Fréttablaðið - 24.01.2004, Síða 4
4 24. janúar 2004 LAUGARDAGUR
Hvernig mun ganga hjá Íslending-
um á EM í handknattleik?
Spurning dagsins í dag:
Hver kemur best út úr dómi Hæsta-
réttar í máli Leikfélags Akureyrar?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
44,9%
18,6%
Verðum í 5.-8. sæti
31,6%Komumst ekki í milliriðil
Verðum í 2.-4. sæti
4,9%Verðum meistarar
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
Deilt um ágæti brjóstakrabbameinsskimunar:
Sjúkdómsvæðing sem þvingar konur
HEILBRIGÐISMÁL „Nýjar rannsóknir
draga ávinning af brjóstakrabba-
meinsskimun í efa. Konur fá
hvorki upplýsingar um kosti slíkr-
ar skoðunar né um hugsanlegan
skaða sem af henni gæti hlotist og
geta því ekki veitt upplýst sam-
þykki fyrir meðferð. Skimunin
hefur leitt til sjúkdómsvæðingar
því tilfellum hefur fjölgað. Rann-
sóknir sýna að fyrir hverja eina
konu sem er bjargað frá því að
deyja úr brjóstakrabbameini
verða fimm heilbrigðar konur
sjúklingar á krabbameinslyfjum,“
sagði Dr. Peter C. Götzsche, yfir-
læknir á Rigshospitalet í Kaup-
mannahöfn, í erindi á Læknadög-
um á Nordica hóteli í gær. Hann
gagnrýndi bréfasendingar Leitar-
stöðvar Krabbameinsfélagsins til
kvenna eldri en 40 ára þar sem
þær voru hvattar til þess að fara í
skimun.
„Það er verið að þrýsta á og
þvinga konur með tilboðum sem í
augum þeirra eru í raun ekkert
annað en opinber skylda. Konur
eiga sjálfar að ráða hvort þær
fara eða ekki. Allt of margar
missa brjóst að óþörfu,“ segir
Götzsche.
Baldur F. Sigfússon, yfirlæknir
á Leitarstöð Krabbameinsfélags-
ins, benti á rannsóknir sem sýndu
að brjóstakrabbameinsskimun
hefði dregið verulega úr dauðs-
föllum kvenna á aldrinum 50-69
ára, um 25%.
„Það er skoðun heilbrigðisyfir-
valda víða um heim að æskilegt sé
fyrir konur í þessum aldurshópi
að fara í skimun. Það er vissulega
mælt með því,“ sagði Baldur. ■
Frækileg björgun í
brimi og ólagi
Tveimur skipverjum Sigurvins GK var bjargað eftir að bátnum hvolfdi í innsiglingunni í
Grindavíkurhöfn í gær. Annar mannanna var rúmar tuttugu mínútur í sjónum.
BJÖRGUN „Ég tók allt í einu eftir
bát sem var að koma inn á milli
brimskaflana og segi við konuna,
þessi fær brot á sig. Með það
sama fór hann á fulla ferð fram
fyrir sig, niður með stefnið og upp
með rassinn og
hvolfdist,“ segir
Sigurður Garðar
Steinþórsson, sem
varð vitni að sjó-
slysi þegar Sigur-
vini GK-61, með
tveimur mönnum
innanborðs, hvolfdi við innsigl-
inguna í Grindavíkurhöfn, rétt
fyrir hádegi í gær.
Sigurður segir þau strax hafa
hringt í Neyðarlínuna og hafnar-
vogina. Hann sagði við þann sem
svaraði hjá Neyðarlínunni að þeir
þyrftu að setja allan viðbúnað af
stað og það strax, líklega væru
þrír menn um borð. Eftir að hann
hafði látið þá hjá höfninni vita
rauk hann af stað eins nálægt
slysstað og hann komst. Á leiðinni
mætti hann lögreglunni og gerði
viðvart. „Ég keyrði þarna út eftir
og hljóp í átt að mönnunum, ætl-
aði að reyna að gera eitthvað en
gat ekkert gert. Ég sá annan á
floti og hinn var enn um borð í
bátnum, hann stökk af bátnum og
í gúmmíbátinn en fljótlega eftir
það hvolfdi gúmmíbátnum líka og
hann lenti líka í sjónum.“
„Við fórum strax út með báða
björgunarbátana, Odd Gíslason og
slöngubátinn Hjalta Frey. Þegar
við komum út fyrir garðana sáum
við mann á floti sem hékk í björg-
unarbát í miklu brimi og ólagi,“
segir Agnar Smári Agnarsson,
skipstjóri á björgunarbátnum
Oddi Gíslasyni.
Agnar segir björgunarmennina
á slöngubátnum hafa þurft að
sæta lagi til að ná manninum úr
sjónum. Fyrst hafi þeir náð hon-
um á síðu bátsins en þurft að sigla
með hann þannig í lygnari sjó til
að ná honum um borð. Á meðan
farið var með hann í sjúkrabílinn,
um fimm mínútum eftir að fyrri
maðurinn fannst, fengu skipverj-
ar á Oddi Gíslasyni tilkynningu
frá lóðsbátnum um að björgunar-
menn hefðu séð annan mann á
floti en kæmust ekki að honum
sökum brims. „Við reyndum að
sigla eins nálægt honum og hægt
var en komumst ekki alla leið
vegna grynninga. Þá kölluðum við
í slöngubátinn, sem fór inn í brim-
ið og sótti manninn.“
Agnar segir mennina hafa ver-
ið ansi kalda og þrekaða en gletti-
lega vel á sig komna miðað við
þann tíma sem þeir höfðu verið í
sjónum. Hann segir annan hafa
verið í sjónum í um tíu mínútur en
hinn sennilega rúmlega tuttugu
mínútur. Þeir voru einungis í
björgunarvestum.
Sigurður Garðar, sem sjálfur er
sjómaður, segist hafa verið á sjó
með öðrum mannanna fyrir um
tveimur árum. „Ég hugsaði bara um
að komast niður í fjöruna og reyna
að ná til þeirra, gera eitthvað.“
hrs@frettabladid.is
Höfuðborgarsvæðið:
Olís hækkar
bensínverð
NEYTENDUR Olís hefur hækkað
bensínverð á 95 oktana bensíni í
sjálfsafgreiðslu á olíustöðvum
sínum á höfuðborgarsvæðinu.
Verðið hækkaði í gær og nemur
þremur krónum og tuttugu aurum
á lítrann. Bensínlítrinn kostar því
96,90 krónur. Þá hækkaði Olís
dísilverð og kostar lítrinn í sjálfs-
afgreiðslu 41,80 krónur.
Hvorki Esso né Skeljungur
hækkuðu bensínverðið á þjónustu-
stöðvum sínum. Bensínlítrinn
kostar því áfram 93,7 krónur.
Óbreytt verð er á sjálfsafgreiðslu-
stöðvum. Ódýrasti bensínlítrinn er
sem fyrr hjá Orkunni. ■
Uppgjör Nýherja:
Hagnaður
minnkar
VIÐSKIPTI Upplýsingatæknifyrir-
tækið Nýherji skilaði 70 milljóna
króna hagnaði á árinu 2003. Þetta
er verri afkoma en árið á undan
en þá var hagnaður 107 milljónir.
Þetta kemur fram í tilkynningu
félagsins til Kauphallar Íslands.
Þar kemur einnig fram að eft-
irspurn eftir þjónustu og vörum
tengdum upplýsingatækni hafi
verið minni í fyrra en vonir hafi
staðið til en bundnar séu vonir við
að upplýsingatæknimarkaðurinn
„verði líflegri“ á síðari hluta
þessa árs. ■
Rafmagnslaust í miðborginni:
Óttuðust að missa af landsleik
■
Ég hugsaði
bara að komast
niður í fjöruna
og reyna að ná
til þeirra, gera
eitthvað.
SIGURVIN GK 61
Mennirnir voru kaldir og þrekaðir eftir að hafa aðeins verið í björgunarvestum í sjónum.
SIGURÐUR GARÐAR STEINÞÓRSSON
Sigurður horfði á bátinn koma á milli
brimskaflanna og sá þegar honum hvolfdi.
BENSÍNVERÐ Á SJÁLFS-
AFGREIÐSLUSTÖÐUM
Bensín Dísilolía
Atlantsolía Uppselt 35,00
Esso Express 92,50 34,90
Orkan 92,40 34,80
ÓB 92,50 34,90
Esso 93,70 35,90
Olís 96,90 41,80
Shell 93,70 35,90
BILUN Rafmagnslaust varð í mið-
borg Reykjavíkur í fyrrakvöld í
rúmar 40 mínútur. Bilun varð í há-
spennustreng á horni Bergþóru-
götu og Vitastígs, sem olli því að
fimm dreifistöðvar duttu út frá
klukkan 19.55 til 20.37. Rafmagns-
laust varð á Grettisgötu, Vitastíg,
Lindargötu og hluta af Laugavegi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Orkuveitunni var mikið hringt og
hafði fólk mestar áhyggjur af því
að missa af seinni hálfleik í lands-
leik Íslands og Slóveníu í hand-
knattleik sem sýndur var í beinni
útsendingu.
Benedikt Einarsson hjá Orku-
veitunni segir að vegna aukinna
framfara í tæknibúnaði hafi verið
mögulegt að koma rafmagninu á
aftur á skömmum tíma. Að öðrum
kosti hefði fólk þurft að bíða í mar-
gar klukkustundir á meðan viðgerð
færi fram. ■
RAFMAGNSLAUST Í MIÐBÆNUM
Starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur unnu við lagfæringar á háspennustreng í gær.
DR. PETER C. GÖTZSCHE
Yfirlæknirinn á Rigshospitalet í Kaup-
mannahöfn gagnrýndi bréfasendingar
Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins sem
hvöttu konur eldri en 40 ára til þess að
fara í skimun, sagði verið að þvinga þær.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA