Fréttablaðið - 03.02.2004, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 22
Sjónvarp 28
ÞRIÐJUDAGUR
BÆTT SAMSKIPTI Farice, nýr sæ-
strengur milli Íslands, Færeyja og
Skotlands, verður formlega tekinn í notk-
un í dag. Strengurinn er í sameiginlegri
eigu Íslendinga og Færeyinga.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
BLINDBYLUR FYRIR NORÐAN
Einkum þó norðaustan og austantil þar sem
snjókoman verður hvað mest. Úrkoman
allra syðst verður í blautu formi og því síður
hætt við að skafi. Lægir í nótt. Sjá síðu 6
3. febrúar 2004 – 33. tölublað – 4. árgangur
● lágkúruleg umræða
Ástþór Magnússon:
▲
SÍÐA 31
Undirbýr
framboð
● 49 ára í dag
Jón Karl Helgason:
▲
SÍÐA 16
Hittir
tannlækninn
● kraftmikill stravinskí
Víkingur Heiðar:
▲
SÍÐA 26
Leikur
aðstæðna
● vinna gegn stressi
Stefán Björn Sigurðsson:
▲
SÍÐUR 18 og 19
Harðsperrur
eru skemmdir
FORSETINN ÓSÁTTUR Forseti Íslands
segir að hefði hann vitað af ríkisráðs-
fundinum hefði hann komið heim. Hann
segir að aldrei hafi verið óskað eftir að-
komu forsetans að hátíð vegna 100 ára af-
mælis heimastjórnar. Sjá síðu 2
AÐILD AÐ ESB Valgerður Sverrisdóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra, telur inn-
göngu Íslands í Evrópusambandið eina
þeirra leiða sem gætu orðið sauðfjárbænd-
um til bjargar. Sjá síðu 2
RÁÐHERRA ÁHYGGJUFULLUR
Sjávarútvegsráðherra segist hafa áhyggjur af
því að sjávarútvegsfyrirtæki hverfi úr Kaup-
höllinni og hverfi þannig frá fjármögnun í
gegnum hlutafélagamarkaðinn. Sjá síðu 4
ORKUFREK NETÞJÓNABÚ Unnið er
að fjármögnun byggingar svokallaðra net-
þjónabúa á Íslandi sem munu hýsa tölvu-
gögn. Búin eru orkufrek og því vænlegur
kostur fyrir orkufyrirtæki. Sjá síðu 8
BANDARÍKIN, AP Bush Bandaríkja-
forseti tilkynnti í gær að ákveðið
hefði verið að hefja rannsókn á
leynilegum gögnum sem sögðu að
Írakar hefðu yfir að ráða gjöreyð-
ingarvopnum og notuð voru til
þess að réttlæta stríðið í Írak.
Bush sagði að óháð rannsókn-
arnefnd yrði skipuð til þess að
rannsaka málið og væri henni ætl-
að að meta stöðuna og hvað hægt
væri að gera betur í baráttunni
gegn hryðjuverkum.
Bush mun seinna í vikunni gera
nánari grein fyrir hlutverki
nefndarinnar eftir að hafa ráð-
fært sig við David Kay, fyrrum
yfirmann vopnaeftirlits Banda-
ríkjamanna í Írak. Hann mun
sjálfur skipa í nefndina og setja
henni leikreglur en ekki er búist
við því að hún skili niðurstöðum
fyrr en eftir forsetakosningarnar
í nóvember.
„Ég vil vita allar staðreyndir
málsins,“ sagði Bush og ítrekaði
að Saddam Hussein, fyrrum
Íraksforseti, hefði verið hættuleg-
ur. „Við vitum að hann hafði bæði
viljann og getuna til þess að valda
miklum skaða,“ sagði Bush.
Talið er að þessi breytta af-
staða Bush, sem hingað til hefur
hafnað rannsókn, muni auka
þrýsting á Tony Blair, forsætis-
ráðherra Breta, um að hefja sams
konar rannsókn. ■
Vaxandi átök um
söluna á SPRON
Titrings gætir á Alþingi vegna frumvarps um fjármálafyrirtæki sem kemur í veg fyrir kaup KB
banka á SPRON. Pétur Blöndal segir ekki hægt að stöðva söluna. Formaður þingflokks fram-
sóknarmanna segist undrandi á að frumvarpið skuli hafa verið lagt fram.
heilsa o.fl.
BJÖRGUNARSVEITIR AÐ STÖRFUM
Óttast er að allt að 120 manns hafi verið í byggingunni þegar hún hrundi. Talið er víst að tugir hafi látist og fjöldi grafist undir rústunum.
TYRKLAND, AP Tíu hæða íbúðabygg-
ing hrundi til grunna í bænum
Konya í miðhluta Tyrklands í gær
með þeim afleiðingum að tugir
fólks grófust undir rústunum.
Talið er að sprenging hafi orðið í
hitakúti og undirstöður hússins,
sem var byggt fyrir fimm árum,
hafi gefið sig við sprenginguna.
Þegar blaðið fór í prentun
höfðu björgunarsveitir grafið
eitt lík úr rústunum en að
minnsta kosti tólf manns hafði
verið bjargað á lífi. Flestir þeirra
voru íbúar á efri hæðum bygg-
ingarinnar en að sögn tyrkneskra
fjölmiðla er óttast að allt að 120
manns hafi verið í byggingunni
þegar hún hrundi. Að sögn tyrk-
nesku sjónvarpsstöðvarinnar
NTV voru um 40 íbúðir í bygg-
ingunni. ■
ALÞINGI Búist er við að þingmenn úr
öllum stjórnmálaflokkum verði
flutningsmenn frumvarps um fjár-
málafyrirtæki sem væntanlega
verður lagt fram á Alþingi í dag.
Nái frumvarpið fram að ganga
verður komið í veg fyrir kaup KB
banka á SPRON og að sögn flutn-
ingsmanna verður tilverugrundvöll-
ur sparisjóðanna þannig tryggður.
Leitað hefur verið eftir þverpóli-
tískum stuðningi við málið. Það hef-
ur verið kynnt þingflokkum Sjálf-
stæðisflokksins og Samfylkingar-
innar og hafa þeir samþykkt að
leggja frumvarpið fram.
Einar K. Guðfinnsson, þing-
flokksformaður Sjálfstæðisflokks-
ins, segir skiptar skoðanir um málið
innan þingflokksins. Þingflokkur
Framsóknarflokksins hefur ekki
fengið málið til umfjöllunar. Krist-
inn H. Gunnarsson segir að í þessu
máli hafi menn mistúlkað lögin og
að fyrirhuguð kaup stangist á við
lög. Hjálmar Árnason, þingflokks-
formaður framsóknarmanna, segist
afar undrandi á málinu.
„Þetta kemur algjörlega flatt
upp á okkur,“ segir Hjálmar. „Við
höfum ekki séð þetta frumvarp og
því ekki getað tekið afstöðu til
þess.“
Lúðvík Bergvinsson, Samfylk-
ingunni, flutningsmaður frum-
varpsins, segir brýnt að leggja það
fram og þverpólitískur stuðningur
sé við málið.
„Það er enginn vafi á því að
þingheimur vill ekki sjá það að
sparisjóðirnir í landinu hverfi og
ég held að enginn sé tilbúinn í slíkt
umhverfi. Það er alveg ljóst að ef
þingið vill koma í veg fyrir það að
kaup KB banka á SPRON gangi eft-
ir þarf að samþykkja ný lög fyrir
10. febrúar næstkomandi,“ segir
Lúðvík.
Hann telur að jafnvel þótt
kauptilboð hafi verið undirritað að
hálfu stjórnar SPRON feli það ekki í
sér afturvirkni ef lagafrumvarpið
sem stöðvar söluna verður sam-
þykkt fyrir 10. febrúar. Pétur Blön-
dal er á öndverðri skoðun og segir
að ekki sé hægt að stöðva söluna
með lagasetningu.
Fyrsti flutningsmaður frum-
varpsins, Einar Oddur Kristjánsson,
Sjálfstæðisflokki, segir að vilji
þingsins muni koma skýrt fram í
frumvarpinu. Mikilvægt sé að
vernda sparisjóðakerfið eins og því
sé nú háttað og þingmenn telji það
ákaflega óheilbrigt ef kaup KB
banka á SPRON gangi eftir.
„Ég á ekki von á öðru en að það
verði þverpólitísk samstaða um
málið þannig að vilji þingsins komi
skýrt fram,“ segir Einar Oddur.
Jón G. Tómasson, stjórnarfor-
maður SPRON, og Sigurður Einars-
son, stjórnarformaður KB banka,
vildu ekki tjá sig um málið í gær.
bryndis@frettabladid.is
Sjá nánar bls. 4
Bush lét undan þrýstingi:
Rannsókn fer fram
GEORGE W. BUSH
Bush Bandaríkjaforseti hefur látið undan
þrýstingi og ákveðið að hefja rannsókn á
þeim leynilegu gögnum sem notuð voru til
þess að réttlæta stríðið í Írak.
Íslandsbanki:
Eignast 5,36%
í bankanum
VIÐSKIPTI Félag í eigu Karls, Stein-
gríms og Ingunnar Wernersbarna
hefur eignast 5,36% hlut í Íslands-
banka. Í Kauphöll Íslands í gær
var tilkynnt um að gerðir hefðu
verið framvirkir samningar um
kaup á stórum hlut í félaginu.
Heildareign félags systkin-
anna, Milestone Import Export
Ltd., er að verðmæti rúmlega
fjórir milljarðar miðað við gengi
bankans í gær.
Karl Wernersson er stjórnar-
maður í Pharmaco og eigandi
lyfjaverslunarkeðjunnar Lyfja og
Heilsu. ■
Tíu hæða hús hrundi:
Tugir íbúa
fórust