Fréttablaðið - 03.02.2004, Side 12

Fréttablaðið - 03.02.2004, Side 12
12 3. febrúar 2004 ÞRIÐJUDAGUR BYSSULEIKUR Í ÍRAK Börnin í Írak lifa við stöðuga ógn en virðast þó sum lifa sig inn í ástandið eins og þessi mynd frá barnaleikvelli í Bagdad sýnir. UPPGJÖR Tap stoðtækjaframleiðand- ans Össurar á fjórða ársfjórðungi síðasta árs var minna en greiningar- deildir fjármálastofnana bjuggust við. Össur sendi frá sér afkomuvið- vörun í desember og voru markaðs- aðilar hóflega bjartsýnir á niður- stöðuna. Össur gerði ráð fyrir einnar til tveggja milljóna dollara tapi á fjórða ársfjórðungi , en niður- staðan varð tap upp á 917 þúsund dollara. Hagnaður ársins 2003 var 358 milljónir króna, 4,7 milljónir doll- ara, sem er helmingi minni hagnað- ur en árið áður. Síðasta ár reyndist Össuri erfitt. Undir lok ársins náð- ist sátt í dýrum málaferlum fyrir- tækisins og félagið bar kostnað af starfslokum stjórnenda í Bandaríkj- unum sem voru látnir hætta. Þess utan vann veiking dollara gagnvart krónu og aukin samkeppni í Banda- ríkjunum gegn félaginu. Landvinningar félagsins á síð- asta ári voru kaup á fyrirtækinu Generation II Group. Töluvert af kostnaði við sameiningu þess við Össur var gjaldfært á síðasta ári. Velta Össurar jókst um 16% á síð- asta ári. ■ Aukin spenna er nú að færast íslaginn um tilnefningu demókrata á frambjóðanda flokksins fyrir forsetakosning- arnar í Bandaríkjunum, sem fram fara 4. nóvember. Í dag fara fram forkosningar í sjö ríkjum, sem eru Arizona, Delaware, Missouri, Oklahoma, Suður-Karolína, Nýja- Mexíkó og Norður-Dakóta. Þessi þriðja lota baráttunnar, sem kölluð er „Súper sjö“, skiptir miklu ef ekki öllu um framhaldið og því tjalda frambjóðendur nú öllu sem tjaldað verður, ekki síst sínum „betri helmingi“. Þar nýtur „tómatsósudrottningin“, Teresa Heinz Kerry, eiginkona öldunga- deildarþingmannsins Johns Kerry, mestrar hylli fjölmiðla fyrir skörulega framgöngu. Fæddur leiðtogi Eftir stórsigra eiginmannsins í fyrstu tveimur forkosningunum í Iowa og New Hampshire og glæsi- lega útkomu í skoðanakönnun, þar sem Kerry var stillt upp á móti Bush Bandaríkjaforseta, hefur Teresa komið með auknum krafti inn í kosningabaráttuna og sagði eftir sigurinn í New Hampshire: „Við höfum aðeins reist grunninn en hann er traustur og nú þurfum við að halda áfram á sömu braut.“ Hún sagði þrennt einkenna eig- inmanninn sem gerði hann öðrum frambjóðendum hæfari til þess að gegna embætti forseta Bandaríkj- anna, en það væri stefnufesta hans og persónutöfrar og að hann væri fæddur leiðtogi með ríka diplómatíska hæfileika til þess að vinna traust leiðtoga heimsins. „Við þurfum leiðtoga eins og Kerry til þess að endurheimta það traust sem Bush-stjórnin hefur rúið okkur,“ sagði Teresa, sem erfði mikil auðæfi við fráfall fyrri eiginmanns síns, öldungadeildar- þingmannsins og matvælajöfurs- ins Johns Heinz, en hann fórst í flugslysi árið 1991. Kvenréttindabarátta Teresa þykir glæða kosninga- baráttu eiginmannsins aukinni reynslu og hæfileikum en hún hefur um árabil ljáð ýmsum mál- efnum krafta sína. Má þar nefna umhverfisvernd og málefni barna og kvenna auk baráttu fyrir bættri heilbrigðisþjónustu og ýmsum öðrum velferðarmálum eins og málefnum aldraðra. Strax á sjöunda áratugnum var hún komin á kaf í kvenréttinda- baráttuna í Bandaríkjunum og sótti fyrsta bandaríska kvenrétt-                                    !   "# $ ! !  "##  $   $# $   %###&   ##  '!   !   (!   $ # )##  # *               + ,,   - *.//0121 3*.//02 ' '4 % &!  '      $     LOÐNUVEIÐAR Lítið fannst í loðnuleiðangri sem lauk um helgina. Rannsóknir: Óvissa um loðnustofn SJÁVARÚTVEGSMÁL „Við höfum enn ekki lokið greiningu á niður- stöðu,“ segir Jóhann Sigurjóns- son, forstjóri Hafrannsóknastofn- unarinnar, um niðurstöður loðnu- leiðangurs rannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar RE sem lauk um helgina. Heimildir Fréttablaðsins herma að leiðangursmenn hafi orðið fyrir miklum vonbrigðum með afraksturinn og lítið hafi fundist af loðnu. Jóhann vill ekkert úttala sig um það hver staðan sé nú. Veiði- stöðvun á loðnu var aflétt þann 20. janúar eftir að leiðangurinn fann talsvert magn af loðnu. Síðan fannst lítið, sem þykir ekki góðs viti. Jóhann segir að sjávarút- vegsráðherra verði kynntar nið- urstöðurnar næstu daga. „Við þurfum að fara vandlega yfir niðurstöðurnar næstu daga,“ segir Jóhann. ■ Fréttaskýring ERLINGUR KRISTENSSON ■ fjallar um „betri helming“ Johns Kerry. Teresa í Hvíta húsið? Teresa Heinz Kerry, eiginkona öldungadeildarþingmannsins Johns Kerry, sem nú þykir líklegast- ur til að hljóta tilnefningu demókrata fyrir forsetakosningarnar í nóvember, nýtur mikillar hylli meðal Bandaríkjamanna og er af sumum sett á stall með Hillary Clinton og Eleanor Roosevelt. SIGRI FAGNAÐ Hjónin John og Teresa Heinz Kerry fagna sigri í forkosningun- um í New Hampshire í síðustu viku. „Við höfum aðeins reist grunninn en hann er traustur og nú þurfum við að halda áfram á sömu braut,“ sagði Teresa eftir sigurinn í New Hampshire. Erfitt ár hjá Össuri: Afkoman betri en búist var við BJARTARA FRAM UNDAN Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, átti eril- samt og erfitt ár í fyrra. Afkoma félagsins var betri en búist var við og stjórnendur gera sér vonir um betra ár í ár. AFKOMA ÖSSURAR Í ÞÚSUNDUM DOLLARA Ár 2003 2002 Velta 94.467 82.284 Rekstrarhagnaður 6.112 11.501 Hagnaður 4.661 10.056 Kínverskir vélamenn á Kárahnjúkum: Færnin könnuð KÁRAHNJÚKAR Könnun á færni 27 kínverskra vélamanna við Kára- hnjúka er lokið. Nýi ökuskólinn ann- aðist úttektina fyrir Impregilo. Mennirnir hafa réttindi frá heimalandinu til starfa á stórvirk- um vinnuvélum. Kennari á nám- skeiðinu var Finnbogi Pálsson og stóðu mennirnir sig „frábærlega“ að hans sögn. Að úttektinni lokinni var send umsögn til Vinnueftirlits ríkisins, sem mun fara yfir málið og gefa út tímabundin og staðbundin réttindi fyrir umrædda starfsmenn. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.