN
Er hrifinn af ind-
versku veitinga-
stöðunum í
London.
LONDON
Í mestu uppáhaldi hjá Hilmari Erni.
Marga Íslendinga hefur ef-laust dreymt um að upplifa
ævintýri á borð við þau sem þátt-
takendur í Survivor-sjónvarps-
þáttunum ganga í gegnum. Edda
Lúvísa Blöndal, nemi í sjúkra-
þjálfun, hefur kynnst því hvernig
gerð slíkra þátta fer fram en hún
hefur tvisvar unnið við sænsku
gerðina af Survivor í Malasíu.
„Svíar voru fyrstir til að
kaupa réttinn á bandarísku hug-
myndinni að Survivor árið 1997
og kallast sænska útgáfan
Expedition Robinson. Systir mín
var að vinna við sjónvarpsþátt-
inn og útvegaði mér vinnu sem
aðstoðarmanneskja á aðaleyj-
unni sem tökuliðið bjó. Árið
2000 bauðst mér svo að fara sem
næturvörður í þáttum sem ein-
nig voru teknir í Malasíu. Hlut-
verk mitt var að vera til taks ef
eitthvað gerðist á nóttunni, kalla
á aðstoð ef eitthvað kæmi upp á
og jafnvel veita fyrstu hjálp.
Þetta gekk vel og var mjög
skemmtilegt en fyrsta vikan var
hrikaleg. Ég hafði ímyndað mér
að við yrðum tvö og tvö á vakt
en það kom í ljós að ég var ein á
vaktinni frá sex á kvöldin til
átta á morgnana. Mér var hent
út í djúpu laugina þegar kom að
því að yfirvinna fælni mína við
skorkvikindi.“ ■
EDDA LÚVÍSA BLÖNDAL
Var ein á vakt frá sex á kvöldin fram til átta
á morgnana og þurfti að yfirvinna
skordýrafælni.