Fréttablaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 47
47SUNNUDAGUR 1. febrúar 2004
Björk „okkar“ Guðmundsdóttirhefur ákveðið að gefa út safn-
box í apríl sem inniheldur allar
smáskífur, endurhljóðblandanir
og hvítamerkjaútgáfur sem út
hafa komið á 11 ára sólóferli henn-
ar.
Á heimasíðu hennar kemur
fram að með þessu vonist hún til
þess að svala þeirri eftirspurn eft-
ir lítt þekktum endurhljóðblönd-
unum sem hafa verið ófáanlegar
um nokkurt skeið. Sumar þeirra
hafa ekki verið gefnar út í ákveðn-
um löndum.
Með þessu bindur Björk enda á
uppgjör sitt við fortíðina en hún
hefur verið í þeim gírnum alveg
frá því að hún gaf út Greatest Hits
plötu sína árið 2002. Hún er langt
komin með nýja breiðskífu og von
er á henni á heimsmarkaðinn síðla
árs. Það verður þá fyrsta útgáfa
hennar einungis með nýjum lög-
um í þrjú ár, eða alveg frá því að
Vespertine kom út árið 2001. ■
BJÖRK
Er alveg að verða búin að taka til á
háaloftinu heima hjá sér og
ný plata er handan við hornið.
Safnhaugur
BJÖRK GUÐMUNDSDÓTTIR
■ ætlar að gefa vænan skammt af
gömlu efni út í myndarlegum kassa.
Smáskífusafnbox á
leiðinni
ÍSTÖLT
Sjötíu knapar mættu með hesta sína á Ístölt-keppni á Rauðavatni í gær. Sigurður Matthías-
son á Kolviði frá Skeiðháholti sigraði í meistaraflokki en knapi og fákur eru hér á hálum ís.
Grannur tenór fitnar
Gjörbreytt útlit GuðmundarÓlafssonar leikara hefur
vakið mikla athygli leikhús-
gesta í Iðnó nú á nýbyrjuðu ári.
Guðmundur, sem hefur leikið
Tenórinn í Iðnó síðan í byrjun
október, ákvað um jólin að taka
sér tak. Til að fylla betur út í
hlutverk heimssöngvarans þyn-
gdi hann sig um heil tvö kíló og
fjórtán grömm á örfáum dög-
um.
„Mér varð ljóst að það væri
ekki bjóðandi áhorfendum að
hafa einhverja horgrind á svið-
inu og át því eins og svín um
jólin,“ sagði leikarinn þar sem
hann sat við eldhúsborðið
heima hjá sér og úðaði í sig
þjóðlegum þorramat.
„Þorramaturinn mun án efa
hjálpa mér að þyngjast enn
frekar. Þetta hefur verið
þrælerfitt en ég neita mér ekki
um neitt og hef sjaldan verið
þyngri eða í verra formi,“ sagði
Guðmundur alsæll, en hann er
sérlega sólginn í lundabagga
ofan á rúgbrauð með miklu
smjöri.
Undirleikari Tenórsins,
Sigursveinn Magnússon, vildi
aðspurður ekkert tjá sig um
mataræði söngvarans en sagði
þó ljóst að það hefði ekki komið
niður á raddgæðum.
Þetta mun sennilega vera í
fyrsta skipti sem íslenskur
sviðsleikari þyngir sig fyrir
hlutverk, en það er mál manna
að slíkt sé mjög vænlegt ef leik-
arar vilja næla sér í viðurkenn-
ingar af ýmsu tagi, svo sem
Golden Globe eða Óskars-
verðlaunin. Verður fróðlegt að
fylgjast með því hvort sama á
við hérlendis og erlendis.
Leiksýningin um Tenórinn,
sem hefur hlotið einróma lof
gagnrýnenda sem og áhorf-
enda, verður áfram á fjölunum
í Iðnó – eins lengi og þær gömlu
fjalir þola þyngslin. ■
TENÓRINN
Guðmundur Ólafsson hefur bætt á sig
rúmlega tveimur kílógrömmum
– allt í þágu leiklistarinnar.
Aukakíló
GUÐMUNDUR ÓLAFSSON
■ Leikarinn notaði tækifærið um jólin
og fitaði sig til að fylla betur út í hlutverk
heimssöngvara. Hann reiknar með frekari
afrekum á þessu sviði á þorranum.