Fréttablaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 11
■ Asía 11SUNNUDAGUR 1. febrúar 2004 Samherji veiðir mest af bolfiski á Norðaustur- og Austfjarðarmiðum: Þorskurinn betri til vinnslu og holdmeiri Könnun á leikskólagjöldum: Ódýrust í Fjarðabyggð GREG DYKE Dyke segir að Hutton lávarður hafi greini- lega rangt fyrir sér varðandi nokkur lagaleg atriði. Dyke um Hutton-skýrsluna: Gagnrýnir túlkunina BRETLAND Greg Dyke, fráfarandi útvarpsstjóri BBC, segir að Hutton lávarður hafi greinilega rangt fyrir sér varðandi nokkur lagaleg atriði í rannsóknar- skýrslu sinni um aðdragandann að dauða vopnasérfræðingsins Davids Kelly, sem birt var á mið- vikudaginn. Þetta kom fram í viðtali á GMTV-sjónvarpsstöðinni í fyrradag og sagist Dyke ekki hafa sagt sitt síðasta orð um Hutton-skýrsluna. Fyrst ætlaði hann að gefa sér tíma til þess að fara yfir hana í smáatriðum og einnig hefði hann áhuga á að heyra álit annarra lagalávarða á skýrslunni. „Það kemur á óvart hvernig Hutton túlkar sum atrið- in og málar þau annaðhvort í svörtu eða hvítu. Við vissum að mistök hefðu verið gerð en ekki að við hefðum verið einir um það,“ sagði Dyke. ■ SHUI-BIAN GAGNRÝNIR CHIRAC Chen Shui-bian, forseti Taívan, hefur sakað Jacques Chirac Frakklandsfor- seta um afskipti af innanríkis- málum landsins vegna gagnrýni hans á þá ákvörð- un taívanskra stjórnvalda að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um þá kröfu að Kínverjar hætti að beina eldflaugum að landinu. Taívanar hafa einnig aflýst tveimur opinberum heimsóknum embættismanna til Frakklands. MESTA HERÓÍN TIL ÞESSA Pakist- anska lögreglan lagði á fimmtu- daginn hald á 1.600 kíló af heróíni sem er það mesta sem gert hefur verið upptækt í einu lagi. Efnið fannst við leit í fylgsni í fjallahéraðinu Baluchistan við landamæri Afganistans, eftir að lögreglunni höfðu borist fregnir af smyglurum. Enginn var hand- tekinn en eitthvað af vopnum fannst í fylgsninu. SARJIYO HLAUT LÍFSTÍÐARDÓM Indónesíski hryðjuverkamaður- inn, Sarjiyo, einnig þekktur sem Sawad, hefur verið dæmdur í lífs- tíðarfangelsi í Indónesíu fyrir aðild sína að sprengjuárásinni á Balí í október í hittifyrra, en var fundinn sekur um að hafa hjálpað til við sprengjugerðina. Áður hafa þrír félagar hans hlotið dauða- dóma fyrir þátttöku í árásinni. SJÁVARÚTVEGUR Ísfiskskip Samherja veiddu stærstan hluta bolfiskafla síns á miðunum norðaustur af Langanesi og suður af miðunum út af Hornafirði á árinu 2003. Í tilkynningu frá Samherja seg- ir að af 7.700 tonnum af þorski hafi 5.850 tonn, eða 76%, veiðst á Norð- austur- og Austfjarðamiðum. Sam- herji hefur í samtals þrjú ár safn- að saman mikilvægum gögnum um holdafar og nýtingu fiskjar eftir veiðisvæðum. Á grundvelli þeirra gagna hefur skipum fyrirtækisins markvisst verið haldið til veiða á Norðaustur- og Austfjarðamiðum þar sem fiskurinn þaðan er betri til vinnslu, holdmeiri og gefur þar af leiðandi betri nýtingu og afköst. Í tilkynningunni segir ennfremur að minna sé af ormi í fiskinum sem fæst fyrir austan en í þeim sem fæst á Vestfjarðamiðum. Ísfiskskip Samherja hf. öfluðu samtals rúmlega 11.000 tonna af ferskum fiski á árinu 2003. Björg- úlfur landaði mestum afla, eða um 5000 tonnum. ■ VÍSINDI Jón Erlendsson verk- fræðiprófessor vinnur að gerð gagnagrunns um hagræðingu í opinberum rekstri sem hann tel- ur að geti sparað verulega fjár- muni í bæði heilbrigðis- og menntakerfinu. Jón hefur um árabil starfrækt Upplýsingaþjónustu Háskóla Ís- lands og hefur safnað að sér ógrynni gagna um ýmis mál og komið upp vefsíðum þar sem að- gangur að upplýsingunum er gerður einfaldur. Hann segir að með réttri notkun upplýsingatækninnar geti stjórnendur í ríkisrekstri fundið leiðir til sparnaðar og innleitt þær. „Þannig er hægt að spara jafnóðum í stað þess að bíða eftir niðurskurðargusum,“ segir Jón. Jón telur að víða fari fram tvíverknaður þar sem ekki sé næg vinna lögð í að kynna sér þá vinnu sem hefur átt sér stað ann- ars staðar í heiminum. „Afköst þessarar nýju tækni má líkja við það að notuð sé skurðgrafa í staðinn fyrir skóflu,“ segir hann. Á heimasíðu Jóns, www.hi.is/~joner, er að finna gríðarlegt magn af upplýsinga- síðum sem hann hefur sett sam- an um hin ýmsu mál sem hann hefur tekið til athugunar; bæði af eigin frumkvæði og eftir ábendingar frá öðrum. Að sögn eru heimasíðurn- ar sem hann hefur smíð- að komnar yfir tuttugu þúsund og geta þeir sem leita eftir aðstoð Jóns átt von á því að hann setji saman heimasíðu um málið á aðeins ör- fáum mínútum. ■ LEIKSKÓLAR Í samanburði á leik- skólagjöldum í níu sveitarfélög- um á landinu, sem héraðsfrétta- blaðið Bæjarins besta á Ísafirði lét framkvæma, kemur fram að lægstu gjöldin eru í Fjarðabyggð. Hæst eru gjöldin í Ísafjarðarbæ en litlu lægri á Akureyri. Munur- inn á hæstu og lægstu gjöldunum er tæp 40%. Fjarðabyggð veitir minni systkinaafslátt en sum sveitarfélaganna í samanburðin- um en þrátt fyrir það eru ódýr- ustu leikskólagjöldin fyrir syst- kini einnig í Fjarðabyggð. Sveitarfélögin sem borin voru saman eru: Reykjanesbær, Akra- nes, Vesturbyggð, Ísafjarðarbær, Bolungarvík, Skagafjörður, Akur- eyri, Fjarðabyggð og Vestmanna- eyjar. Þegar skoðuð eru gjöld fyrir sjö tíma vistun kemur í ljós að þar er Ísafjarðarbær hæstur. Þar kostar vistunin 19.600 kr. á mán- uði. Næsthæstu gjöldin eru á Ak- ureyri, 19.438 kr., í Bolungarvík mun slík vistun kosta 18.900 kr. eftir 1. mars, í Reykjanesbæ kost- ar vistunin 18.200 kr., í Vest- mannaeyjum 18.039 kr., í Skaga- firði 16.828 kr., í Vesturbyggð 16.625 kr., á Akranesi 15.680 kr. og lægst er greitt fyrir slíka vistun í Fjarðabyggð eða 14.049 kr. Leikskólavistunin er því tæpum 40% dýrari í Ísafjarðarbæ en í Fjarðabyggð. ■ Kýldur fimm sinnum í andlitið Ragnar Hilmarsson var á skíðum í Bláfjöllum þegar unglingsstrákur réðst óvænt á hann. Ragnar telur eftirlit á skíðasvæðinu ábótavant. FÓLK Ragnar Hilmarsson lenti í erfiðri reynslu þegar hann, ásamt níu ára syni sínum og vini hans, var á skíðum í Bláfjöllum á miðvikudagskvöld. Ragnar fór með drengina í stólalyftuna og þegar þeir voru á leiðinni upp gerði unglingsstrákur, sem sat tveimur bekkjum fyrir framan Ragnar, sér að leik að standa upp og hoppa í stólnum. Við það hristist togvír stólalyftunnar svo um munaði. Ragnar segir strákana litlu hafa orðið mjög hrædda. Þegar upp var komið talaði Ragnar við drenginn sem átti sök að máli. „Ég spurði hvort hann gerði sér grein fyrir að uppátæki hans hefði hrætt strákana og benti honum á að fleiri börn hefðu verið í lyftunni. Drengurinn reif stólpakjaft. Þá benti ég honum á að ég myndi sjá til þess að lyftu- kortið hans yrði klippt og honum vísað út af skíðasvæðinu.“ Að því búnu sneri Ragnar sér frá honum og settist niður til að festa á sig brettið. „Það næsta sem ég veit er að drengurinn er kominn að mér og kýlir mig fimm sinnum í andlitið. Vinir stráksins reyndu að stöðva hann en ég varð svo gáttaður að ég áttaði mig ekki á hvað væri á seyði. Þegar ég stóð svo upp var drengurinn horfinn niður brekk- una. Ég gáði eftir honum þegar niður var komið en sá hann ekki aftur.“ Litlu drengirnir tveir, sem voru með Ragnari, urðu vitni að því þegar hann var kýldur. „Báðir urðu logandi hræddir en sem bet- ur fer voru þeir fljótir að jafna sig.“ Ragnar segist aldrei áður hafa lent í svipuðu atviki. „Ég vann á unglingaheimili hér áður fyrr og hafði umsjón með frekar harð- svíruðum strákum. Atvik eins og átti sér stað í Bláfjöllum henti mig aldrei.“ Ragnar gagnrýnir að menn á vegum skíðasvæðisins séu ekki á ferð um svæðið til að koma í veg fyrir slæm atvik. Slíkt eftirlit sé undantekningarlaust á skíðasvæð- um erlendis. kolbrun@frettabladid.is MARGRÉT EA Skipum fyrirtækisins markvisst verið haldið til veiða á Norðaustur- og Austfjarða- miðum þar sem fiskurinn þaðan er betri til vinnslu. RAGNAR HILMARSSON Ragnar slapp betur en á horfði frá barsmíðunum. Drengurinn sem kýldi hann var hanskaklæddur og telur Ragnar það hafa komið í veg fyrir að andlitið slapp óskaddað. JÓN ERLENDSSON Segir að heimasíður frá sér séu gjarnan efstar þegar alþjóðlegar leitarvélar skila niðurstöðum um þau efni sem hann hefur unnið að. Upplýsingatækniþjónusta HÍ: Skurðgrafa í stað skóflu FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.