Fréttablaðið - 24.01.2004, Blaðsíða 24
Ruinart-vínþjónakeppnin varfyrst haldin árið 1979 í tilefni
af 250 ára afmæli Ruinart-kampa-
vínsframleiðandans en Ruinart er
elsta kampavínshúsið, stofnað
árið 1729. Markmiðið með keppn-
inni er að auka þekkingu vínþjóna
og fá fram í sviðsljósið bestu vín-
þjóna Evrópu í sameiginlega
keppni. Yfir 10 þúsund vínþjónar
í 30 löndum hafa tekið þátt í
keppninni frá upphafi en hún er
haldin annað hvert ár í hverju
landi fyrir sig og sigurvegari
hvers lands fer síðan í lokakeppn-
ina í Frakklandi. Þetta er í fjórða
sinn sem keppnin er haldin hér á
landi og hafa sigurvegarar
keppninnar hér heima alltaf stað-
ið sig mjög vel í lokakeppninni í
Frakklandi. Keppt verður í
blindsmökkun, umhellingu á vín-
um, samsetningu á matseðlum og
vínlistum og fleiru sem góður
vínþjónn þarf að kunna skil á.
Keppnin verður bæði skrifleg og
verkleg og komast 3 vínþjónar
áfram í sjálf úrslitin, sem fara
fram seinni partinn á laugardag. Í
úrslitunum geta ýmsar óvæntar
þrautir hugsanlega beðið kepp-
enda. Fulltrúi Ruinart, Michéle
Chantome, verður viðstödd
keppnina. ■
24. janúar 20042
Austurbakki leggur áherslu á
samansetningu matar og vína og þá
sérstaklega með brúðartertuna og
önnur sætindi í huga. Boðið verður
upp á smakk af sérvöldum vínum
fyrir árshátíðir, brúðkaup og móttök-
ur ásamt vel völdu úrvali af Petit
Fours og öðru góðgæti frá Sandholt
bakaríi ásamt einhverju óvæntu en
kaka sem sérstaklega var búin til
með vín í huga var söluhæsta kaka
bakarísins í fyrra.
Allied Domecq mun kynna
ný og spennandi vín sem eru um
þessar mundir komin í reynslusölu.
Má þar nefna vín frá Sikiley, Spáni,
Frakklandi, Chile, Argentínu, Ítalíu og
Bandaríkjunum. Undirstrikar þetta
hversu mikil sókn er hjá Allied
Domecq í heimi léttvínanna. Flestir
ættu að finna eitthvað við sitt hæfi
þar sem úrvalið er mikið og vínin
sem kynnt verða eru á verðbilinu
950-1.790 kr. í Vínbúðum.
Bourgogne var stofnað haust-
ið 2001 og einbeitir sér að innflutn-
ingi á gæðavíni frá Frakklandi, aðal-
lega frá „vínbændum“ frekar en stór-
um fyrirtækjum. Áherslan er á að
geta tryggt uppruna vínsins og hafa
viðamikla þekkingu á því hvernig vín-
gerðin fer fram. 13 vín eru í boði í
dag hjá fyrirtækinu og má nefna vín-
in frá D’Allaines og Pujol.
Eðalvín er þrátt fyrir ungan aldur
orðið eitt af fimm stærstu vínfyrirtækj-
um landsins. Fyrirtækið kynnir eðalvín
frá Casa Lapostolle, besta framleið-
anda Chile 2003, Wolf Blass, besta
framleiðanda Ástralíu og heims 2002,
Trivento, sem er mest selda vínið frá
Argentínu á Íslandi, og Gonzalez
Byass, stærsta vínframleiðanda Spán-
ar. Ný umboð eru Rust en Vrede frá
Suður-Afríku og Otard Cognac.
Elgur mun kynna vín frá 20 fram-
leiðendum. Flest eru nýlega komin í
sölu í Vínbúðum en einnig verða
kynnt vín sem þegar hafa fest sig í
sessi. Má nefna vín frá hinum þekkta
ástralska vínframleiðanda De Bortoli
auk hvítvína frá Schmitt Söhne í
Mosel. Helstu nýjungar eru frá
franska vínrisanum Cellier des Daup-
hins, Finca Santa Maria í Argentínu,
Centíare og Montalto á Sikiley og
Campagnola á Norður-Ítalíu.
Globus verður með góðan gest,
Stéphane Oudar frá Bouchard Ainé &
Fils. Einnig verða kynnt vín frá E.
Guigal í Rhone. Spænsku vínin frá El
Coto og Montecillo hafa verið gífur-
lega vinsæl á Íslandi og skoðað verð-
ur hvað er að gerast í spænskri vín-
gerð. Frá Nýja heiminum verða kynnt
Montes-vínin frá Chile og Gallo frá
Bandaríkjunum auk vína víngerðar-
manns ársins 2003 í heiminum, Ástr-
alans Peters Lehmann.
Rolf Johansen &
Company kemur eingöngu til
með að vera með ítölsk vín á sýning-
unni. Fyrst má telja vín frá Planeta á
Sikiley og verður fulltrúi víngerðar-
innar viðstaddur á sýningunni til
þess að kynna vínin. Einnig verða
kynnt vín frá fyrirtækjunum Pasqua,
Frescobaldi, Fonterutoli, Pieropan,
Allgrini, Morgante og Poliziano.
Vin.is munu kynna úrval portvína
frá gæðaframleiðendunum Croft,
Ferreira, Hunt’s, Noval og Sandeman.
Mismunandi tegundum portvína
verða gerð sérstök skil og gestir fá
tækifæri til að smakka allt frá ruby
portvíni til colheita 1981. Samspil
portvíns, gorgonzola, þurrkaðra ávax-
ta og súkkulaðis verður kynnt ítar-
lega. Fjölbreytt skipulögð dagskrá
verður báða sýningardagana.
Ölgerðin Egill Skalla-
grímsson kynnir frönsku vínin
Sirius ásamt Les Corioles frá Maison
Sichel-fyrirtækinu í Bordeaux. Boland
Kelder frá Suður-Afríku er margverð-
launað vín sem er nú loks fáanlegt á
Íslandi. Frá Beaucaire-svæðinu í
Languedoc-héraðinu í Suður-Frakk-
landi koma OC Cuvée 178 vínin. Ein-
föld og þægileg vín á góðu verði.
Einnig verða kynnt spænsku vínin
Marques del Puerto.
Vín 2004
Sýnendur á
Sævar Már Sveinsson, vín-þjónn á Hótel Holti, hefur
verið valinn vínþjónn ársins í
síðustu tvö skipti en sá titill er
veittur þeim vínþjóni sem fær
flest stig á hverju ári úr þeim
keppnum sem fara fram. Sævar
er að taka þátt í Ruinart í þriðja
sinn en hann varð í öðru sæti í
fyrra þegar Stefán Guðjónsson
bar sigur úr býtum. „Þetta er
erfið keppni sem er sæmbærileg
við þær sem fram fara erlendis
enda er keppt eftir alþjóðlegum
stöðlum. Þetta er keppni sem
haldin er með sama sniði víðs
vegar um heim og fulltrúar
Ruinart koma til hvers lands að
fylgjast með því að allt fari fram
eftir kúnstarinnar reglum. Úr-
slitakeppnin í Reims í Frakk-
landi er svona óopinber Evrópu-
keppni, hefur um margt svipaða
stöðu og Bocuse d’ Or-keppnin í
matreiðslugeiranum. Þetta er
kjörin leið fyrir unga áhuga-
menn um vín, hvort sem er fag-
menn eða leikmenn, að læra um
allt það fjölbreytta sem snýr að
vínum. Vín er ekki bara til að
drekka heldur er þetta vinsælt
áhugamál milljóna manna og
auðvitað atvinna margra. Hér á
landi hefur víngeirinn stækkað
mjög á undanförnum árum með
auknum vinsældum léttvína og
áhugi almennings er gríðarleg-
ur. Fagmennska hefur einnig
aukist mikið og það eru alltaf
betri og betri vínþjónar að koma
fram. Það er gaman að sjá alla
þá ungu vínþjóna og nema sem
taka þátt í Ruinart-keppninni og
ég vona að gestir á sýningunni
skemmti sér vel við að fylgjast
með keppninni“, segir Sævar en
auk hans eru fimm keppendur,
þau Bjarnheiður Hauksdóttir frá
Maru, Lúðvík Leó Lúðvíksson og
Björgvin Viktor Sigurðsson úr
Perlunni og þau Atli Már Rafns-
son og Erla Júlía Jónsdóttir af
Hótel Holti. ■
SÆVAR MÁR SVEINSSON
Tekur við viðurkenningu fyrir að hafa verið valinn vínþjónn ársins úr hendi Sigurðar B. Bjarkasonar, forseta Vínþjónasamtakanna.
Vín 2004
Reynið að skrúfa upptakaranumaðeins á ská ofan í tappann, ekki
beint ofan í, því ef tappinn er þurr er
minni möguleiki á að hann brotni ef
upptakarinn fer á ská í gegnum
hann. Mikið er
af vondum
upptökurum á
markaðnum,
jafnvel dýrum.
Best er að
nota upptakara
sem eru með
reglulega
gormlögun en eru ekki steyptir með
kjarna í miðjunni eins og algengt er.
Þetta sjáið þið með því að horfa í
gegnum endann á gorminum; ef
sést bein leið í gegn er gormurinn
réttur en ef ekki sést í gegn er hann
líklega með kjarna og kemur til með
að þrýsta tappanum meira en góðu
hófi gegnir til hliðanna. Þetta veldur
því að tappinn stoppar í flöskustútn-
um og brotnar auðveldlega.
Verið óhrædd að smakka nokkrartegundir af vínum og finnið bestu
samsetninguna. Gott er að vera með
nokkur glös og skilja smálögg eftir í
hverju glasi og bera saman. Þar hef-
ur nefið mest að segja, það segir
mun meira um vínin í samanburði
að lykta af þeim frekar en að smakka
þau í belg og biðu. Ef þið eruð nokk-
ur saman að borða, hvort sem er
heima eða á veitingastað, fáið ykkur
nokkrar ólíkar tegundir. Það er mikill
misskilningur að blöndun ólíkra teg-
unda af léttvíni ein og sér valdi
óþægindum daginn eftir, yfirleitt er
það nú magnið sem ræður mestu
þar um. Þar sem víðar gildir hið
fornkveðna að hóflega drukkið vín
gleður mannsins hjarta.
Trophée Ruinart
Vínráð
Ruinart keppni vínþjóna kl. 14.00 á laugardag:
Vínþjónn ársins
aldrei unnið keppnina