Fréttablaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 15
Gunnhildur Hrólfsdóttir hefurgetið sér gott orð sem barna-
bókahöfundur og hún hlaut meðal
annars Íslensku barnabókaverð-
launin árið 1999 fyrir bókina Sjá-
umst aftur.. . Hún hefur nú heldur
betur skipt um gír og hefur nýlok-
ið við að skrifa leikrit fyrir Snúð
og Snældu, leikfélag eldri borg-
ara.
„Ég byrjaði nú að skrifa leikrit
fyrir útvarp á sínum tíma, þannig
að ég er ekki ókunnug forminu og
fannst þetta verkefni mjög spenn-
andi þegar þau fóru þess á leit við
mig að ég semdi verk sérstaklega
fyrir þennan hóp,“ segir Gunn-
hildur. „Þau voru með ákveðnar
óskir um að í verkinu blandaðist
saman rómantík, gleði, söngur,
spenna og síðast en ekki síst
margar persónur vegna þess að
þá yrði svo gaman á æfingum. Þau
voru alveg opin fyrir því að það
yrði gert svolítið grín að þeim
sjálfum en kröfurnar um harmon-
ikuleik voru nokkuð eindregnar.
Ég tók tillit til þessa alls og hafði
það í huga að þau muna mörg hver
horfna tíma og hafa upplifað mikl-
ar breytingar en allt endar þetta
auðvitað vel.“
Leikritið gerist í sumarbústað
þar sem fólk safnast saman til að
fagna 55 ára fermingarafmæli
sínu. Gamlar ástir vakna og sam-
tölin einkennast af tregabundnu
afturliti til yngri ára. Gestgjafinn
hefur hagnast í gegnum árin á
innflutningi á rennilásum, eins
dularfullt og það nú er, og það
dregur hressilega til tíðinda þeg-
ar hún finnur hvítt duft sem hún
notar sem sykur í kakóið fyrir
mannskapinn. Þá lifnar yfir sam-
komunni og gamla fólkið fer að
rappa og fortíðartreginn rýkur út
í veður og vind.
„Það gaf mér mjög mikið að
vinna með þessum hópi og ég
fékk mjög góða strauma frá
þeim,“ segir Gunnhildur sem
vonast til þess að sem flestir
gefi lífs- og starfsgleði eldri
borgara gaum.“
Bjarni Ingvarsson leikstýrir
Rappi og rennilásum sem verður
frumsýnt 6. febrúar. ■
15SUNNUDAGUR 1. febrúar 2004
Samíska söngkonan Mari Boineer einstök í sinni röð og hlaut á
síðasta ári tónlistarverðlaun
Norðurlandaráðs. Þeir Íslending-
ar sem þekkja til hennar hafa ef-
laust beðið þess með eftirvænt-
ingu að hún komi til þess að syng-
ja hér á sinn sérstæða hátt.
Nú er hún á leiðinni og ætlar
að halda hér tónleika í Salnum í
Kópavogi laugardaginn 21. febr-
úar.
Söngur hennar byggist á gam-
alli samískri hefð, svonefndu
joiki, sem hún blandar síðan
saman við sálmasöng eins og
hún ólst upp við í æsku. Inn í
þetta fléttar hún síðan áhrifum
úr ýmsum tónlistarstefnum, svo
sem rokki, djass og afríku-
töktum þannig að útkoman verð-
ur tónlist sem er engu öðru lík.
Á 25 ára ferli sínum hefur
hún sent frá sér níu hljóm-
plötur, og hefur starfað með
tónlistarmönnum úr ýmsum átt-
um. Þar á meðal má nefna
Senegalann Youssou N'Dour og
breska tónlistarmanninn Peter
Gabriel.
Þegar Mari Boine fæddist árið
1956 var joikið álitið syndsamlegt
og Sömum var talin trú um að
menning þeirra og tungumál
væru einskis virði.
Mari Boine býr í litlum bæ í
Norður-Noregi sem heitir
Gamehhisnjarga. Hún hefur á
ferli sínum jafnan barist fyrir
viðurkenningu á menningu Sama.
Framan af ólgaði mikil reiði og
uppreisn í tónlist hennar og text-
um, en smám saman tókst henni
að ná viðurkenningu og er í dag
orðin einn af þekktustu lista-
mönnum Sama. ■
Meistari joiksins
MARI BOINE
■ hefur á 25 ára ferli sínum barist fyrir
viðurkenningu á menningu Sama.
Lífsgleði
GUNNHILDUR HRÓLFSDÓTTIR
■ hefur sérsamið leikrit fyrir Snúð og
Snældu, leikfélag eldri borgara, og
ægir þar saman spennu, rómantík
og harmonikuleik.
Mari Boine syngur á Íslandi
DENNIS FARINA
Þessi fyrrum lögreglumaður og frábæri
leikari er 60 ára í dag. Hann er til að
mynda eftirminnilegur í myndunum
Get Shorty og Snatch.
með Karlakórnum HEIMI
& Óskari Péturssyni
HAPPA-
DRÆTTI
V i n n i n g a r
:
1. Folald
2. Lambhrútur á
fæti
3. Hangikjötslæ
ri
SKEMMTIATRIÐI m.a.
•Hinn margfrægi söng- og spéfugl Óskar Pétursson
•Gamanmál og ekta skagfirskir hagyrðingar
•Fjöldasöngur
•Hljómsveitin Miðaldamenn leikur fyrir dansi
•Húsið opnað kl. 19.30 - Blótið sett kl. 20.15
•Miðaverð kr. 5.400 (skemmtun, matur, dansleikur)
•Miðaverð á dansleik kr. 1.500
•Forsala aðgöngumiða í síma 533 1100 milli kl. 13 og 17 virka daga.
H
V
ÍT
T
&
S
V
A
R
T
Eldri borgarar
rappa um rennilása
SAMÍSKA SÖNGKONAN MARI BOINE
Heldur tónleika hér á landi 21. febrúar.
GUNNHILDUR HRÓLFSDÓTTIR
Leikurinn æsist heldur betur í verki hennar Rapp og rennilásar þegar eldri borgarar gæða
sér á kakói með dularfullu hvítu dufti. Þá tekur gleðin við af fortíðartrega og
ýmislegt forvitilegt skýtur upp kollinum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T