Fréttablaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 28
28 1. febrúar 2004 SUNNUDAGUR Myndverk vikunnar Stafagátan 32 2317 11 9 155 91010 3 15512 262623 26 15 9 25 25 9 23 22 8 31 28 29 23 28 23 15 9 22 14 13 31 11 9 26 23 25 25 29 30 18 29 5 1557 18 52226 24 12 10 152319 1311 231626 26 26 6 23 26 269325 2329 25 49151231992559 23 29 17 3 21 12 23 19 9 27 15 2112520 GÁTAN hér að ofan er í ætt við svonefnda hjartagátu sem margir kannast við. Gefið er eitt orð og stafina í því orði seturðu í gátuna þar sem sömu tölustafi er að finna. Það er svo þitt að finna aðra stafi og þegar því er lokið er auðvelt að fylla út lausnarorðið hér fyrir neðan sem er kvenmannsnafn. Í gátunni er að finna alla stafi íslenska stafrófsins nema c, z, q og w. Lausnarorð síðustu gátu var: Eyrún LAUSNARORÐIÐ ER: 3 9 15 22 15 21 29 H PAR Krossgátan Lárétt: 2 halda vel utanum, 6 einn af ásum, 7 nagdýrið, 9 guðspjallamaður, 12 stríð, 13 geðillur, 15 strákar, 18 blóm, 20 sterkleg, 22 kröftug, 23 skot. Lóðrétt: 1 hæfur, 2 kæpur, 3 sló, 4 náma, 5 bæta við, 8 dýramyndir, 10 grófur, 11 bretar, 12 dós, 13 ìgljúfrabúiî, 14 fjölbreytilega, 16 stöfum, 17 kjassar, 19 uggur, 21 mild. 1 14 21 17 1110 16 23 20 15 22 18 13 8 9 6 19 12 7 432 5 Lausn. Lárétt:2umlykja,6ullur, 7rottuna,9lúkas,12barátta,13fúllyndur, 15drengir, 18rósir, 20rammleg,22sterk,23afkimar. Lóðrétt:1fær, 2urtur, 3laust,4auðlind,5auka,8apamyndir, 10klúr, 11skotar, 12baukur, 13foss,14litríka,16emmum,17 gælir, 19ótti,21gæf. NÁTTTRÖLL Eftir Ásgrím Jónsson frá árinu 1905. Birna Þórðardóttir Málverk vikunnar er Nátttröllfrá árinu 1905 eftir Ásgrím Jónsson. Verkið var dánargjöf listamannsins til Listasafn Íslands árið 1958. Ásgrímur Jónsson (1876– 1958) er einn brautryðjenda íslenskrar myndlistar og varð fyrstur ís- lenskra málara til að gera mynd- listina að aðalstarfi. Ein þekktasta þjóðsagnamynd Ásgríms er úr sögunni Nátttröllið, olíumálverk frá árinu 1905, Nátt- tröll á glugga. Myndin sýnir unga stúlku sem situr á rúmstokk við glugga í baðstofu og horfir í átt til trölls á glugganum. Ásgrímur vík- ur frá sögunni og brýtur lögmál hennar um að stúlkan megi ekki líta við og mæta augnaráði óvætt- arinnar. Eins og í fleiru verkum sínum er Ásgrímur að túlka óttann við ofureflið og í þessu verki og öðrum er það ljósið sem verður manninum til bjargar. Ásgrímur fæddist 4. mars 1876 í Suðurkoti í Rútsstaðahverfi í Flóa. Árið 1897 hélt hann til Kaup- mannahafnar þar sem hann stund- aði nám við Konunglega listahá- skólann 1900– 1903. Ásgrímur dvaldist ytra til ársins 1909, en síðasta árið hafði hann vetursetu á Ítalíu. Á leið sinni til og frá Ítalíu kom hann við í Berlín og Weimar í Þýskalandi og sá m.a. verk frön- sku impressjónistanna sem höfðu djúp áhrif á hann. Íslensk náttúra var frá upphafi aðalviðfangsefni Ásgríms og með starfi sínu lagði hann grunninn að íslenskri landslagslist. Sýn hans á náttúruna var mótuð af rómantík 19. aldar og henni var hann trúr, þótt áherslur og vinnuaðferðir breyttust á hartnær 60 ára lista- mannsferli. Ásgrímur vann ennfremur brautryðjandastarf við myndskreytingar íslenskra þjóð- sagna og ævintýra og er einn mik- ilvirkasti þjóðsagnateiknari Ís- lendinga. Ásgrímur varð því fyrst- ur íslenskra listmálara til að sækja sér yrkisefni í þjóðsögurn- ar. Ásamt Guðmundi Thorsteins- syni er hann sá listamaður íslensk- ur sem hefur túlkað þær á per- sónulegastan hátt. Þjóðsagna- myndir Ásgríms voru honum afar nákomnar. Þar lét hann hugann reika og tjáði tilfinningar á opin- skárri hátt en í landslagsmyndun- um. Ef frá eru taldar sýning hans í Reykjavík um áramótin 1905–’06 og áttræðisafmælissýning hans árið 1956, virðist hann aldrei hafa haldið sýningu þar sem þjóðsagna- myndirnar skipuðu veglegan sess. Þjóðsagnamyndirnar komu hins vegar fyrir almenningssjónir í bókum. Veturinn 1906–’07, er hann var um kyrrt í Reykjavík, vann hann þjóðsagnamyndir í Lesbók handa börnum og unglingum, sem Guðmundur Finnbogason, Jóhann- es Sigfússon og Þórhallur Bjarn- arson sáu um útgáfu á, og ennfremur í Nýja stafrófskverið sem Laufey Vilhjálmsdóttir sá um og kom út árið 1909. ■ Maðurinn sem spurt var um áblaðsíðu 24 er Birna Þórðar- dóttir. Birna var lengi ritstjóri Fréttabréfs Lækna og Lækna- blaðsins en er framkvæmdastjóri Alnæmissamtakanna í dag auk þess sem hún leiðsegir í menn- ingargönguferðum um miðborg Reykjavíkur. Hún er þekkt fyrir skörulega framgöngu í þeim bar- áttumálum sem hún hefur tileink- að sér um ævina og fara kjaramál og herstöðvarandstaða þar fremst í flokki. ■ Maðurinn er... Óttinn við ofureflið Ný könnun á meðal skrifstofustarfsmanna í Bretlandi: Vilja vinna á strönd Niðurstöður könnunar á vegumbreska símafyrirtækisins BT gefa til kynna að skrifstofustarfs- menn myndu koma meiru í verk ef þeir fengju að vinna utan skrifstof- unnar. Tveir þriðju aðspurðra í könnunni sögðu að þeir myndu verða ánægðari og koma meiru í verk ef þeir fengju að velja hvar þeir ynnu vinnuna sína. Þá myndu starfsmennirnir nýta sér Netið og þráðlaus sam- skipti. Vinsælasti vinnustaðurinn reyndist vera ströndin. Um 37% aðspurðra sögðust helst vilja vinna á ströndinni, með fartölv- una sína í rólegheitum við sjávar- niðinn. Fjöll og garðar skoruðu einnig hátt. Um 18% sögðust helst vilja vera upp til fjalla, og vinna þaðan, og um 17% sögðust vilja vera úti í fallegum almennings- garði. Athygli vekur að allir eru þessir staðir úti við. Einungis um 4% sögð- ust vilja vera heima í rúminu sínu með tölvuna sína og vinna þaðan. Könnuninn leiddi einnig í ljós að um 28% aðspurðra vinna á milli níu til tólf tíma á dag. Um 57% eyða um fimm klukkustundum á dag fyrir framan tölvuskjáinn. ■ STRÖNDIN Um 37% aðspurðra í nýrri könnun sögðu að þeir myndu koma meiru í verk ef þeir fengju að taka fartölvuna sína á ströndina.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.