Fréttablaðið - 24.01.2004, Page 41
37LAUGARDAGUR 24. janúar 2004
kringlunni s.588 0079
Kringlunni
Fallegur og vandaður fatnaður fyrir herra og dömur
allt að 60% afsláttur
Vorum að taka upp nýjar vörur - vor 2004
ÚTSALA
opið
sun 13-17
ZORAN LUBEJ
Skoraði níu mörk úr tíu skotum gegn Tékkum.
Slóvenar unnu Tékka
Íslendingar og Tékkar leika um sæti
í milliriðli á morgun.
HANDBOLTI Slóvenar unnu Tékka
37-34 á öðrum leikdegi á Evrópu-
mótinu í handbolta. Leikurinn var
allan tímann jafn og spennandi og
skiptust liðin á að hafa forystuna.
Slóvenar tóku frumkvæðið í
upphafi leiks og leiddu 11-8 þegar
fyrri hálfleikur var hálfnaður.
Tékkar náðu að jafna í 11-11 og
12-12 en tvö mörk frá Vid Kavt-
icnik færðu heimamönnum
tveggja marka forystu. Tékkar
svöruðu með sex mörkum í röð en
Roman Pungartnik átti lokaorðið í
fyrri hálfleik og var staðan 18-15
fyrir Tékka í hléi.
Slóvenar skoruðu fimm fyrstu
mörk seinni hálfleiks en Tékkarnir
náðu forystunni að nýju, 21-20, með
þremur mörkum í röð. Þeir héldu
forskotinu fram undir miðjan hálf-
leikinn en þá skoruðu Slóvenar sjö
mörk gegn tveimur á fimm mínútna
kafla og leiddu 30-27.
Aftur skoruðu Tékkar þrjú
mörk í röð og jöfnuðu en Slóvenar
reyndust sterkari á endasprettin-
um og unnu með fjögurra marka
mun.
Línumaðurinn Zoran Lubej var
markahæstur Slóvena og skoraði
níu mörk úr tíu skotum. Zoran
Jovicic og Vid Kavticnik skoruðu
fimm mörk hvor, Ales Pajovic,
Roman Pungartnik og Uros Zorm-
an fjögur mörk hver og Ognjen
Backovic og Renato Vugrinec
þrjú hvor.
Jan Filip og David Juricek
skoruðu sjö mörk hvor fyrir
Tékka, Michal Bruna skoraði
fimm, Karel Nocar fjögur, Filip
Jicha og Daniel Kubes þrjú hvor,
Milan Berka tvö og Michal Kraus
og Alexandr Radchenko eitt hvor.
Þjóðverjar unnu Pólverja 42-31
í hinum leik gærdagsins. Markus
Baur var markahæstur Þjóðverja
með tólf mörk úr fjórtán skotum
en Grzegorz Tkaczyk skoraði níu
mörk fyrir Pólverja úr sextán
skotum. ■
Ólafur Stefánsson er ekki á leiðinni heim strax:
Við rífum okkur
upp úr þessu
HANDBOLTI Ólafur Stefánsson var
dapur í bragði í leikslok enda var
tapið gegn Ungverjum mikið
áfall. „Við ætluðum okkur sigur
hér í dag. Við fórum með slæm
dauðafæri í lokin þegar við vorum
að ná okkur upp. Það var samt
aðallega vörnin sem klikkaði. Það
kostar okkur miklu minni orku ef
við náum vörninni í gang og þurf-
um ekki að vera að sprengja okk-
ur í sífelldum eltingarleik. Við
náðum upp smá kafla en það var
bara ekki nóg. Við verðum að
þétta betur fyrir miðju eins og við
vorum búnir að tala um og þá
kemur þetta,“ sagði Ólafur, sem
er ekki á þeim buxunum að fara
heim á mánudag. „Þetta er erfið-
asta staða sem maður getur lent í.
Við erum búnir að glata okkar
tækifærum en þurfum samt að
spila vel gegn Tékkum til þess að
bjarga heiðrinum. Ef vörnin kem-
ur þá sigrum við því sóknin hefur
gengið vel á köflum. Við rífum
okkur upp úr þessu,“ sagði Ólafur.
Tekur fulla ábyrgð
„Þetta er rosalega sárt því við
vorum búnir að spila okkur út úr
leiknum en komum okkur alltaf
aftur og aftur inn en klúðrum því
þá aftur á ný,“ sagði Guðjón Val-
ur Sigurðsson, sem lék ágætlega
en hefur gengið illa að nýta fær-
in sín það sem af er. Hann tekur
fulla ábyrgð á sínum hlut. „Ég
verð að taka stóran hlut af sök-
inni á sjálfan mig því ég gat
minnkað muninn í eitt mark með
3 mínútur eftir og þar fór leikur-
inn endanlega.“ ■
KÆRU SPÁNVERJA VÍSAÐ FRÁ
Spænska handboltasambandið
kærði leikinn við Króata til aga-
nefndar Evrópska handknatt-
leikssambandsins. Spánverjarnir
telja að sigurmarkið, sem Ivano
Balic skoraði beint úr aukakasti,
hafi verið ólöglegt. Aganefndin
fjallaði um málið í gærmorgun og
ákvað að vísa því frá. Króatar
sigruðu 30-29 í leiknum.
LOEB LEIÐIR Frakkinn Sebastien
Loeb, á Citroën, leiðir eftir fyrsta
daginn í Monte Carlo-rallinu.
Eistinn Markko Märtin, sem ekur
fyrir Ford, er í öðru sæti, 18,3
sekúndum á eftir Loeb, en
Marcus Grönholm, á Peugeot, er
18,7 sekúndum á eftir Märtin.
Norski heimsmeistarinn Petter
Solberg, á Subaru, er sjötti. Rall-
inu lýkur á sunnudag.
TITOV Í BANN Rússneski miðju-
maðurinn Jegor Titov var í gær
dæmdur í tólf mánaða bann af
aganefnd UEFA. Titov féll á
lyfjaprófi eftir leik Rússa og
Walesmanna í umspili fyrir Evr-
ópumeistarakeppnina í sumar.
Hann missir því af lokakeppn-
inni í Portúgal í sumar. Titov,
sem leikur fyrir Spartak frá
Moskvu, hefur tvisvar verið val-
inn knattspyrnumaður ársins í
Rússlandi.
Enska bikarkeppnin:
Örlátur Abramóvits
FÓTBOLTI „Þetta er gríðarlega mikil bú-
bót fyrir okkur – alveg frábær. Ég
segi aðeins kærar þakkir, herra
Abramóvits,“ sagði Malcolm
Reynolds, stjórnarformaður Scar-
borough, en Roman Abramóvitsh,
eigandi Chelsea, gaf Scarborough
25.000 pund til reksturs fótboltaskóla
félagsins. Tilefnið er leikur Scar-
borough og Chelsea í 4. umferð bikar-
keppninnar í dag.
Paul Smith, talsmaður Chelsea,
sagði að félagið þyrfti að sýna ábyrgð
og hjálpa félögum eins og Scar-
borough að dafna. „Þessi félög eru
hjörtu sinna samfélaga og gegna stóru
hlutverki. Við vonum að framlag okk-
ar hjálpi Scarborough við að finna
stjörnuleikmenn sína í framtíðinni.“
Heimavöllur Scarborough,
McCain-leikvangurinn, rúmar 6.899
manns í sæti. Aðsóknin hefur yfirleitt
verið 1.000 til 1.500 manns í vetur en
völlurinn verður fullsetinn í dag og
komast færri að en vilja. Scarborough
stendur frammi fyrir nýju vandamáli
í dag en á heimasíðu félagsins er var-
að við fölsuðum aðgöngumiðum. ■
Íslendingar í ensku bikarkeppninni:
Árni Gautur
í byrjunarliði?
FÓTBOLTI Árni Gautur Arason leikur
líklega með Manchester City gegn
Tottenham í 4. umferð bikarkeppn-
innar á morgun. Enski landsliðs-
markvörðurinn David James er ekki
hlutgengur með City þar sem hann
hefur leikið með West Ham í bikar-
keppninni. Árni Gautur keppir við
Kevin Stuhr-Ellegaard um sæti í lið-
inu og er talið að Keegan veðji á
reynslu Árna frekar en Danann.
Bjarni Guðjónsson verður í leik-
mannahópi Coventry, sem leikur við
Colchester á heimavelli í dag.
Coventry fékk Bjarna að láni frá
Bochum út leiktíðina.
Brynjar Björn Gunnarsson hefur
verið í byrjunarliði Nottingham For-
est í síðstu þremur leikjum. Frétta-
vefur BBC væntir þess að Forest
tefli fram sama liði og tapaði fyrir
Reading fyrir viku þegar félagið
mætir Sheffield United á heimavelli
á morgun.
Wolves mætir West Ham í fyrsta
sinn í bikarkeppni. Jóhannes Karl
Guðjónsson var ekki í leikmanna-
hópi Úlfanna gegn Liverpool í vik-
unni en fréttavefur BBC reiknar
með að hann verði með að nýju á
morgun. ■
CHELSEA
Leikur við Scarborough í dag.
4. UMFERÐ BIKARKEPPNINNAR
Leikir í dag
Arsenal - Middlesbrough
Birmingham - Wimbledon
Burnley - Gillingham
Coventry - Colchester
Ipswich - Sunderland
Liverpool - Newcastle
Luton - Tranmere
Portsmouth - Scunthorpe
Scarborough - Chelsea
Swansea - Preston
Telford - Millwall
Leikir á morgun
Everton - Fulham
Man. City - Spurs
Northampton - Man. United
Nottingham Forest - Sheffield United
Wolves - West Ham
■ Molar