Fréttablaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Kvikmyndir 42 Tónlist 42 Leikhús 42 Myndlist 42 Íþróttir 38 Sjónvarp 44 SUNNUDAGUR SEX KÖRFUBOLTALEIKIR Heil um- ferð verður í Intersport-deildinni klukkan 19.15. Liðin sem mætast eru: Haukar - Grindavík, KFÍ - Þór, Tindastóll - KR, Breiðablik - ÍR, Snæfell - Keflavík og Njarðvík - Hamar. DAGURINN Í DAG VEÐRIÐ Í DAG KALT OG BJART Í REYKJAVÍK Víðast hægviðri á landinu, síst þó á annesjum. Lítilsháttar él á Norður- og Austurlandi. Hlýnar á þriðjudaginn. Sjá síðu 6. 1. febrúar 2004 – 31. tölublað – 4. árgangur ÚR ÖSKUNNI Í ELDINN Sophia Han- sen segist sannfærð um að Rúna dóttir hennar hafi verið gift nauðug. Hún segir hana farna úr öskunni í eldinn. Fær kannski að sjá dæturnar vor. Sjá síðu 2 ÍHUGAR AÐGERÐIR Viðskiptaráðherra íhugar aðgerðir til að kanna hvort stjórn SPRON hafi tryggt hagsmuni sjóðsins með samningum við Kaupþing-Búnaðarbanka. Sjá síðu 4 VILL EKKI RANNSÓKN Bandaríkja- forseti eyðir öllu tali um að koma á fót óháðri rannsóknarnefnd á vegum þingsins, sem ætti að fara ofan í saumana á hugsan- legum mistökum leyniþjónstu Bandaríkj- anna fyrir innrásina í Írak. Sjá síðu 2 BIRTA EKKI AUGLÝSINGU Skjár einn hefur beðið Samtök auglýsenda að gæta hagsmuna sinna eftir að Ríkisútvarpið neitaði að birta auglýsingu sem felur í sér ávarp til greiðenda afnotagjalda. Sjá síðu 6 NEMENDUR Á SÝNINGU ÓLAFS ELÍASSONAR Nemendur úr Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi taka virkan þátt í sýningu Ólafs Elíassonar í Listasafni Reykjavíkur. Gunnar J. Árnason listheimspekingur flytur fyrirlestur um Ólaf Elíasson á safninu klukkan 15 í dag. Treysta á Björgólf Thor í Búlgaríu Forstjóri Símans segir íslenska markaðinn ekki bjóða upp á mikinn vöxt. Síminn hyggst sækja á erlenda markaði af varkárni. VIÐSKIPTI Fjárfesting Símans í Carrera, félagi sem er einn af kaupendum í búlgarska ríkis- símafyrirtækinu, er ríflega þrjú hundruð milljónir króna. Að auki er gert ráð fyrir að Síminn komi mjög að ráðgjöf og stefnumótun hjá fyrirtækinu. „Við teljum að við eigum bæði mannauð og fjármuni til að leggja í fjárfestingar á erlendri grundu. Við höfum hugsað okkur að fara með varkárni og sækja út,“ segir Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans. Hann segir að íslenski mark- aðurinn bjóði ekki upp á mikinn vöxt og því vilji Síminn leita út fyrir landsteinana til þess að auka umsvif sín. Brynjólfur segir að hann hafi í haust fengið umboð frá stjórn félagsins til þess að taka þátt í samstarfi um kaup í félaginu en að mikinn tíma hafi tekið að ganga frá endanlegu samkomu- lagi. Hann segir að Síminn hafi mjög treyst á þekkingu Björg- ólfs Thors Björgólfssonar í skipulagningu verkefnisins og kveðst ánægður með þann hóp sem standi saman að fjárfest- ingunni, en auk Björgólfs og Símans eru íslensku fyrirtækin Straumur og Burðarás meðal fjárfesta í Carrera. ■ Samfylkingin: Stefnir í for- mannsslag SUNNUDAGSVIÐTAL „Ég hef fyrir löngu sagt að ég stefni að því að verða formaður áfram ef guð og gæfan lofa. Það kemur einfald- lega í ljós hvort það verður mót- framboð. Þannig er lýðræðið,“ segir Össur Skarphéðinsson, for- maður Samfylkingarinnar, í við- tali við Fréttablaðið. Samkvæmt þessu stefnir í formannsslag í Samfylkingunni á næsta ári, því Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, varaformaður Samfylkingarinn- ar, hefur þegar lýst því yfir að hún muni bjóða sig fram til for- manns þá. Tímamót í lífi Tinna Blaðamaðurinn hjartahreini, Tinni, er orðinn 75 ára. Vinsældir hans virðast vera botnlausar, því mynda- sögurnar um ævintýri hans eru ennþá lesnar um allan heim sem nýjar væru. Höfundur þeirra var Georges Rémi, eða Hergé. Hann lést árið 1983, en Tinni lifir enn. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Nýir eigendur FlugleiðaÍsland fyrir hundrað árum SÍÐUR 24-25 ▲ SÍÐUR 16-17 ▲ Hannes Smárason og tengdafaðir hans, Jón Helgi Guðmundsson, ætla sér stóra hluti með kaupum sínum á ráðandi hlut í Flug- leiðum. Hannes er líklegur stjórnarformaður. Hann segist sjá fjölmörg tækifæri í félaginu. SÍÐUR 26-27 ▲ Færeyjar: Ný stjórn FÆREYJAR Formenn Jafnaðarflokks- ins, Sambandsflokksins og Fólka- flokksins í Færeyjum undirrituðu stjórnarsamning um miðjan dag í gær. Á þriðjudaginn verður haldinn þingfundur, þar sem nýr lögmaður verður kosinn og ráðherralisti stjórnarinnar kynntur. Ólíklegt þykir að Anfinn Kalls- berg, leiðtogi Fólkaflokksins, verði ráðherra í nýju stjórninni. Báðir hinir stjórnarflokkarnir hafa lýst yfir algeru vantrausti á Kallsberg vegna ásakana um fjárdrátt. ■ Í dag eru liðin hundrað ár frá því Ísland fékk heimastjórn og fyrsti ráðherrann, Hannes Hafstein, var skipaður í embætti. En hvernig var um að litast á Íslandi fyrir hundrað árum?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.