Fréttablaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 10
10 1. febrúar 2004 SUNNUDAGUR
VIÐ HELGA STEININN
Múslimskir pílagrímar á bæn undir steinin-
um helga við fjallið Arafat, skammt frá
borginni Mekka í Sádi-Arabíu. Pílagríma-
ferðir múslima þangað eru árviss viðburður.
SJÁVARÚTVEGUR „Við settum okkur
að markmiði að veiða 3000 tonn af
loðnu í janúar og það markmið er
að nást,“ segir Jón Gunnar Sigur-
jónsson, verkstjóri í loðnufryst-
ingu Síldarverksmiðjunnar. Í
fyrradag var búið að frysta 2.757
tonnum af loðnu sem veiðst hefur
í janúar. Jón Gunnar segir fryst-
ingu í fullum gangi og unnið sé á
vöktum allan sólarhringinn. Beit-
ir kom í land á fimmtudag með
650 tonn. Sama dag landaði norska
skipið Senor 230 tonnum.
Loðnuskipin eru nú á veiðum í
Seyðisfjarðardjúpi, um 70 mílur
undan Austfjörðum. Loðnan þykir
vera betri en sú sem veiddist fyr-
ir síðustu helgi. Bæði er hún stær-
ri og svo til átulaus, samkvæmt
upplýsingum frá Síldarverksmiðj-
unni.
„Það er allt á útopnu hjá okkur
og mikil vertíðarstemning. Þessa
stundina er verið að frysta 700
tonn af loðnu úr Sunnubergi,“ seg-
ir Einar Víglundsson, framleiðslu-
stjóri Tanga hf. á Vopnafirði. Búið
er að fyrsta 1.500 tonn af loðnu
hjá Tanga. Einar segir næsta
verkefni eftir Sunnuberg að landa
450 tonnum af loðnu úr Grindvík-
ingi. Þá sé Brettingur væntanleg-
ur í land á mánudag. ■
Með stóra drauma
Skálatúnsheimilið hélt upp á 50 ára afmæli sitt í gær. Heimilisfólk opnaði vinnustofur sínar og
var stöðugur straumur fólks á sölusýninguna. Heimilisfólki, aðstandendum og starfsfólki var svo
boðið til samsætis í Hlégarði.
TÍMAMÓT Skálatúnsheimilið í Mos-
fellsbæ, vistheimili fyrir þroska-
hefta, á 50 ára starfsafmæli á
þessu ári. Í gærmorgun voru
vinnustofur heimilisins opnar
almenningi þar sem hægt var að
skoða og kaupa afrakstur vinnu
heimilisfólksins.
Anna Kristín Gunnlaugsdóttir,
forstöðumaður heimilisins, segir
að handverk vistmanna hafi selst
vel og að mikill fjöldi fólks hafi
lagt leið sína á vinnustofurnar.
„Enda höfum við í gegnum tíðina
fengið mikinn stuðning, ekki síst
frá aðstandendum sem hafa
reynst okkur vel.“
Heimilisfólki, aðstandendum,
starfsfólki og fleirum var svo boð-
ið í kaffisamsæti í Hlégarði og
mátti heyra á Önnu Kristínu að
þar hafi verið mikil stemning.
Heimilisfólk sýndi meðal annars
atriði úr söngleiknum Grease og
sungu kórlög sem þau höfðu æft.
Skálatún á sér merkilega sögu
að baki. Það var byggt árið 1954
og er eitt af fyrstu vistheimilum
fyrir þroskahefta hér á landi.
Aðeins Sólheimar og Kópavogs-
hæli eru eldri.
„Það hefur orðið mikil upp-
bygging á staðnum á þessum
fimmtíu árum og allt til hins
betra,“ segir Anna Kristín. „Fyrr
á árum bjuggu hér 58 einstakling-
ar í tveimur húsum, þannig að
deildirnar voru mjög stórar og
mannmargar. Í dag búa hér 44 ein-
staklingar í átta heimiliseining-
um. Þetta eru sem sagt allt orðin
lítil sambýli og áhersla er lögð á
að hafa lífið sem eðlilegast. Við
erum með frábært starfsfólk sem
flest hefur starfað hér árum sam-
an og það hefur mikið að segja.
Við erum afskaplega stolt af
Skálatúni, hversu vel hefur geng-
ið að hlúa að einstaklingum. En
alltaf má gera betur og við stefn-
um að áframhaldandi uppbygg-
ingu. Húsakosturinn hefur lagast
og við erum með góðar vinnu-
stofur en við þyrftum eiginlega
meira húsnæði fyrir fleiri vinnu-
stofur. Þá myndum við gjarnan
vilja koma á skammtímavistun
þótt við séum ekki farin að leggja
nein drög að því. Við erum með
marga stóra drauma.“
audur@frettabladid.is
Snyrtisetrið ehf
Domus Medica sími 533 3100
Frá Snorrabraut
Sólarúði
Brún á
fimm
mínútum
MEÐLIMIR FALUN GONG
Meðlimirnir eru ánægðir með þann stuðn-
ing sem íslenska þjóðin sýndi meðan á
heimsókn Jiang Semin stóð yfir.
Falun Gong:
Senda bréf
til Davíðs
FALUN GONG Fjögurra manna hóp-
ur Falun Gong frá Svíþjóð og
Noregi ætlar á mánudag að koma
opnu bréfi til Davíðs Oddssonar
þar sem íslensk stjórnvöld verða
beðin um að endurskoða afstöðu
sína í garð samtakanna í ljósi
atburða tengslum heimsókn
Jiang Zemin.
Falun Gong vill meina að mót-
tökur íslenskra stjórnvalda hafi
mótast af afstöðu þýskra stjórn-
valda en Jiang Zemin heimsótti
Þýskaland tveimur mánuðum
áður en hann kom hingað til
lands. Bæjarstjóri Berlínar hefur
viðurkennt að sumar aðgerðir
þeirra í garð meðlima Falun
Gong hefðu verið rangar. Vilja
samtökin fá sambærilega viður-
kenningu frá íslenskum stjórn-
völdum. ■
HEIMILISFÓLK SÝNDI AFRAKSTUR
VINNU SINNAR
Mikil uppbygging hefur verið á heimilinu.
VINNUSTOFURNAR KOMA AÐ GÓÐU GAGNI
Enda láta forsvarsmenn sig dreyma um að bæta þar við.
FALLEGT HANDVERK
Fjöbreytt og fallegt handverk var til sýnis á vinnustofunum.
SÍLDARVERKSMIÐJAN Á NESKAUPSTAÐ
Unnið er á vöktum allan sólarhringinn í loðnufrystingu. Loðnan þykir vera betri en sú sem
veiddist fyrir síðustu helgi.
MARGT UM MANNINN
Fjölmargir lögðu leið sína á opnar vinnustofur í Skálatúni á 50. starfsári heimilisins.
Vertíðarstemning hjá Tanga hf. á Vopnafirði:
Síldarverksmiðjan
nær loðnumarkmiði