Fréttablaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 45

Fréttablaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 45
SUNNUDAGUR 1. febrúar 2004 45 Pondus Ég hreinlega elska þetta hljóð! Jæja já... þú ætlar bara að sturta í þig pilsner! Gerirðu þér enga grein fyrir því hvað afleiðingarnar geta verið svakalegar? Þegar var ég var í húsmæðra- skóla ‘63, þá fórum við í bekkj- arferð til Köben, skal ég segja þér. Við skelltum í okkur nokkrum köldum, skilurðu... OG ÞÁ GERÐIST ÞETTA!!! Já, maður er þokkalega á perunni þegar maður lætur tattúvera Mikka Mús á magann og belju á hækjum að renna sér niður hryggjarsúluna! Viltu sjá? Brett og Butler í samstarf? FÓLK Brett Anderson, söngvari Suede, er með sólóplötu í bígerð og er ekki talið ólíklegt að hann kalli til sinn gamlan félaga Bernard Butler til samstarfs. Anderson hætti í Suede á síðasta ári með þeim orðum að hann vildi nálgast sinn innri djöful aftur. Nú lítur allt út fyrir að hann verði særður fram í sam- starfi við Butler sem hætti í Suede eftir að upptökum á annarri plötu sveitarinar lauk árið 1994. Samkvæmt fréttavef New Musical Express, www.nme.co.uk er talið víst að Anderson og Bulter hafi að minnsta kosti unnið saman að einu lagi á nýju plötunni. Vinslit urðu með Butler og Anderson þegar sá fyrrnefndi hætti í Suede, tónlistaraðdáend- um til mikils ama því samstarf þeirra þótti með afbrigðum frjótt. Það taldist því heldur bet- ur til tíðinda þegar sást til þeirra tveggja á börum í London í desember og strax leitt líkum að því að þeir félagarnir tækju upp samstarf á nýjan leik. Þrátt fyrir sólóverkefni Suede eru allar líkur taldar á því að félag- arnir í Suede komi saman aftur. Anderson sjálfur gaf það í skyn á síðustu tónleikum sveitarinnar á síðasta ári, aðdáendum Suede til mikillar ánægju. Hvenær það verð- ur er hins vegar alveg óljóst. ■ BRETT ANDERSON Ætlar að nálgast sinn innri djöful með aðstoð Bernards Butler. Barist um einkaréttinn á kynlífsupptökunni FÓLK Fyrrum kærasti vandræða- ljóskunnar Paris Hilton hefur boðist til þess að falla frá 10 millj- ón dollara meiðyrðamáli á hendur fjölskyldu stúlkunnar. Í staðinn vill hann fá dreifingarréttinn af kynlífsmyndbandinu með Paris sem gengið hefur á Netinu. Það ætti ekki að koma neinum á óvart að þessi tillaga fór mikið fyrir brjóstið á fjölskyldu stúlkunnar sem rekur Hilton-hót- elkeðjuna frægu. Frá því að myndbandið komst í umferð á Netinu hefur fjölskyldan reynt hvað hún getur til þess að ná því úr umferð. Salomon, sem er eiginmaður Beverly Hills 90120 leikkonunnar Shannen Doherty, sendi fjölskyld- unni tilboðið um miðjan síðasta mánuð. Salomon kærði fjölskylduna eftir að hún sakaði hann um að vera valdur þess að myndbands- upptakan lak á Netið. Meðlimir fjölskyldunnar sökuðu hann ein- nig um að hafa byrlað stúlkunni eiturlyf og sögðu hana varla með rænu þegar kynlífsupptakan var gerð. Þeir sem hafa séð mynd- bandið vita betur. Lögfræðingur Hilton fjöl- skyldunnar segir tilboðið sýna fyrirlitningu og hafnaði því al- farið. ■ PARIS HILTON Eftir að myndbandsupptakan lak á Netinu hefur Paris Hilton reynt hvað hún getur til þess að bjarga ímynd sinni. Hér sést hún mótmæla slæmri meðferð á dýrum. 30 BESTU PLÖTUR ALLRA TÍMA SAM- KVÆMT NÝLEGUM LISTA TÓNLISTAR- TÍMARITSINS ROLLING STONE: Sgt Pepper's Lonely Hearts Club Band THE BEATLES Pet Sounds THE BEACH BOYS Revolver THE BEATLES Highway 61 Revisited BOB DYLAN Rubber Soul THE BEATLES What's Going On MARVIN GAYE Exile on Main Street THE ROLLING STONES London Calling THE CLASH Blonde on Blonde BOB DYLAN The Beatles („The White Album“) THE BEATLES The Sun Sessions ELVIS PRESLEY Kind of Blue, MILES DAVIS Velvet Underground and Nico THE VELVET UNDERGROUND Abbey Road THE BEATLES Are You Experienced? JIMI HENDRIX EXPERIENCE Blood on the Tracks BOB DYLAN Nevermind NIRVANA Born to Run BRUCE SPRINGSTEEN Astral Weeks VAN MORRISON Thriller MICHAEL JACKSON The Great Twenty-Eight CHUCK BERRY Plastic Ono Band JOHN LENNON Innervisions STEVIE WONDER Live at the Apollo (1963) JAMES BROWN Rumours FLEETWOOD MAC The Joshua Tree U2 King of the Delta Blues Singers, Vol. 1 ROBERT JOHNSON Who's Next THE WHO Led Zeppelin LED ZEPPELIN Blue JONI MITCHELL Listinn er birtur í nýjasta hefti Rolling Stone. NEI NEI NEI Svona... við verslum þá bara á netinu, elsku kallinn minn... svona já... láttu það bara koma... Eitt kíló af sykri... tveir lítrar af létt- mjólk... úps, þarna datt risapoki af lakkrískonfekti í kerruna... og eitt karlablað... 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 30 bestu plöturallta tíma BÍTLARNIR Eins og svo oft áður er toppslagurinn yfir bestu plötur allra tíma á milli Bítlaplötunn- ar Sgt Peppers og Beach Boys plötunnar Pet Sounds.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.