Fréttablaðið - 24.01.2004, Side 19
LAUGARDAGUR 24. janúar 2004 19
Þorrinn er runninn upp enn einaferðina. Og enn eina ferðina
eru súrmetisætur spurðar hvern-
ig í ósköpunum þær geti nú borð-
að þetta og alltaf eru svörin á
sömu lund, þetta er gott. Og veit-
inga- og kaupmenn eru spurðir
hvort unga fólkið borði þetta, og
eins og í fyrra og árið þar á undan
segja þeir jájá, unga fólkið hefur
gaman af svona hefðum. En hvað
er að finna á góðum þorrabakka?
Jú við þekkjum nöfnin; sviðasulta,
lundabaggar, lifrarpylsa, hákarl,
blóðmör, harðfiskur, hvalrengi,
hangikjöt, bringukollar, hrúts-
pungar og jafnvel magáll.
Blóð, ristill, eistu, andlit
En hvað er þetta? Hvaðan
kemur þetta? Þorrinn er runninn
undan rifjum blessaðrar sauð-
kindarinnar sem er sögð hafa
haldið lífi í gjörvallri þjóðinni
öldum saman. Þá var það sem við
köllum þorramat í dag í flest mál
en nú er hann snæddur í nokkrar
vikur á ári. Lifrarpylsa og blóð-
mör eru reyndar á sumum borð-
um allan ársins hring enda víða
til í frystikistum frá sláturtíð
haustsins. Í lifrarpylsu er hökk-
uð lifur, rúgmjöl og mör og
stundum er nýrum blandað sam-
an við. Blóðmör samanstendur
hinsvegar af mör, rúgmjöli og
blóði. Allt auðvitað fyrirtakshrá-
efni. Og sama má segja um það
sem notað er í lundabagga, þeir
eru pylsa úr ristli sem í er troðið
lundum og/eða hjörtum kindar-
innar. Lundabaggarnir eru súrir
eftir legu í mysu líkt og blóðmör-
inn og lifrarpylsan. Sama má
segja um bringukollana, þeir eru
súrir, en sá ágæti réttur er ein-
faldlega bringustykki af kind-
inni. Um hrútspunga þarf varla
að fara mörgum orðum og sviða-
sulta er kjötið af andlitsbeinum
dýrsins. Magáll er svo reykt
stykki sem unnið er úr kviðvöðv-
um kinda.
Flestir eiga nú ísskápa
Meðlæti af ýmsu tagi er borið
fram með þorramat, flatbrauð,
rúgbrauð og soðið brauð, síld,
rófustappa og ítalskt salat. Þessu
er svo skolað niður með bjór eða
pilsner og brennvínssnafs þykir
ómissandi með. Til eru þeir sem
verða eins og folar í látum þegar
þorrinn rennur upp og standa í
biðröðum á helstu útsölustöðum
til að ná sér í góðgætið. Þeir allra
hörðustu súrsa reyndar sjálfir og
líta ekki við því sem boðið er upp
á í verslunum og á veitingastöð-
um. Að sama skapi er fjöldi fólks
sem lítur ekki við kræsingunum
og segir að mat skuli borða nýjan
enda ísskápar til á hverju heimili
sem ekki var í den. Og þeim sem
ekki líst á herlegheitin má benda
á að allt má borða með góðri
tómatsósu. Ekki er almennilegt
þorrablót nema sungið sé og er
þá sjálfur Þorraþræll Kristjáns
Jónssonar fjallaskálds jafnan
efstur á blaði. Fyrsta erindið
geta flestir sungið blaðlaust en
tvö hin síðari kunna aðeins hörð-
ustu söngmenn utan bókar og
birtist bálkurinn því hér.
bjorn@frettabladid.is
pnar upp
verða 80 bílar á sérstöku tilboðsverði. Einnig mikið úrval af notuðum
vélsleðum. Sölumenn okkar eru í hátíðarskapi, nýttu þér það. Komdu í
fjörið, njóttu gæðanna og skoðaðu nýjungarnar. Komdu á
Nýbýlaveginn um helgina, - það verður bara skemmtilegt. Boðið er
upp á glæsilegar veitingar alla helgina. Opið laugardag kl. 12-16 og
sunnudag kl. 13-16. www.toyota.is
Á Þorranum svigna veisluborðin undan súrum innmat og viðeigandi meðlæti. Réttirnir heita skrítnum nöfnum og ekki er öllum ljóst
hvaðan kræsingarnar koma.
Aðeins meiri lundabagga, takk
ÞORRAMATUR
Óneitanlega girnilegt, ekki satt? Sumir borða sig sadda af súrmeti á meðan öðrum nægir að smakka.
*
RX 300
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
23
39
4
0
1/
20
04
Nú er frost á Fróni
frýs í æðum blóð
kveður kuldaljóð
Kári í jötunmóð.
Yfir laxalóni
liggur klakaþil,
hlær við hríðarbil
hamragil.
Mararbára blá
brotnar þung og há
unnarsteinum á
yggld og grett á brá.
Yfir aflatjóni
æðrast skipstjórinn
harmar hlutinn sinn
hásetinn.
Horfir á heyjaforðann
hryggur búandinn:
„Minnkar stabbinn minn
magnast harðindin
Nú er hann enn á norðan
næðir kuldaél
yfir móa og mel
myrkt sem hel.“
Bóndans býli á
björtum þeytir snjá
hjúin döpur hjá
honum sitja þá.
Hvítleit hringaskorðan
huggar manninn trautt
brátt er búrið autt
búið snautt.
Þögulll Þorri heyrir
þetta harmakvein
en gefur grið ein nein
glíkur hörðum stein.
Engri skepnu eirir
alla fjær og nær
kuldaklónum slær
og kalt við hlær:
„Bóndi minn þitt bú
betur stunda þú
hugarhrelling sú
er hart þér þjakar nú
þá mun hverfa en fleir
höpp þér falla í skaut
Senn er sigruð þraut
ég svíf á braut.“
ÞORRAÞRÆLL
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R