Fréttablaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 22
22 1. febrúar 2004 SUNNUDAGUR Alþingi hefur tekið til starfaeftir jólafrí. Össur Skarphéð- insson, formaður Samfylkingar- innar, telur nokkur hitamál verða á dagskrá þingsins. „Sparisjóða- málið á örugglega eftir að verða heitt. Mér sýndist af ummælum forsætisráðherra á Valhallarfundi að það blási ekki eins byrlega og menn ætluðu í viðræðum við Bandaríkjamenn um varnarmálin og þau gætu komið upp með skyndilegum hætti. Hins vegar held ég að heilbrigðismálin og pólitískt stefnuleysi ríkisstjórnar- innar í þeim málaflokki muni verða mjög áberandi á þessu þingi,“ segir Össur. Hvað með stöðu stjórnarand- stöðunnar? Stundum finnst manni að hún sé ekki sterk. Brást stjórn- arandstaðan til dæmis ekki í eftir- launafrumvarpinu? Steingrímur J. fór á fjöll og sumum fannst að þú hafir reynt að firra þig ábyrgð í því máli með því að mæta ekki á fundi sem flokksmenn boðuðu til þar sem þau mál voru rædd. „Ég get fullvissað þig um að stjórnarandstaðan er sterk og ábyrg og í fínum gír. Varðandi þetta sérstaka mál þá var það ákaflega erfitt fyrir flokkinn. Ég ræddi málið við alla fjölmiðla og mörgum sinnum við suma þannig að mín viðhorf voru ljós. Þegar fundurinn í Kópavogi var boðaður lá fyrir að ég var á leið með nokkrum þingmönnum í funda- ferð sem búið var að ákveða og auglýsa en ég tjáði félögum mín- um að ég væri reiðubúinn til að mæta síðar til að ræða málið. Af fundi Alþýðuflokksfélags Reykja- víkur um sama mál frétti ég að- eins á skotspónum, og fundarboð- endur leituðu sjálfir til annars þingmanns til að hafa framsögu. Annars ríkir sá misskilningur að þingflokkur Samfylkingarinnar hafi stutt málið. Það komu hins vegar upp álitamál og flokkurinn studdi það ekki.“ Nú styttist í að Davíð Oddsson hverfi úr embætti forsætisráð- herra. Hvaða eftirmæli heldurðu að hann fái í sögunni? „Það skal ég segja þér þegar hann hættir í stjórnmálum. Ég veit hins vegar ekkert hvenær það verður en hef á tilfinningunni að það kunni að verða síðar en margir ætla.“ Hvernig líst þér á að fá Halldór Ásgrímsson sem forsætisráð- herra? „Ég hef enga hugmynd um hvernig Halldór kynni að reynast sem forsætisráðherra og hann á erfitt verk fyrir höndum. Per- sónulega óska ég honum alls góðs. Stjórnarandstaðan mun hins veg- ar veita honum hart aðhald. Það verður sérkennileg tilfinning fyr- ir bæði þingmenn og óbreytta sjálfstæðismenn að sjá Davíð Oddsson ganga út úr stjórnarráð- inu og afhenda lyklana formanni Framsóknar. Hver hefði trúað því? Mig grunar því að Sjálfstæð- isflokkurinn geri honum ekki alltaf lífið léttara.“ Stórsigur þrátt fyrir mistök Á Samfylkingin að bjóða fram R-lista næst með Framsókn og VG? Samstarfið sem byggðist á sterkum foringja virðist ekki eins sterkt og áður. „Þórólfur Árnason hefur reynst afburða vel sem borgar- stjóri. Hann hefur látlausan og persónulegan stíl sem greinilega fellur í kramið. Birtu dóttur minni finnst hann að minnsta kosti flott- ur gæi. Hann hefur mikla inni- stæðu hjá Reykvíkingum eins og sést í könnunum. Þórólfur er eig- inlega vaxinn upp í það á skömm- um tíma að vera mjög góður sam- nefnari fyrir Reykjavíkurlistann. Ég hef engar áhyggjur af sam- starfinu og það mun ekki slitna á Samfylkingunni. Forystmenn flokkanna, þeir Stefán Jón, Árni Þór og Alfreð ná greinilega vel saman, þannig að eins og staðan er í dag finnst mér Reykjavíkur- listinn í fínum málum.“ Ertu búinn að gera upp við þig hvort þú ætlar að bjóða þig fram til formanns árið 2005 og taka slaginn við Ingibjörgu Sólrúnu? „Ég hef fyrir löngu sagt að ég stefni að því að verða formaður áfram ef guð og gæfan lofa. Það kemur einfaldlega í ljós hvort það verður mótframboð. Þannig er lýðræðið.“ Finnst þér þingflokkur Sam- fylkingar standa að baki þér sem formanns? „Já. Þar er valinn maður í hverju rúmi, og ég er stoltur af þeim.“ Hvað finnst þér um grein fyrr- um aðstoðarmanns þíns Birgis Hermannssonar um mistök í kosningabaráttu flokksins eins og til dæmis Borgarnesræðuna frægu? „Mér fannst greinin einkenn- ast af sömu djúphygli og flest það sem sá prýðilegi drengur skrifar. Hins vegar fannst mér hún gróf- lega afflutt í frétt Moggans. Þar kom ekki fram meginkjarninn sem var sá að í pólitík er ekki hægt að vera nógu vondur við framsóknarmenn. Það er alltaf hægt að segja að kosningabaráttu hefðu menn átt að reka með ein- hverjum öðrum hætti. Við unnum hins vegar stórsigur hvað sem öll- um mistökum leið. Sama var ekki hægt að segja um nokkurn annan flokk. Við komum böndum á Sjálf- Össur Skarphéðinsson ræðir um stjórnmálaástandið, heilbrigðismálin, fjölmiðla, stöðu Samfylkingarinnar og síðast en ekki síst stöðu stjórnarandstöðunnar sem legið hefur undir gagnrýni fyrir að vera máttlaus í gagnrýni sinni á ríkisstjórnina. Össur vísar gagnrýninni á bug. Hann ætlar sér langan líftíma í pólitík. Hér á höfuðborgar- svæðinu eru þúsund- ir sem hafa ekki greiðan að- gang að heilsugæslu og verða að leita á kvöldvaktir eða á náðir Læknavaktar- innar þar sem heimsóknin kostar miklu meira. Og nú er að koma upp tvöfalt kerfi hjá sérfræðilæknum þar sem er hægt að kaupa sig fram fyrir eins og fyrrver- andi aðstoðarmaður Jóns Kristjánssonar skrifaði ný- lega grein um. Þrengingarn- ar sem nú ríða yfir ýta undir það. Ofan á það eru svo sí- fellt fleiri dæmi um að það er hópur fólks sem veigrar sér við að leita á náðir heil- brigðiskerfisins af því það hefur ekki efni á því. Þetta er það sem stendur upp úr af afrekum Framsóknar í heilbrigðismálum. ,, Stefni að því að verða formaður áfr

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.